Kirkjublaðið - 02.09.1896, Qupperneq 7
167
standa til eilifðar. Þegar vjer þá höfura í huga, að
kirkjan er einkum reist fyrir ungmenni vor og afkom-
endur i ókominni tíð, þá er eitt áform að siðustu, eitt
heit sem vjer af hjarta ættum að heitstrengja, það er að
vernda og varðveita sanna trú á Jesúm Krist í hjörtum
vorum meðan líf vort endist, að rótfesta hana hreina og
kröptuga i hjörtum barna vorra, svo vjer látum þeim ept-
ir hinn dýrasta arf, er vjer vitum að framtiðin mun ekki
njóta nokkrar sannar blessunar, nema hún varðveiti.
Kirkja þessi er reist á »Bjargi«, hinu sama nafni sem
kristindómurinn er reistur á; hyrningarsteinn hans er
Jesús Kristur. Ef vjer eigum að varðveita kristindóminn
til blessunar fyrir framtíðina, þá verður hann að standa
hjá oss á bjargi. Hann má ekki feykjast burt úr hjört-
unum fyrir nokkra vantrú, vanrækt nje ljettúð tíðarand-
ans. Þetta er talað til vor allra, eins til mín sjálfs sena
til yðar, tilheyrendur. I málefni kristindómsins svífa að
nokkru leyti í nútfðinni svartar myndir fyrir augum vor-
um, oss finnast hættulegar tíðir, að hjörð Drottins kunni
að afvegaleiðast og tvístrast; samt viljum vjer ala þá
björtu von og bera það traust til Drottins, að hann verndi
Síon sína og snúi tímunum á þá leið, að framtíðarmenn-
irnir falli fremur í faðm kristindómsins, að hinar kom-
andi kynslóðir halli sjer auðmjúkar að hiarta hins kross-
festa heldur en nútíðin. í þeirri von viljum vjer vinna
og stríða, í því trausti byrja verk vort i þessu húsi og
biðja í auðmýkt hinn algóða Guð, að vera í verki með
oss. Hneig, ó Guð, hjörtu safnaðarins að þínu musteri;
lát alla mæta hjer sem sanna játendur þíns heilaga
nafns. Vertu máttugur í veikleika þeirra, sem flytja
þitt orð frá þessum stað, og gróðurset í hjörtum þeirra
elskuna til þín og Jesú Krist. Lát þinn anda undirbúa
svo hjörtu allra þeirra sem hingað koma, að þeir hjer
fái aflað sjer Ijóss og sannleika, huggun og frið. Þín
náð, friður og blessun margfaldist yfir þessu musteri þínu
um ókominn tíma frá kyni til kyns, í Jesú nafni amen.