Alþýðublaðið - 27.09.1960, Side 10
WWIWWMWWMWMWIWWMWWWWWMrtWMWWWWMWmWWMWWWWWW
Ánægbur með
ÞAÐ var mikil kát-
ína í búningsklefa Akur-
nesinga, þegar tíðinda-
maður íþróttasíðunnar leit
inn rétt eftir leikinn á
sunnudaginn. Brosandi
andlit hvarvetna og ham-
ingjuóskum rigndi yfir
hina nýbökuðu íslands-
meistara.
Við spurðum fyrirlið-
ann, Helga Daníelsson,
markvörð hvort hann
væri ekki ánægður með
leikinn.
„Jú, víst er ég ánægður,
sagði Helgi. Við notuðum
nú svipaða aðferð og KR-
ingarnir fyrir nokkrum
árum, þeir skoruðu eitt
mark og lögðu svo alla á-
herzlu á vörnina, en við
vorum þá meiri hluta
leiksins í sókn. Nú vorum
það við sem skoruðum og
eftir það hugsuðum við
meir um vörnina og okk-
ur tókst að halda mark-
inu hreinu“, sagði hinn
snjalli markvörður.
WMMMMMMWWMWMWWWMWWilMWW WMWWWWWWMWWMMw««»- WMMMMM*
27. sept. 1960 — Alþýðublaðið
Sigraði KR 1:0 í tilþrifa
iitlum úrsSitaieik
ÁHUGINN fyrir úrslitaleik
49. íslandsmótsins í knatt-
spyrnu, sem háður var s. 1.
sunnudag milli KR. og Akur-
nesinga var mjög mikill. Um
það vitnar aðsóknin, en nær
sex þúsundir manna, að því
er talið er, komu í Laugardal
inn og voru þar vitni að því
að Akurnesingar fóru í þetta
sinn, í sjötta skiptið, með sig
ur af hólmi í baráttunni um ís
landsmeistaratignina. Akranes
hefur oft verið nefndur „knatt
spyrnubærinn“ er það vissu-
lega orð að sönnu og var ræki
lega undirstrikað á sunnudag-
inn var, af hinum leikfráu
Skagamönnum. Fyrir leikinn
voru þeir fleiri, sem trúðu á
gengi KR-inga og töldu þá
nokkurn veginn örugga áfram
haldandi handhafa æðstu tign
ar íslenzkr-ar knattspyrnu. Hug
myndir manna og álykt.anir
standast misjafnlega. Skaga-
menn hafa orðið að sjá af ýms
um sinna beztu manna frá
„gullaldartímunum“ og þá
fyrst og fremst Ríkharði Jóns-
Björgvin Schram, formaður KSÍ afhendir Helga Daníelssyni,
fyrirliða Akranesliðsins fslandsbikarinn.
syni. En á Akurnesingum hef-
ur sannast, að maður kemur
í manns stað. Lið þeirra nú, er
og hefur verið í sumar skipað
ungum mönnum í margar mik-
ilsverðar stöður, snjöllum og
vaxandi leikmönnum, auk þess
sem ýmsir hinna gömlu kappa
eru þar einnig til sóknar og
varnar, svo sem Helgi Daníels
son í markinu og Sveinn Teits
son framvörðurinn viður-
kenndi, en auk þeirra, í þess-
um leik, komu fram á sjónar
sviðið, Þórður Þórðarson,
snarpur og harðskeyttur að
vanda og Helgi Björgvinsson,
en þeir hafa ekki verið með
seinni hlutann í sumar, fyrr
en nú. Gáfu þeir liðinu í heild,
en. einkum þó sókninni aukinn
„slagkraft". Annars hefur vörn
Akranessliðsins verið veikari
hluti liðsins, að undanskyld-
um Helga í markinu, þar til
nú að hún skilaði hlutverki
sínu yfirleitt ágætlega og dugði
hvað bezt þegar mest á reyndi,
eins og í síðari hálfleiknum, er
KR-ingar sóttu hvað fastast á,
langtímum saman.
Þrátt fyrir allspennandi leik
og kappsfullan á köflum með
ívafi nokkurra tilþrifa annað
slagið, verður ekki annað
sagt, en leikurinn í heild, af
úrslitaleik að vera, hafi valdið
vonbrigðum. Og þegar athugað
er, að þarna áttust við tvö meg
inlið landsins á knattspyrnu-
sviðinu, sem sé blóminn úr
knattspyrnunni og það í ver-
tíðarlok, eftir allar æfingar og
kappleiki sumarins, utanlands
og innan, þarna var og allur
þorri landsliðsmanna vorra sam
an kominn í báðum hðum, er
ekki hægt að tala um mikla
reisn íþróttarinnar. Mistök í
sendingum voru áberandi, við-
vaningslegir tilburðir í knatt-
stöðvun komu alltof oft fyrir.
Leiknir menn, eins og t. d. Þór
ólfur Beck, KR gerði sig oft
sekan um þá kórvillu, að
treysta meira á leikni sína,
plataði mótherjana tvo eða þrjá
í röð og missti síðan knöttinn,
í stað þess að láta hann ganga
þegar til samherja. Það vant-
aði meira hraða í leikinn, eink
um þó af KR hálfu. KR-ingar
hafa sýnt það á fyrri leikjum
sínum, að þeir geta leikið hratt
og oft furðu nákvæmt, og
með því hafa þeir líka snúið ó
sigri f sigur, er þar skemmst
að minnast leiksins við Akra
nes í sumar er Arselanmenn-
irnir léku með Skagamönnum.
í öllum þessum úrslitaleik má
segja að KR-ingar gætu ekki
skapað sér eitt einasta opið
færi við mark Akurnesinga. í
seinni hálfleiknum voru KR-
ingar oftast í látlausri sókn,
en þrátt fyrir það áttu þeir
aldrei neitt skot á mark, sem
gagn var að. Helztu hætturnar,
sem mynduðust við mark Akur
nesinga komu úr hornspyrn-
um, en þær fengu KR-ingar
margar í síðari hálfleiknum, og
þá helzt er Gunnar Guðmanns
son tók þær. Aftur á móti
tókst Akurnesingum að skapa
hættu. við KR-markið hvað eft
ir annað, og geta KR-ingar
þakkað það markverði sínum,
Gísla Þorkelssyni, að ekki fór
ver en raun varð á. Hann varði
að minnsta kosti tvívegis í síð
ari hálfleiknum úr upplögðu
skotfæri, fyrir Ingvar Elísson.
En með úthlaupi á réttum tíma
bjargaði Gísli af mikilli
snilli.
Þórður Jóns-
son skoraði
greip knöttinn örugglega á
línu. Þá átti Ingvar skot yfir
rétt á eftir. Seint í fyrri half
leiknum bjargaði Gísli einnig
vel, föstu jarðarskoti frá Helga
Björgvinssyni, alveg út við
stöng niður í horninu, með því
að varpa sér flötum. í seinni
hálfleik átti Þ. Beck fast skot
af alllöngu færi, en í slá og yf
ir og Ellert Schram annað skot
í hliðamet stuttu síðar. Tvíveg
is fengu KR-ingar dæmda auka
spyrnu við vítateigslínu, en
skutu hátt yfir í bæði skipt-
in. Sem sagt leikur KR-inga
í heild, var yfirleitt ónákvæm
ur ,þver og þröngur, alls ólík
ui því sem hefur áður verið í
sumar. Leikgleðin og sigurviss
an virtist víðs fjarri, hvað sem
valdið hefur?
Boðað hafð! v^rið að Guð-
jón Eínarsson myndi dæma
leikinn, en á siðustu stundu
breyttist það. og kom Jörund-
ur Þorsteinsson í hans stað.
Ekki verður annað sagt en að
Jörundi hafi farist dómarastörf
in vel, var vfinleitt ákveðinn
og röggsamiir f <?inu eða tveim
tilfellum má hó s^gja, að hann
Framhald á 11. síðu.
markið
Það var Þórður Jónsson, sem
skoraði þetta eina mark, sem
gert var í leiknum — sigur-,
markið, sem færði Akurnesing
um íslandsmeistaratignina í
sjötta sinn. Það var gert á
10. mínútu leiksins, úr send-
ingum frá Ingvari Elíssyni.
Var skot Þórðar hörkugott og
næsta óverjandi, enda af stuttu
færi. Þórður Þ. hafði áður átt
góðan skalla að marki, úr fyrstu
hornspyrnu leiksins, en Gísli
tefli í
Randers
Á LAUGARDAG lék
knattspyrnulið ÍBA við
úrvalslið Randers í Dan-
mörku, sem er vinabær
Akureyrar. Úrslit leiksins
urðu þau, að jafntefli varð
1 mark gregn 1. Þetta má
teljast góð útkoma fyrir
Akureyringa, þar sem
knattspyrnumenn Rand-
ers eru göðir og bærinn
er mun fjölmennari en
Akureyri, telur um 40
þúsund íbúa.