Kvennablaðið - 07.05.1915, Blaðsíða 8

Kvennablaðið - 07.05.1915, Blaðsíða 8
24 KVENNABLAÐIÐ smáhörn og, aldrei trúi ég því, að það muni veikja hjónabandið, eða leysa upp fjölskyldulífið. Nú eru 30 ár síðan þetta mál var»fyrst tekið fyrir í Stórþinginu. Hugsið yður hvílíkar ógna þjáningar og ranglæti, sem börn og mæður hafa orðið að þola frá þjóðfélagsins slður öll þessi ár, af þvf vér höfum vanrækt skyldur vorar. í Noregi fæðast árlega um 6000 óskilgetin börn, og af þeim deyja á fyrsta árinu hálfu fleiri til- tölulega, en af skilgetnum börnum. Þetta er það, sem þessi lög vilja bæta úr, ekki einungis með því að skerpa meðlagsskylduna, heldur með því að fá það upplýst hver faðirinn sé, og fá ábyrgð- artilfinningu hans vakta. Réttur* bai'usius til fuöui*- nafnins og móður. Um réttarfarslega stöðu óskilgetinna barna var samþykt: Að börn, sem eiga foreldra sem ekki hafa gifst verði f sama réttarfarslegú sambandi við föður- inn og móðurina, að stöku undantekningum frá- skildum, sem lögin ákveða nánar. Barnið hefir sama rétt til ættarnafns föðursins og móðurinnar. En ef það er ekki nefnt ættarnafni föðursins þegar eftir fæðinguna, en tekur það upp síðar, þá gilda sömu reglur og um önnur nafnaskifti. Barnið hefir rétt til að fá uppeldi og mentun eins og faðirinn, eða eftir hans efnum. En ef móðirin er efnaðri, þá eítir hennar mentun og efnum. Bæði foreldrarnir eiga að kosta uppeldi, meðgjöf og fræðslu barnsins. Það skal alast upp eftir stöðu þess foreldrisins, sem betur er sett. Barnið á að vera hjá móðurinni. eða þeim, sem hún trúir fyrir því. Meðlagsupphæðin miðast við efni og ástæður foreldrunna, þannig að þau kosta meðlagið þannig að hvort þeirra greiði tiltölulega jafnt eftir efnum og öðrum ástæðum. Ef annaðhvnrt þeirra getur ekki greitt neitt af kostnaðinum við barnið, þá verður hitt þeirra að bera hann allan, svo fram- arlega sem það álíst fært um það. Kostnaðinn við fæðinguna og sængurleguna á- ásemt óaðfinnanlegri aðhlynningu og hjúkrun, skal faðirinn greiða til móðurinnar sjálfrar. ásamt öllum kostnaði til yfirsetukonu og læknis. Faðirinn skal leggja fram nokkuð af fæðis og húsnæðiskostnaði móðurinnar síðusiu 4 mánuðina fyrir fæðinguna. Þessi styrkur er ákveðinn venju- lega 20,00 ki. mánaðarlrga f borgum, en 15,00 kr. til sveita. Ef faðirinn er ekki fátækur, þá skal styrkurinn hækka samkvæmí hans fjárhagslegu ástæðum. Snmi erfðaréttur, sembarun, fæddra í lijénjitminii. Viðvíkjandi erfðarétti óskilgetinna barna var þetta samþykt: Börn foreldra, sem ekki hafa gifst saman, hafa sama erfðarétt eins og skilgetin börn. Með þessu verður þó engin breyting á hinum núgildandi ákvæðum um óðalsrétt eða ábúðar- rétt skilgetinna barna, þegar um erfðaskifti er að ræða, eftir föður eða föðurfrændur, nema faðirinn hafi skriflega ákveðið að barnið skuli hafa óðals- rétt.og þá fær það hann eftir sömu reglum og það væri skilgetið. Foreldrar óskilgetinna harna, erfa þau á sama hátt og þau væru skilgetin, bæði móðirin og móðurfrændur, og faðirinn og föðurfrændur. Eftir þessum lögum fá því óskilgetin börn sömu réttarfarslegu stöðu og skilgetin. Rétt til ættar- nafna beggja foreldranna, og erfðarétt eftir þau bæði og þeirra frændur, og uppeldisstyrk, og með- lag frá föðurnum hækkað. Auk þess hefir lögunum verið breytt í þá átt að bæta kjör mæðra, bæði giftra og ógiftra. Ef barnshafandi kona getur ekki haft ofan af fyrir sér, og ef hún hefir'ríkisborgararétt 1 Noregi, þá getur hún heimtað styrk af fátækrasjóði, þar sem hún á heima slðustu 6 vikurnar fyrir fæð- inguna. Gift kona getur að eins krafist hjálpar ef mað- ur hennar er dauður, hefir skilið við hana, eða er á einhvern ótilhlýðilegan hátt þess valdandi að þau geta ekki búið saman. Sé einhver móðir svo nauðstödd að hún neyð- ist til að láta barnið frá sér til annara, ef hún fær ekki hjálp, þá getur hún krafist hennar af sveitarsjóði, þar sem hún á heima. Þessi hjálp til mæðra, telst ekki vera fátækra- styrkur. En vegna þess að þessi lög auka útgjöld sveita- og bæjarfélögum, þá skulu þuu ekki ganga í gildi fyr en 1916. En lögin um nafna- og erfðréll ganga pegar i gildi. Geislabrot utan úr dimmunni. Nú, þegar mest öll Norðurálfan logar í ófriðar og orustubáli, sem karlmennirnir hafa hlaðið og kveikt í, þá er fróðlegt að sjá til samanburðar hvað konurnar hafa haft fyrir stafní. Venjulegast segja karl- mennirnir tað þeirra gæti ekki á ófriðar-

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.