Kvennablaðið - 07.05.1915, Síða 12

Kvennablaðið - 07.05.1915, Síða 12
28 KVENNABLAÐIÐ menn sína til þess að vernda föðurlandið. Mæður og meyjar létu syni sína og unn- usta fara frá sér út í dauða eyðilegging- arinnar, án þess að láta sér bregða. Heima unnu þær hvíldarlaust að því, að koma í veg fyrir þá andlegu, líkamlegu og fjárhagslegu neyð, sem ófriðurinn hafði í för með sér. Sumarið leið, haustið kom, nú er mið- vetur. Milljónir manna hafa fallið í valinn. Aldrei sjá þeir heimili sín aftur. Aðrir koma heim sjúkir á líkama og sál. Mestu menningarborgir — heimili, þar sem sönn hamingja bjó — eru eyðilögð. Jarð- . vegur Evrópu rýkur af blóði. Manna- blóð mun verða áburður bylgjandi akra framtíðarinnar í Þýzkalandi, Frakklandi, Belgíu og Rússlandi. Milljónir kven- hjartna loga af angist. Engin tunga heimsins er svo auðug að orðum, að hún geti lýst þessum þjáningum í allri þeiri’a dýpt. Á þetta stríð að halda áfram? Evrópu, konur — hvar eru raddir yðar? Eruð þér einungis sterkar í þvi að þola og líða? Getur ekki jörðin, sem rýkur af mannablóði, miljónir sjúkra líkama og sálna manna yðar, sona og unnusta, hörmungar þær, sem kyn- systur yðar verða að líða, — getur ekki alt þetta vakið yður til að hefja upp brennandi mótmæli. í Suðuriöndum hafa karlmenn komið saman til þess að tala um frið. í Norðurlöndum hafa karlmenn komið saman til að vinna að friði. Evrópu konur, hvar er rödd yðar, sem þér áttuð að hefja til sá friði i kring um yður. Látið þá ekki hræða yður, sem segja, að það sé vegna veikleika yðar að þér óskið friðar, að þér munuð ekki stöðva hinn blóðuga gang sögunnar með mótmælum yðar. Reynið að minsta kosti að grípa i hið blóðuga hjól tímans með öllum þeim styrkleika, kjarki og mannúð, sem sæmir móðureðli yðar, þegar þér sjáið börn yðar í óendanleg- um hörmungum og lífsháska. Komið þér saman í suðri, eða norðri, — mótmælið þér af öllu megni, allri yðar sál, þessum ófriði, sem myrðir þjóðirnar, og snúið svo aftur heim til föðurlands og heimkynna yðar og gegnið skyldum yðar, sem konur og mæðui', sem verðir sannrar menningar og mannúðar«. — — Önnur þýsk kona skrifar: »Alt af geysar stríðið. Daglega krefst það nýrra blóðfórna. 7 mánuðir eru liðnir undir þessu æðistrylta ófriðarmei’ki. Húsfreyjur og mæður Evrópu! Ætlið þér lengi að þola að eiginraenn og synir yðar — feður barna yðai’, limlesti og myrði hver annan. Sannlega tökum vér mikla sekt á oss, bæði nú og í framtíðinni, af því vér höf- um ekki allar sameinað oss i einu him- inhrópandi mótmælahrópi til karlmann- anna: vHœttið þessum trylta hildarleik, hættið að myrða hver annan. Vér mæð- ur Evrópu viljum ekki þola það lengur. Vér sem höfum fætt yður í heiminn með þjáningum — vér heimtum frið. Vér höfum rétt og heilaga skyldu mæðra og eiginkvenna til að krefjast þess að synir vorir og eiginmenn finni önnur ráð til þess að jafna deilumál sín, en þessa skelfilegu stórslátrun. Húsfreyjur og mœður Evrópu! Þér hafið enn þá svo rnikið vald, sem þér hafið ekki einu sinni þekt sjálfar. Notið það. Nú er ekki lcngur tími til að koma í veg fyrir þessar hörmungar. Nú er tími til að græða sárin, til að lina þján- dngarnar. til að stöðva manndrápin. Nú hrópar vor stærsta köllun og heilagasta skylda, á oss til þess að hindra áfram- hald eyðileggingarinnar. Tökum allar saman höndum, frá austri og vestri, norðri og suðri, Þjóðverjai', Austurrikismenn, Ungverjar, Serbar, Rúss- ar, Frakkar, Englendingar, Tyrkir, og hvað sem þjóðirnar heita nú allar. Mæður og eiginkonur: Látum oss hrópa til allra stjórna vorra: »Vér mæður og húsmæður Evrópu, vér þolum ekki lengur þessi gengdarlausu

x

Kvennablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.