Lögberg-Heimskringla - 01.08.1963, Side 1
Högberg; - ^etmskrmgla
Stofnað 14. jan., 1888 Stofnuð 9. sept.. 1888
77. ARGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 1. AGÚST 1963 NÚMeOÍ
FJÖLMENNIÐ Á ÍSLENDINGADAGINN Á GIMLI 5. ÁGÚST
Fyrsti íslendingadagurinn
í Vesturheimi
Þótt við nefnum íslendinga-
daginn á Gimli 74. þjóðhátíð
íslendinga í Vesturheimi þá
er það ekki rétt að öðru leyti
en því, að síðan 1890 hefir
þjóðhátíðir verið haldnar
samfellt ár hvert og stundum
á fleiri en einum stað. Fyrsti
þjóðhátíðar dagurinn í Vest-
urheimi var haldinn í Mil-
waukee 2. ágúst 1874 í minn-
ingu þúsund ára byggðar Is-
lands. Það mætti því segja
með nokkrum rétti að íslend-
ingadagurinn í Norður-Ame-
ríku ætti níræðisafmæli á
morgun — föstudaginn 2.
ágúst. í tilefni þess birtum
við tvær frásagnir um þetta
hátíðahald, önnur eftir frú
Láru Bjarnason, er Miss
Theodora Herman lét blaðinu
góðfúslega í té og hin eftir
séra Pál Þorláksson, endur-
prentuð úr blaðinu Norður-
fari á Islandi (janúar 1875).
Þjóðhátíðin í Milwaukee 1874
Efíir fylgjandi frásögn er lekin upp úr úidræiii af dag-
bók móður minnar Mrs. Láru Bjarnason — efiir hennar
eigin handriii. — Theodóra Hermann.
Þann 7. júlí 1874 komum
við til Milwaukee, Jón 'Ólafs-
son, „ritstjóri“ og Páll Björn-
son (Péturssonar alþingis-
manns) sóttu okkur á járn-
brautarstöðina og fóru með
okkur heim til Ólafs Ólafsson-
ar frá Espihóli í Eyjafirði, og
konu hans Ólafar, sem mér
bráðum varð hlýtt til.
Það fólk sem mest varð á
vegi okkar þennan tíma, auk
hinnar umgetnu var Þorlákur
Jónsson, frá Stóru Tjörnum,
Kona han Lovísa Neilsen (frá
Húsavík) og börn þeirra, Páll,
Rrvunveig, Björn, Valgerður
ög Haraldur, kona hans,
María (frá Ljósavatni), og
Stefán bróðir hennar, Friðjón
Friðriksson og kona hans,
Guðný Sigurðardóttir frá
Harðbak, hjónin Jónas Jóns-
son (forseta bróðir) og Krist-
rún Jónsdóttir frá Elliðavatni
í Gullbringusýslu, Einar
Bjarnason, kaupmaður úr
Reykjavík (familían upp á 13
eða 14 manns), Árnabjarni
Darlene Erickson, hirðmey
Sveinbjörnsson, bróðir Svein-
björns, componista í Edin-
burgh, Hans Thorgrímsen frá
Eyrabakka, Sigurjóna Laxdal
(sem alla æfi reyndist okkur
góð), Jón Þórðarson og kona
hans Rósa, sem síðar voru vel
þekkt, víða meðal landa, Jón
Halldórsson, sem síðar var
Fjallkonan, Mrs. Guðrún Sievens, Gimli
mörg ár í eða nærri Lincoln,
Nebraska, Carólína Dalman,
Jóhanna Skaftadóttir frá
Reykjavík.
Jónas Jónsson og Kristrún,
kona han voru fyrsta fólkið
sem við heimsóttum (8. júlí)
og var sama kvöld fundur í
húsi þeirra, sem Páll Thor-
laksson, hafði kallað saman til
að ræða um nýlendustofnun í
Wisconsin, fyrir íslendinga.
Uppástungan var feld eftir
nokkurt þras.
Næsta kvöld var enn hald-
inn fundur um þúsund ára
hátíðahald 2. ágúst og kosin
nefnd í málinu. Friðjón Frið-
riksson, Haraldur Þorláksson
og ég, þóttist ég hafa nóg að
hugsa um júlí mánuð út, og
var með áhyggjur fyrir því að
hátíðarhaldið yrði okkur til
minkunnar.
12. júlí prédikaði Páll Þor-
láksson í Norsku kirkju
Geelmuydeu prests og léði
hann okkur hana til söng-
æfinga hvenær sem væri, og
'svo 2. ágúst. Nefndin hafði
fundi við og við.
Konur skyldu vera svo
margar sem gætu í húu eða
skautbúningi, karlmenn tveir,
í stuttbuxum og skotthúfu
búningi þeim sem Sigurður
málari Guðmundsson hafði
komið upp í móðinn á íslandi,
skyldu ganga á undan með
íslenzka flaggið (fálkinn) og
Amerikanskt flagg.
Lundur spölkorn frá var
fenginn og skyldi þar setja
upp ræðupall, skreyttur laufi
og dúkum. Þessar og fleiri til-
lögur okkar nefndarinnar
voru samþykktar, á fundi sem
á voru 29 manns, og var þar
safnað ögn af peningum til að
Lynda Slevens, hirðmey
bera kostnaðinn.
2. ágúst upprann kaldur og
skýjaður og gaf þannig ekki
miklar vonir um skemmtun.
Við fórum snemma morguns
frá herbergjum okkar í Jeff-
erson St. og tókum með okkur
allt sem brúka þurfti til dags-
ins, gengum 2—3 mílur að
Framhald á bls. 2.
Séra Krisiján Róbertsson John J. Arnason
Flytur „Minni íslands" Forseti dagsins
Mrs. D. E. M. Allen
Sólóisti dagsins
Erlingur Eggertson
Flytur „Minni Kanada"
Hjörtur Pálsson
Flytur frumort kvæði