Lögberg-Heimskringla - 01.08.1963, Síða 8
8
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 1. ÁGÚST 1963
Úr borg og byggð
Ágæt skemmtun
í síðasta blaði var birt
skemmtiskrá íslendingadags-
ins á Gimli og ber hún með
sér, að mjög hefir verið
vandað til alls í sambandi við
daginn og að þar muni verða
gaman að vera. Einn snjall-
asti ræðumaður íslands séra
Kristján Róbertsson, sem nú
þjónar íslenzku söfnuðunum í
Argyle, mælir fyrir minni
íslands, þeir sem hlýddu á
erindi hans á Frónsmótinu í
vetur, eða lásu það í Lögbergi-
Heimskringlu, munu ekki
vilja missa af ræðu hans.
Ræðu flutningur hans er með
ágætum.
Hjörtur Pálsson, bókavörð-
ur íslenzka safnsins við Mani-
toba háskólann flytur frum-
ort kvæði og Erlingur Eggert-
son lögmaður mælir fyrir
minni Kanada en hann er
skýr og skorinorður ræðu-
maður.
Fjallkona dagsins Guðrún
— Mrs. Lawrence Stevens
dóttir Mr. og Mrs. B. J. John-
son, flytur ávarp á íslenzku.
Evelyn — Mrs. D. E. M. Allin,
dóttir Mr. og Mrs. T. R.
Thorvaldson, syngur lög við
íslenzka texta. Hún er gædd
yndislegri söngrödd. John J.
Arnason mun stjórna hátíð-
inni skörulega eins og hann
gerði í fyrra. Allt er þetta
ungt fólk af þriðju kynslóð
Islendinga hér á landi.
íslendingar á Gimli og
byggðunum þar nyðra hafa
lengi átt góða og vinsamlega
sambúð við Ukraníumenn,
það fer því vel á því að þeir
hafa boðið þeim að taka þátt
í hátíðinni með kórsöng, en
Ukraníumenn eru taldir góðir
söngmenn.
Margt fleira verður til
skemmtunar þennan dag.
Margir hafa mesta ánægju af
því að skrafa við gamla vini,
sem þeir hitta e.t.v. aldrei
nema þennan eina dag á ár-
inu. Sennilega verður þarna
statt margt af þvi fólki, sem
fór til Islands í sumar, og er
þá hægurinn hjá að leita
frétta frá því um frændur og
vini á ættjörðinni.
☆
Mr. og Mrs. W. S. Sawyer
frá St. Vital eru nýkomin
heim úr skemmtiferð til Van-
couver. Á leiðinni heim komu
þau við hjá foreldrum Mrs.
Sawyer í Mozart, Sask. —
Mr. og Mrs. G. D. Grimson
og slóust þau í ferðina með
þeim hingað. Þau gera ráð
fyrir að dvelja hjá dóttur
sinni í fjórar vikur og heim-
sækja vini í North Dakota
áður en þau fara heim.
Leiðrétting
í dánarminningu Roy Nel-
son er birtist í blaðinu 4. júlí,
er sagt að hann eigi 5 bræður
á lífi, en þeir eru 6; sá sjötti
er Emil Nelson í South
Dakota.
Fyrsta gjöfin til
lýðháskóla í Skálholti
Fyrsta gjöfin til lýðháskól-
ans, sem kirkjan ætlar að
reisa í Skálholti, er frá vestur-
íslenzkum hjónum, búsettum
í Winnipeg, Guðrúnu Gríms-
dóttur og Ágústi Eyjólfssyni.
Guðrún er fædd og uppalin í
Skálholti, dóttir Gríms Ei-
ríkssonar og Guðrúnar Eyj-
ólfsdóttur, er þar bjuggu og
eignuðust þar 11 börn, en alls
voru börn þeirra fjórtán.
Gjöfin, sem er 20 þúsund
krónur, er gefin til minningar
um þessi hjón. „Ég minnist
foreldra minna“, skrifar frú
Guðrún Grímsdóttir, „sem
guðrækinna og góðra for-
eldra“. Þau bjuggu góðu búi í
Skálholti og komust vel af
þrátt fyrir mikla ómegð,
„reyndu eftir megni að láta
okkur ekki vanta það nauð-
synlegasta“. Hið eina, sem frú
Guðrún finnst, að hana hafi
skort í uppvextinum, voru
bækur. „Það hefðu verið góð-
ar fréttir á þeim árum að
heyra um skólabygginguna,
sem nú á að fara að reisa“,
skrifar Guðrún.
Þessi höfðinglega gjöf aldr-
aðra hjóna, sem dvalizt hafa
langan aldur vestan hafs, er
ánægjuleg og uppörfandi
byrjun á stuðningi, sem þessi
áformaða stofnun á vafalaust
eftir að njóta frá góðum Is-
lendingum.
Sigurbjörn Einarsson.
Mgbl. 21. júlí.
„Allgöfqastur bær
á öllu íslandi"
í dag munu hugir íslend-
inga beinast að Skálholti. Sú
merka athöfn, sem þar fer
fram, rifjar upp hinn mikla
þátt, sem Skálholt á í íslenzkri
sögu. Ekki er sízt ástæða til
í því tilefni að minnast
nokkuð fyrstu biskupanna
þar.
1 fornum heimildum segir,
að Teitur, sonur Ketilbjarnar
ins gamla að Mosfelli, hafi
um tvennt verið mikill gæfu-
maður. „Hann var sá gæfu-
maður, að hann byggði þann
bæ fyrst, er í Skálaholti heitir
og er nú allgöfgastur bær á
öllu Islandi. Sú var önnur
gæfa hans, að hann átti að
syni Gissur inn hvíta, er með
kristni kom til Islands og bjó
í Skálaholti eftir Teit, föður
sinn“.
Gissur hvíti var einn helzti
brautryðjandi kristninnar á
Islandi. Hann var annar að-
alleiðtogi kristinna manna, er
kristni var lögtekin á Alþingi.
Hann vann síðan að eflingu
kristninnar á allan hátt.
Hann átti margt mannvæn-
legra barna, en mest traust
batt hann við Isleif son sinn.
Honum „fylgdi hann utan og
seldi hann til lærlingar abba-
dísi einni“, í Herfurðu á Sax-
landi. „Isleifur kom svo til Is-
lands, að hann var prestur og
vel lærður“. Eftir heimkom-
una settist hann að hjá föður
MESSUBOÐ
Fyrsta lúterska kirkja
Sr. V. J. Eylands, Dr. Theol.
Heimili 686 Banning Street.
Sími SUnset 3-0744.
Guðsþjónustur á hverjum
sunnudegi:
A ensku: kl. 9.45 f. h
11.00 f. h.
Á íslenzku kl. 7 e. h.
Sunnudagaskóli kl. 9.45 f. h.
sínum. „Gissur hvíti lét gera
hina fyrstu kirkju í Skála-
holti og var grafinn að þeirri
kirkju, en Isleifur bjó í Skála-
holti eftir föður sinn.“
Tíminn 21. júlí.
Frú Guðrún Brynjólfsson
ekkja séra Eiríks S. Brynjólfs-
sonar, Vancouver, B.C., flutti
til íslands fyrir þremur vik-
um ásamt börnum sínum,
einni dóttur og tveimur son-
um. Fjölskyldan mun verða
til heimilis í Reykjavík fyrst
um sinn.
☆
Alberi G o o d m a n frá
Reykjavík kom vestur um
haf í maí með hóp leiðtoga
verkamannnasamtakanna á
íslandi, sem var boðið vestur
af stjórnarvöldum Bandaríkj-
anna. Þeir ferðuðust víða frá
hafi til hafs og komu til helztu
stórborga landsins. Albert
kom hingað til Winnipeg í
heimsókn til systur sinnar og
manns hennar, Mr. og Mrs.
Steindór Jakobson. Hann
lagði af stað heimleiðis á
sunnudaginn.
☆
Sieindór Jakobson varð
sjötugur á mánudaginn 29.
júlí. Hann rak lengi verzlun
hér í borg og hefir tekið mik-
inn þátt í íslenzkum málum,
var meðlimur Karlakórs Is-
lendinga meðan hann var við
líði og hefir verið í fjölda
mörg ár í íslendingadags-
nefndinni. Vinir hans árna
honum heilla í tilefni þessa
merkisafmælis.
Gifling
Carolyn, dóttir Mr. og Mrs.
S. H. Sigurgeirson, Hecla,
Man. og Rhéal, sonur Mr. og
Mrs. Julien Teffaine, voru
gefin saman í hjónaband í St.
Louis de France Chapel í St.
Boniface á laugardaginn 27.
júlí. Sóknarprestur þeirrar
kirkju framkvæmdi vígsluna
en Mrs. D. E. M. Allen söng
tvö giftingarlög, Mrs. M.
Toohey var við hljóðfærið.
Fjölmenn og vegleg veizla
fór fram í Diplomat Motor
Hotel. Þar var mælt á þremur
tungum. Helgi K. Tomasson
fyrir minni brúðarinnar á
ensku, íslenzku og fáein orð
á frönsku; sóknarpresturinn
á frönsku og ensku og séra
Skúli Sigurgeirson á ensku
og íslenzku og brúðguminn á
ensku og frönsku. Brúðhjón-
unum bárust fjöldi heilla-
skeyta. Brúðguminn stundar
lögfræðinám; heimili ungu
hjónanna verður í Winnipeg.
Búkolla
Framhald frá bls. 5.
mín?“ „Taktu hár úr hala
mínum og legðu það á jörð-
ina,“ segir hún. Síðan segir
í gatið en það var of þröngt,
svo hún stóð þar föst, og varð
loks að steini í gatinu, og þar
er hún enn. En karlsson komst
heim með Búkollu sína, og
urðu karl og kerling því
ósköp fegin.
Brezki flugherinn auglýsti
eitt sinn eftir fallhlífaher-
mönnum á eftirfarandi hátt:
Það er hættulegra að ganga
yfir götu í London en að
stökkva með fallhlíf úr flug-
vél. Skrifstofunni barst m.a.
þetta svar: Þar sem ég bý
hinu megin við götuna, þori
ég því miður ekki að koma
yfir og bjóða mig fram.
hún við hárið: „Legg ég á og
mæli ég um, að þú verðir að
svo stóru fjalli, sem enginn
kemst yfir, nema fuglinn
fljúgandi." Varð þá hárið að
svo háu fjalli, að karlsson sá
ekki nema upp í heiðan him-
ininn.
Þegar skessan kemur að
fjallinu, segir hún: „Ekki
skal þér þetta duga, strákur.“
„Sæktu stóra borjárnið hans
föður míns, stelpa,“ segir hún
við minni skessuna. Stelpan
fer og kemur með borjárnið.
Borar þá skessan gat á fjallið,
en varð ofbráð á sér, þegar
hún sá í gegn, og tróð sér inn
ALÚÐAR
ÁRNAÐARÓSKIR
til íslendinga á þjóð-
minningardegi þeirra
JOHNSON'S
STORE
N. R. Johnson
Axel Johnson
Oscar Johnson
PH. 762-5361
LUNDAR MANITOBA
EMIL'S
Barber. Shop
80 CENTRE ST.
GIMLI
MAN.
Wishes to thank the lcelandic
people of Riverton, Arborg and
Gimli for their patronage during
the years.
Best Wishes Always:
EMIL
CONGRATULATIONS
to our many lcelandic
Customers and Friends
SENKOW'S
GROCERY &
SMALL WARE
98 3rd AVE.
Ph. 418 Gimli, Mon.
COMPLIMENTS OF
VETERAN#S GARAGE
Masjey-Ferguson Soles & Service
PHONE 7-6245 — RES. PHONE 7-6573 ARBORG, MAN.
Compliments of . . .
SNYDAL ★ ★ ★ ★
PLUMBING & HEATING CONTRACTOR
For the utmost comfort . . .
SNYDAL-I-Z-E
. . . your Plumbing and Heating
Phone 482-5528
Jock Snydal
P.O. Box 40
446 Main St., Selkirk
S. A. SIGURDSON & SON
Imperiol Esso Agent — Esso Service Station
Internotionol Trucks — Soles & Service
ARBORG, MAN.
PHONE 7-6247