Lögberg-Heimskringla - 01.08.1963, Side 9
Compliments of . . . Compliments of . . .
Jo - Ann T T T Jo - Ann
ShojppsL ShojppSL
705 Sargenl Ave. JuUvjdMvj - X±11/11V1oIy1v1IMvjL/í\ 705 Sargenl Ave.
Specializing in all types of Specializing in all types of
Beauty Culture Beauty Culture
Phone SUnsel 3-6475 Phone SUnsel 3-6475
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 1. ÁGÚST 1963 9
Dr. Richard Beck:
Brautryðjandinn og vakningar
maðurinn Baldvin Einarsson
Nú líður senn að Islend-
ingadeginum á Gimli, fjöl-
mennustu árlegri þjóðminn-
hátíð vor íslendinga vestan
hafs. Eins og aðrar slíkar há-
tíðar vorar lengi fram eftir
árum, er sá íslendingadagur
tengdur minningunni 2. ágúst
1874, þeim sögulegu tímamót-
um, þegar íslendingar fengu
sína eigin stjórnarskrá á
þúsund ára afmæli byggðar
íslands. Var þá merkum
áfanga náð í harðsóttri sjálf-
stæðisbaráttu þjóðar vorrar,
þótt enn væri langt á leiðar-
enda á þeirri braut, og loka-
sigurinn eigi unninn fyrri en
með endurreisn lýðveldisins
17. júní 1944. En sú takmark-
aða sigurvinning, sem heima-
þjóð vor fagnaði með hátíða-
höldum um land allt 2. ágúst
1874, og Islendingar vestan
hafs samdægurs í Milwaukee,
Wisconsin, var eigi að síður
stórt spor fram á við í frels-
isbaráttu þjóðarinnar. Sú
sigurvinning var vitanlega
árangur af ótrauðu og fórn-
fúsu starfi fjölmargra, og
verður oss þá löngum, að
verðugu, fyrst fyrir að minn-
ast Fjölnismanna og foringj-
ans mikilhæfasta og áhrifa-
mesta í stjórnfrelsisbaráttu
íslendinga, Jóns Sigurðssonar
forseta. Hins vegar sæmir oss
eigi, þegar sú saga er rakin,
að gleyma þeim manninum,
er um margt varðaði veginn
í sjálfstæðisbaráttu þjóðar
vorrar, brautryðjandanum og
vakningarmanninum, Baldvin
Einarssyni.
Grundvallandi starfsemi
hans í íslenzkum þjóðmálum
hefir mér orðið enn ljósari
heldur enn áður við lestur
nýrrar bókar um hann, sem
jafnframt er fyrsta rækilega
rannsóknin á starfi hans, en
það er bók Nönnu ólafsdóttur
Baldvin Einarsson og þjóð-
málastarf hans, sem var eitt
af ritum Hins íslenzka Bók-
menntafélags fyrir árið 1961.
Var það hið þarfasta verk að
taka þjóðmálastarf hans til
eins ítarlegrar athugunar og
þar er gert, sem jafnframt er
byggð á víðtækum og traust-
um heimildum. Einnig er
iþetta rit mjög skilmerkilega
samið og hið læsilegasta.
Hér er fyrst rakinn æfiferill
Baldvins, lýst uppvexti hans
og menntun, djúpstæðum á-
hrifum, sem hann varð fyrir
á Kaupmannahafnarárum sín-
um, ásamt þátttöku hans þar í
borg í félögum, sem snertu
Island og íslenzk málefni, er
var honum ómetanlegur und-
irbúningur hins merka og
margþætta þjóðmálastarfs
hans, ennfremur sagt frá
hjúskaparlífi hans og afkom-
endum, og að sjálfsögðu
hörmulegum dauðdaga hans
langt um aldur fram, en hann
dó, eins og kunnugt er, af af-
leiðingum bruna í híbýlum
hans.
Næst kemur ítarleg lýsing
á hinu gagnmerka ársriti
Baldvins Ármann á Alþingi,
en útgefandi auk Baldvins var
síra Þorgeir Guðmundsson
Jónssonar prests á Staðastað.
Var hér um að ræða þjóðlegt
og fræðandi vakningarrit,
Compliments of
HECLA
TRANSFER
Serving Hecla and
Gull Harbour
WINNIPEG TERMINAL
MANITOBA TRUCK
DEPOT
308 Fountain St.
Phone WH 3-7659
Hecla R2
Compliments of
COGHILL'S
FOOD MARKET
GROCERIES AND MEATS
Fresh Fruits & Vegetables
Buy ond Sove at your Cash
and Carry Self-Serve Store
PHONE 79-381
RIVERTON MANITOBA
sem varð næsta víðlesið á
Deirra tíma mælikvarða, enda
var það vel við alþýðuskap
bæði um efni og meðferð
oess, og vekjandi áhrif ritsins
að sama skapi, þótt svo væri
um Baldvin sem marga aðra
brautryðjendur og sáðmenn á
akri þjóðfélagsins, að víða féll
sæðið í grýtta jörð.
Itarlegir kaflar bókarinnar
fjalla síðan um merkileg rit-
störf og sambærilegar tillög-
ur Baldvins um uppeldismál,
skólamál, stéttarþingin í Dan-
mörku og þátttöku íslands í
þeim, atvinnumál og verzlun-
armál, en öll þessi mál lét
hann sig miklu skipta, rök-
ræddi þau í Ármanni eða
öðrum ritum sínum.
Einnig er hér, eins og vera
ber, sérstakur kafli um
„Stjórnmálaskoðun Baldvins
Einarssonar“, og leiðir höf.
gild rök að því, ekki sízt með
tilvitnunum til einkabréfa
hans, „að Baldvin hafði að-
hyllzt þátttöku fólksins í
stjórnarefnum og verið and-
stæður einveldinu sem stjóm-
arformi.“ Hitt er ennfremur
laukrétt athugað hjá höf., að
hin ströngu prentfrelsislög
þeirrar tíðar gerðu Baldvin
ókleyft að hreyfa þeim skoð-
unum sínum beinlínis á
prenti. Ætla ég, að niðurstaða
Nönnu ólafsdóttur um stjórn-
málaskoðanir hans sé á
traustum rökum reist og
fjarri því að vera ofmæli:
„Ég hygg að telja megi Bald-
vin standa jafnfætis forustu-
sveit menntamanna um
stjórnarfarslegar umbætur
um 1830.“
Afstaða hans til stéttaþing-
anna og tillaga hans um sér-
stakt þing fyrir ísland bera
því einnig órækan vott, hvar
hann stóð í sveit í stjórnmál-
unum, en um stéttaþingin
skrifaði hann, auk ritgerðar
í ÁrmannL mjög merkilegan
ritling á dönsku, sem vakti
verðskuldaða athygli og fékk
góðar viðtökur bæði erlendis
og heima á íslandi. En það,
sem fyrir Baldvin vakti, var
í rauninni endurreisn Alþing-
is á íslandi, eins og fram kem-
HAMINGJUÓSKIR . . .
Halldor Sigurdson & Son
LIMITED
CONTRACTORS AND BUILDERS
1410 Erin St. WINNIPEG
SPruce 2-6860
Congratulations,
to our many lcelandic Friends on
their annual Celebration
THORSTEINN PALSSON
Phone 5639 Lundar, Man.
REGISTERED and COMMERCIAL HEREFORDS
Introducing our new Herd Sires
ALMELDEAN VERN-5S-746235—bred by A. O. Henuset, Pipestone,
Man. (In whom we own half interest with A. 0. Henuset.)
and
AQUADALE VERN-18S-765681—-bred by L. H. Henuset, Pipestone.
Speciol thanks to our buyers, ogain the mojority being repeoters.
We wi*h them every tuccest.