Lögberg-Heimskringla - 23.07.1964, Blaðsíða 3

Lögberg-Heimskringla - 23.07.1964, Blaðsíða 3
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 23. JÚLÍ 1964 3 GOVERNMENT HOUSE Fylkissijórinn, Hon. Errick F. Willis og Mrs. Willis hafa boðið forsæiisráðherrhjónum íslands og syni þeirra að dvelja hjá sér meðan þau verða í Winnipeg. Á myndinni sézi fylkisijóra fjölskyldan á balanum fyrir framan heimili siii. Vestur-íslenzkir bæjarráðasmenn, þingmenn, ráðherrar og dómarar Heiðursgestur og aðalræðu- maður á Islendingadeginum á Gimli 3. ágúst 1964, verður dr. Bjarni Benediktsson for- sætisráðherra íslands. Hann er lögfræðingur að menntun, lauk prófi í lögfræði við Há- skóla íslands, stundaði fram- haldsnám í stjórnfræði aðal- lega við háskólann í Berlín og var prófessor í lögfræði við Háskóla íslands 1932—1940. Hann tók snemma að gefa sig að stjórnmálum, var í bæjaráði Reykjavíkur 1934— 47 og borgarstjóri 1940—47. Hann hefir átt sæti á Alþingi íslendinga óslitið frá því á árinu 1942, var skipaður dóms- og utanríkisráðherra 1947—53. Er hann lét af starfi utanríkisráðherra var hann skipaður dóms- og mennta- málaráðherra og gengdi þeim embættum þar til 1956. Árið 1959, er sjórnmála- flokkur hans komst aftur til valda, var hann skipaður dóms- kirkju- og iðnaðarmála- ráðherra, og 14. nóvember 1963 varð hann forsætisráð- herra ríkisstjórnar íslands. Mörgum íslendingum virð- ast lög- og stjórnfræði í blóð borinn, enda er Alþingi þeirra elzta löggjafaþing í heimi — stofnað 930. Og skömmu eftir að íslendingar settust að í ó- byggðum við Winnipegvatn, höfðu þeir samið stjórnarlög fyrir Nýja ísland, sem gengu í gildi 14. janúar 1877. Mun það framtak nýkominna inn- flytjenda einstætt í sögu Canada. Ef tekið er tillit til hve ís- lendingar eru fáir hér í landi í samanburði við aðra þjóð- flokka má segja að þeir komi allmikið við stjórnarsögu Canada. Vegna þess að þetta eintak Lögbergs-Heimskringlu er helgað að miklu leyti heimsókn hins áhrifamikla stjórnmálamanns dr. Bjarna Benediktssyni þykir okkur fara vel á því að rifja upp nöfn nokkurra vestur-ís- lenzkra stjórnmálamanna í Canada. Bæjarráðsmenn Fjöldi Islendinga hafa átt sæti í sveita- og bæjarráðum víðsvegar og hafa verið odd- vitar og bæjarstjórar; því miður gefst ekki tími til að safna nöfnum þeirra, en þó mætti nefna að S. V. Sigurd- son hefir verið bæjarstjóri í Riverton í mörg ár og bæjar- stjórar á Gimli hafa víst allir verið íslendingar og nú skip- ar kona það sæti í fyrsta sinn — Mrs. Violei Einarson; Stefán Oliver var og lengi bæjarstjóri í Selkirk. íslendingar hafa átt menn í bæjarráði Winnipegborgar frá aldamótum fram á síðustu ár. Ekki vitum við hve lengi sumir þeirra gengdu þeim embættum, en nöfnunum fylgja kosninga árin. Árni Friðriksson, um alda- mótin. Árni Eggertson 1906. Jón J. Vopni, 1916. Paul Bardal, 1932, endurkos- inn 5 sinnum. Victor B. Anderson, 1939, 18 ár í bæjarstjórn. Faul Goodman, 1955, endur- kjörinn tvisvar. Jón Samson, 1959, tvö kjör- tímabil. Valentinus Valgardsson, skóla- stjóri var lengi í bæjarráði Moose Jaw borgar. J. Ragnar Johnson konsull var um skeið í bæjarráði Torontoborgar. Frank Frederickson, Hockey kappinn frægi mun nú eiga sæti í bæjarráði Vancou- verborgar. Fylkisþingmenn í Maniloba (kosningaárin og kjördæmin) Sigtryggur Jónasson, 1896 aftur 1907 — St. Andrews og Gimli. Baldwin L. Baldwinsson, 1899, 1903, 1910 — Gimli. Thomas H. Johnson, 1907, 1914, 1915, 1920 — Winnipeg. Sveinn Thorvaldson, 1914 — Gimli. Skúli Sigfússon, 1915, 1922, 1927, 1932, 1940 — St. George. Séra Albert Kristjánsson, 1920 — St. George. Guðmundur Fjeldsted, 1920 — Gimli. Ingimar Ingjaldson, 1927 — Gimli. Einar S. Jónasson, 1932 — Gimli. Miss Salome Halldórson, 1936 — St. George. Oddur Ólafson, 1936 — Rupertsland. Paul Bardal, 1940, 1945 — Winnipeg. G. S. Thorvaldson, 1940, 1945 — Winnipeg. Chris Halldórson, 1945, 1949 — St. George. Dr. S. O. Thompson, 1949, 1953, 1956 — Gimli. Elman Guttormson, 1956, 1958, 1959, 1962 —- St. George. Dr. George Johnson, 1958, 1959, 1962 — Gimli. John Christanson, 1959 — Portage la Prairie. Oscar Björnson, 1959, 1962 — Lac du Bonnet. íslenzkir ráðherrar í Maniioba Thomas H. Johnson — skip- aður ráðherra opinberra verka (Public Works) 1915 og dómsmálaráðherra 1920. Fyrsti íslenzki ráðherrann í Canada. George Johnson, M.D. skip- aður heilbrigðismálaráðherra 1959; menntamálaráðherra 1963. John Christianson, velferð- armálaráðherra 1961. Fylkisþingmenn í Saskatchewan Wilhelm H. Paulson, Wyn- yard — 1912, margoft endur- kosinn. Ásmundur Loptson, Salt- coats — 1917, margoft endur- kosinn. Mervin Johnson, Kinders- ley, 2—3 kjörtímabil. Bryan H. Bjarnason, Kel- vington, — 1964. íslenzkur iorsælisráðherra í Briiish Columbia Byron Johnson kjörinn á fylkisþingið 1933, 1942, 1946, New Westminster. Varð for- sætisráðherra 29. des. 1947, fyrstur íslendinga utan ís- lands. Sambandsþingmenn í Otlawa H. Marino Hannesson — Selkirk, 1925. Joseph T. Thorson — 1926 Wpg., 1935, 1940, Selkirk. William Benedickson — Rainy River 1945, endurkos- inn 6 sinnum. Eric Stefanson, Selkirk, 1958, 1962, 1963. Fyrsii íslenzki Senaiorinn Gunnar S. Thorvaldson var skipaður senator í efrideild Canadíska þjóðþingsins 1958. íslendingar í ráðuneyii Canada Joseph T. Thorson, ráð- herra National War Services 1940. Fyrsti íslenzki ráðherr- ann í stjórn Canada. William Benedickson til heimilis í Kenora, Ont., var skipaður ráðherra Mines and Technical Surveys og er hann sá eini nú í ráðuneytinu, sem er af öðrum en engil-saxnesk- um eða frönskum ættum. íslenzkir dómarar skipaðir af Canadasijórninni Walter J. Lindal, héraðs- réttardómari í Minnedosa, Man., 1942. Joseph T. Thorson, forseti fiármálaréttar Canada (Ex- chequer Court) 1942. Hjálmar A. Bergman, af- rýunarréttardómari í Mani- toba (Court of Appeal). Fyrsii V.-íslenzki sendiherrann Jón Pétur Sigvaldason var skipaður ambassador Canada til Indonesia 1960 og am- bassador Canada til íslands og Noregs 1964. * * * Vafalaust vantar einhverja á þennan lista og þætti okkur vænt um ef fólk tilkynnti okkur það. Því miður höfðum við ekki tíma í þetta sinn að leita uppi nöfn íslenzkra stjórnmálamanna í Banda- ríkjunum en væntum að geta bætt úr því seinna. Þetta sýnishorn gefur aðeins til kynna að íslendingar hafa látið sig stjórnmál skipta frá upphafi vega þeirra hér í Canada. — Þeir sem uppi eru, munu fagna því að kynnast æðzta stjórnmálamanni ætt- þjóðar sinnar, íslands. HUGHEILAR ÁRNAÐARÓSKIR til allra íslendinga á þjóðminningardaginn THORVALDSON NURSING HOMES LIMITED 5 and 7 Mayfair Place, Winnipeg, Man. "A COMPLETE NURSING SERVICE" Professional Care in a Home-Like Atmosphere MRS. T. R. (LILJA) THORVALDSON, Matron

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.