Lögberg-Heimskringla - 23.07.1964, Page 6

Lögberg-Heimskringla - 23.07.1964, Page 6
6 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 23. JÚLÍ 1964 SAGA ÍSLENDINGADAGSINS Framfeald frá bls. 5. Árið eftir, 1891, var hátíðin haldin 18. júní í Dufferin Park með sama sniði og áður. Árið 1892 var hátíðin færð aftur til baka til mánudags- ins 1. ágúst og haldin í Elm Park. Báðar þessar samkom- ur voru fjölsóttar enda komu þar fram úrval ræðumanna og skálda, en þó mun fjórði Islendingadagurinn sem hald- inn var hátíðlegur 2. ágúst 1893 vera talinn með þeim allra beztu bæði fyrr og síðar. Það sumar stóð yfir heims- sýningin mikla í Chicago í minningu um 400 ára afmæli Ameríkufundar Christophers Columbusar. Ráðgert var að sendur væri maður frá ís- landi vestur með heillaóskir og sögusannanir um Ameríku- fund íslendinga. Þjóðskáld- inu, séra Matthíasi Jochums- syni var boðið að sækja sýn- ingunna, sem fulltrúa íslands. En að kosta slíka för fékk litlar undirtektir á íslandi. Nokkrir Vestur-íslendingar efndu þá til samskota til að kosta för skáldsins. Séra Matthías kom vestur, flutti sýningarstjóranum í Chicago ávarp og heillaóskir íslenzku þjóðarinnar. Þaðan hélt hann til Argyle- og Dakota-byggða og síðan til Winnipeg. Þar flutti hann ræðu og flutti kvæði á Is- lendingadeginum fyrir minni V.-ísl. og hvatti þá eggjunar- orðum að varðveita íslenzk- una og brýndi það síðan enn betur í Bragarbót sinni er hann sendi þeim vestur. Hann trúði á mátt málsins eins og einhvern kyngikraft: . . . „Það hefir voða þungar tíðir þjóðinni verið guðleg móðir; hennar brjóst við hungri’ og þorsta, hjartaskjól þegar burt var sólin, hennar ljós í lágu hreysi, langra kvelda jóla-eldur.“ o. s. frv. Hann minnist trúarskáldsins á neyðaröld þjóðarinnar: . . . „Hallgrímur kvað í heljarnauðum heilaga glóð í freðnar þjóðir.“ Tungan: , , , „Hún er list sem logar af hreysti lifandi sál í greyptu stáli, andans form í mjúkum myndum minnissaga farinna daga“. o. s. frv. Því miður gefst ekki rúm til að birta allt kvæðið, en skáldið lýkur Bragarbót með þessum ljóðlínum: Særi ég yður við sól og báru, særi ég yður við líf og æru; yðar tungu (orð þó yngist) aldrei gleyma í Vesturheimi munið að skrifa meginstöfum mannavit og stórhug saman! Andans sigur er æfistundar eilífa lífið. Farið heilir! — Heimsókn séra Matthíasar hafði mikil áhrif á V.-íslend- inga. Hann færði þeim hjarta- hlýju engu síður en andagift. Hvorki fyrr né síðar hefir heimsótt þá hugljúfari gestur að heiman. Fyrsia Fjallkonan frú Sigrún Lindal. Ágreiningur Næstu árin reis ágreining- ur um það hvort ætti að halda hátíðina í kringum 2. ágúst eða 17. júní. Ritstjóri Heimskringlu Baldwin L. Baldwinsson mælti með 2. ágúst en ritstjóri Lögbergs, Sigtryggur Jónasson með 17. júní. Stjórnmál og trúmál blönduðust inn í þessa deilu og menn skiptust í tvo illvíga flokka. Fundir voru haldnir sem urðu svo fjölsóttir að hús rúmaði ekki fólkið, talið er að um 1000 manns hafi sótt fund, sem haldinn var í Albert Hall. Við Minnisvarðann Á 75 ára minningarhálíð landnámsins 1950. 17. júní flokkurinn sagði sig úr lögum við hinn flokkinn 1898 og sóttu þjóðminngahá- tíð, sem haldin var í Selkirk 17. júní og árið 1900 sóttu þeir hátíðina í Argyle. Þessar deilur urðu til þess að íslendingadeginum í Winnipeg hnignaði mjög og árin 1903 og 1904 var tvísýnt um framtíð hans. En þó fór svo að deilur þessar lægði fyrir tilstilli góðra manna, og árið 1907 áttu menn úr báð- um flokkum sæti í íslendinga- dagsnefndinni og hefir hátíðin verið haldinn síðan um 2. ágúst. íslendingar í öðrum byggð- um tóku snemma að efna til þjóðminningahátíða og gera það enn og hafa margar þess- ar farið fram um 17. júní leytið. Eftir að hætt var að halda Winnipeg hátíðina handan við ána í Elm Park, fór hún fram í River Park í fjölda- mörg ár, en árið 1932 var á- kveðið að flytja hátíðina til Gimli og halda hana sameig- inlega með Gimlibúum og fer vel á því að hún sé haldinn á þessum söguríka stað — vöggu landnámsins. Hátíðin fer nú fram árlega í hinum fagra skrúðgarði Gimli Park. Fjallkonan Árið 1924 kom fjallkonan fram í fyrsta skipti á íslend- ingedegi vestan hafs og var það á þjóðminningadeginum í River Park. Táknar hún vitaskuld ísland og mælir hún til hinna útfluttu barna sinna. Þykir konum hinn mesti sómi að því að vera valdar fyrir þetta hlutverk. Fjallkonan og hirðmeyjar hennar auka mjög á glæsi- brag dagsins. Fjallkonan er leidd til hásætis. í baksýn er tjöld, sem máluð hafa verið af listmálaranum Árna Sig- urðssyni — myndir af íslenzku landslagi. Tekur þessi upp- settning sig vel út innan grenitrjánna. — íslendinga- dagsnefndin hefir látið prenta bók með myndum af öllum konunum sem komið hafa fram í búningi Fjallkonunnar frá 1924 til 1964, ásamt rit- gerð um Fjallkonuna og verð- ur bókin til sölu á íslendinga- deginum. íslendingar reistu mikinn varða á Gimli í minningu um landnemanna og var hann afhjúpaður með viðeigandi viðhöfn 20. okt. 1935 og síðan hefir Fjallkonan ávallt lagt blómsveig við varðan. í ár leggur forsætisráðherra ís- lands dr. Bjarni Benediktsson einnig blómsveig við varðan. Heiðursgesíir Það eykur ekki lítið á til- breitni og aðdráttarafl há- tíðarinnar ef einn ræðumanna er langt að komin, ekki sízt ef það er nafnkunnur maður frá íslandi, með því er hátíð- in þjóðminningadagur í fyllri skilningi. Hún verður þá einskonar stofnun er samein- ar Islendinga í eitt. Margir allkunnustu menn þjóðarinn- ar hafa verið staddir á ís- lendingadeginum þessi 75 ár að beinni eða óbeinni til- hlutan hátíðarnefndarinnar. Á fyrstu árum hátíðarinnar voru hér ritstjórar við viku- blöðin, skáld og ræðumenn, nýkomnir að heiman, Einar Kvaran, Jón Ólafsson, Gestur Pálsson. Við höfum þegar minst á heimsókn skáldsins Matthíasar Jochumssonar. Hér fara á eftir nöfn nokk- urra gesta úr fjarlægð er hafa flutt erindi eða kvæði á Islendingadeginum: Dr. Valtýr Guðmundsson, 1896. Þorsteinn Erlingsson, skáld, 1896. Jón Helgason, forstöðumað- ur Prestaskólans, síðan bisk- up, 1914. Guðmundur Kamban, leik- ritaskáld, 1916. Einar Jónsson, myndhöggv- ari, 1917. Halldór Hermansson, bóka- vörður, 1920. Einar Benediktsson, skáld, 1921. Dr. Ágúst H. Bj arnason, háskólakennari, 1923. Guðm. Grímson, dómari, 1924. Einar H. Kvaran, skáld, 1925. Gunnar B. Björnson, rit- stjóri, 1928. Séra Benjamín Kristjáns- son, rithöfundur. Dr. Jón S. Árnason, 1931. Séra Ragnar Kvaran, 1933. Hjálmar Björnson, ritstjóri, 1936. Jónas Jónsson, alþingis- maður, 1938. Thor Thors, sendiherra, 1941. Dr. Thorbergur Thorvald- son, 1941. Hendrik S. Björnson, 1942. Séra Pétur Sigurgeirson, 1945. Séra Eiríkur Brynjólfson, 1947. Andrew Danielsson, þing- maður, 1949. Dr. Thorkell Jóhannesson, 1949. William Benedickson, þing- maður, 1951. Séra Einar Sturlaugsson, 1953. Dr. Watson Kirkconnell, 1953. Séra Robert Jack, 1954. Valdimar Björnsson fjár- málaráðherra, 1956. Björn Sigurbjörnsson, akur- yrkjufr., 1956. Séra Benjamín Kristjáns- son, 1957. Steindór Steindórsson, menntaskólakennari, 1958. Joseph T. Thorson, forseti fjármálaréttar, 1959. Dr. Simundur Kjartansson, 1961. Séra Kristján Róbertsson, 1963. Vitaskuld hafa margir heimamenn flutt ræður og kvæði en ekki gefst rúm fyrir öll þau nöfn. Einn merkasti íslendinga- dagurinn sem haldin hefir verið á Gimli var 75 ára há- tíð landnámsins 1950. Full- trúi íslands var Pálmi Hannesson rektor mennta- skólans. Hátíðin hófst með guðsþjónustu sunnudaginn 6. ágúst og svo næsta dag með sama sniði og að venju. Fjall- konan var Mrs. Steinunp Framhald á bls. 7. Gengið að Minnisvarðanum, forseii og karlakór í broddi fylkingar.

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.