Lögberg-Heimskringla - 23.07.1964, Blaðsíða 11

Lögberg-Heimskringla - 23.07.1964, Blaðsíða 11
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 23. JÚLf 1964 11 Gamli bærinn á íslandi sér í hverju orði. Mig lang- aði til að segja Jóni sitt af hverju, sem ýtti við sjálfs- álitinu í honum, en allt sem ég gat sagt, var að þakka fyrir boðið — og neita því. Stundum, þegar maður er glaður og ugglaus, á sér eink- is háttar von, dynja á storm- ar og óveður. Alla æfi verður mér, held ég, minnisstæður síðasti áhyggulausi, og í raun- inni glaði dagurinn, sem ég átti í foreldrahúsum. Við Þor- geir bróðir minn vorum á leiðinni á stekkinn, hlógum og spjölluðum og vorum hin glöðustu, fundum ekkert til svefns eða þreytu, þótt við hefðum vakað alla nóttina við að hjálpa piltunum að pakka ull og koma þeim af stað í kaupstaðinn. Foreldrar okkar lögðu af stað um kvöld- ið og riðu á undan lestar- mönnunum, sem fóru í hóp frá þremur næstu bæjunum. Þegar allir voru farnir, kom okkur ekki til hugar að fara að sofa, og í stað þess hituð- um við okkur kaffi og vökt- um svo úti í bjartri nóttinni, þangað til mál var að fara á stekkinn, því að enn var ekki búið að færa frá. Þegar við vorum komin niður á stekkj- armelana, sáum við ærnar á víð og dreif suður um allt nes, sem lá langar leiðir slétt og grasi gróið meðfram ánni. Okkur gekk greitt að hóa saman ánum, og þegar við höfðum hleypt lömbunum út úr stekknum, voru þær ekki lengi að jarma sig saman við þau. Þá var eftir að koma sér saman um, hvort okkar skyldi verða eftir hjá ánum, meðan þær væru að stillast í haganum. Það féll í minn hlut, og þegar ég var orðin ein eft- ir, settist ég á lækjarbakkann sunnan við stekkinn og hlust- aði á skvaldrið í læknum. Fuglarnir sungu hver í kapp við annan ættjarðarsöngva sína með fegurri og innilegri blæ, heldur en hljómsveit Barroclaugh’s tókst að ná úr íslenzku þjóðsöngvunum í dag. Ég raulaði lágt fyrir munni mér vísuna „Nú sé ég og faðma þig, syngjandi vor“, og mér fanst allt líf taka undir með mér. Skyldi nokkurs staðar vera eins fagurt og hér heima í íslenzkri sveit? Og þó þráir maður lengra út. Ég reytti nokkra maríustakka og fleygði þeim í lækinn. Straum- urinn hreif þá og bar þá á- leiðis til árinnar. Skyldu þeir allir komast? Ég stóð á fætur og hljóp niður með læknum, til að sjá hvað um þá yrði. Skammt í burtu, neðar í læknum, hafði einn stakkur- inn lent í hringiðu og flaut án afláts hringinn í kring um svolítinn stein. Nokkru neðar flaut annar í svolitlu lóni, sem myndaðist út úr læknum og átti þaðan aldrei aftur- kvæmt. En sá þriðji barst með straumnum alla leið ofan í ána, og eftir skamma stund var hann horfinn mér sjón- um — á leið til hafs. Hvað skyldi hann komast langt? í huganum líkti ég laufunum, sem hvergi komust, við sjálfa mig. Hér sat ég um kyrt í tilbreytingaleysinu og lang- aði þó svo ákaflega mikið til að sjá mig eitthvað um í heiminum, og sitja ekki á sömu þúfunni alla æfi. En eldra fólkið getur ekki skilið það — það er svo ánægt með að sitja um kyrt og halda öllu í sömu skorðum. Hér hafa foreldrar mínir búið og afar og ömmur langt fram, og það er eins og þau fylgi jörð- inni — andi þeirra ráði yfir okkur. Svona hafa þau hugsað og stjórnað, svona á allt að halda áfram í sömu áttina. Og svo koma raddir náttúr- unnar, raddir vorsins og syngja með ungkrafti gróand- ans óró inn í huga og hjörtu okkar, sem yngri erum. Hvergi heyrist kallið skýrara en í einveru úti í bjartri sumarnóttinni. Og ég hélt heimleiðis, drukkin af vorinu, fegurðinni og sjálfstæðis- þránni, glöð og örugg. En það stóð ekki lengi, því að ég komst í verulega ónáð við for- eldra mína fyrir að vilja ekki eiga Jón í Hvammi. En ég hélt mínu til streitu, að fá að fara eitthvað burtu áður en ég byndi mig alla æfi. Ég sagði þeim, að mig langaði til Ameríku, þangað gætu æfin- lega allir farið, sem á ein- hvern hátt ættu heima utan- garðs í félagslífinu. í fyrstu sagði ég þetta eins og hverja aðra fjarstæðu, til að láta þau finna að ég kysi allt heldur en að fara að Hvammi, — jafnvel Ameríkuferð. Mér til undrunar gáfu þau eftir, að ég færi vestur, frekar en til Hafnar, sem mig langaði þó mest til. Hefir þeim líklega hugkvæmst, að óyndið þar opnaði á mér augun og ræki mig bráðlega heim aftur. Svo varð það loks að samkomu- lagi, að ég færi vestur svo sem árlangt, og yrði að ein- hverju leyti hjá frændfólki mínu hér vestra. En Jón átti ég að hafa í huga og það, að koma heim aftur. Og nú hefi ég dvalið hér nokkra mánuði, Greetings to our many lcelandic Friends FROM A FRIEND eða síðan í haust sem leið, og er ef til vill í enn meiri vanda stödd en nokkru sinni fyrr gagnvart foreldrum mínum og loforðinu um að koma aft- ur heim. Þarna bregður Unu aftur fyrir. Ég sé, að hún er að svipast um eftir mér, svo að ég stend upp og veifa til henn- ar. Hún kemur og spyr mig góðlátlega, hvort mér leiðist, því ég sitji hér ein, en sé ekki með unga fólkinu, sem fari nú bráðum að dansa. Svo bætir hún við eftir andartak: „Grímsi minn var að spyrja um, hvar þú værir. Hann sagði sig langaði að dansa við þig verðlaunavalsinn." Ég horfði á Unu meðan hún talar. En hvað sonur hennar er líkur henni. Munurinn er aðeins sá, að hann er glaður og frjálsmannlegur í látbragði og tali, en hún þvinguð og hæglát. En það glaðnar æfin- lega yfir henni, þegar hún minnist á Ásgrím, — svipur hennar breytist, og það er eins og gleðin komi innan frá, svipað því og þegar greiðir til fyrir sól á þéttskýjuðum himni. Og hví skyldi hún ekki brosa og vera glöð, þegar hún hugsar um þennan mann- vænlega og vel gefna son sinn? Ég verð að passa mig, að láta ekki gleðileiftrin sjást í svip mínum og augum við að heyra, að hann væri að leita að mér, til að bjóða mér í dansinn. Ég svaraði því engu, en sagði Unu, að ég hefði skemmt mér ágætlega í dag; en margt, sem ég hefði hlust- að á, ætti ég erfitt með að átta mig á, eins og til dæmis þessa miklu föðurlandsást, sem kvæðin og ræðurnar báru með sér, og nærri því Compliments of . . . WILSON'S CONFECTIONERY See Us! Your Headquarters for ICELANDIC SKYR AND BREAD SPruce 5-9334 589 Sargenl Ave., Cor. Sherbrook St. ÁRNAÐARÓSKIR . . . lil íslenzkra viðskiplavina DOMINION VARIETY STORE 908 SARGENT AVE. near LIPTON — Men's, Lodies' and Children's Wear — Phone SPruce 4-0901 GREETINGS TO ALL OUR ICELANDIC FRIENDS ON THIS THEIR NATIONAL HOLIDAY ISIORTH AMERICAN LUMBER & SUPPLY CO., LTD* HEAD OFFICE FORT STREET at ST. MARY AVENUE WINNIPEG, MANITOBA SELKIRK • WINNIPEG BEACH • GIMLI • ARBORG • STONEWALL Compliments of $. E. JOHNSON LTD. PLUMBING & HEATING MECHANICAL CONTRACTORS 640 McGEE ST. PHONE SPruce 4-1607 HAMINGJUÓSKIR . . . ASGEIRSON PAINT & WALLPAPER LTD. SUnset 3-4322 and SUnset 3-5967 698 Sargent Ave. WINNIPEG GREETINGS TO ALL OUR ICELANDIC FRIENDS ON THIS THEIR NATIONAL HOLIDAY CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAOE, forstjóri N.W. CHAMBERS and HENRY WINNIPEG SPruce 5-0481 For The Best In Bedding . . . GLOBE • BEDS • SPRINGS • MATTRESSES • CHESTERFIELDS • DAVENPORTS AND CHAIRS • CONTINENTAL BEDS • COMFORTERS • BEDSPREADS • PILLOWS AND CUSHIONS GLOBE BEDDING COMPANY LIMITED WINNIPEG CALGARY

x

Lögberg-Heimskringla

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.