Lögberg-Heimskringla


Lögberg-Heimskringla - 23.07.1964, Qupperneq 27

Lögberg-Heimskringla - 23.07.1964, Qupperneq 27
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 23. JÚLl 1964 27 ÍSLENZKUR HUGVITSMAÐUR Það, sem dýrin sjá ekki Það líður varla sá dagur sérstaklega á vetrin að ekki fréttist um ægilega eldsbruna, er valdið hafa mannatjóni og eignatjóni; sorglegast er að heyra um öll þau börn, sem farast árlega í hinum tíðu húsbrunum vítt um landið. Orsakir til húsbruna eru margvíslegar en ein sú al- gengasta er, að kreosót og tjara sem safnast fyrir í reyk- pípum og strompum, logar upp og hitinn verður svo mikill að út frá þeim kviknar í húsinu, eða frá neistum úr strompinum. Það var fyrir þremur ára- tugum síðan að íslenzkur tin- smiður í Selkirk, Þorkell (Kelly) Sveinson, hjálpaði ná- granna sínum við að slökkva eld í húsi hans sem kviknaði út frá strompinum. Fór Kelly þá að hugsa um, að ef hægt væri leiða út reykinn án þess að hann kólnaði myndi ekki safnast eldfimt efni í stromp- inum. Hann bjó nú til stromp og fóðraði hann með ein- angrunarefni. Hann lét reyk- háfinn fyrst í sitt eigið hús og reyndist hann ágætur. Fyrstu árin var hann einn við að smíða þessa reykháfa. Hann fékk einkaleyfi fyrir uppfinningu sinni 1941. Eftir- spurnin varð meiri en fram- Kelly Sveinson leiðslan. Þegar Winnipeg In- dustrial Development Board viðurkenndi kosti þessara reykháfa myndaði Kelly fé- lag með syni sínum Kelly Jr. og fimm Winnipeg viðskipta- mönnum, Selkirk Metal Pro- ducts Ltd. og var nú reist verksmiðja J Winnipeg með nýjustu tækjum til að fram- leiða reykháfana og svo önn- ur í Brockville, Ont. og síðan í Edmonton. 22 maí 1964 var skýrt frá því í dagblöðunum að milljónerafélag í Banda- ríkjunum væri orðið eigandi að Selkirk Metal Products Ltd. fyrir 2 milljón dollara. Sennilega hefir þessi upp- f i n n i n g hugvitsmannsins Kelly Sveinsons fyrirbyggt mörg mannslát af völdum eldsvoða og mun gera það í framtíðinni. Þorkell (Kelly) er sonur Sveins Kristjánssonar bónda að Framnesi í Víðirnesbyggð og Veroniku Þorkelsdóttur. Hann kvæntist Jóhönnu Eggertsdóttur Sigurðssonar. Þau áttu lengst af heima í Selkirk, en nokkur ár í Winnipeg. Þau eignuðust sjö myndarleg börn og er mikill ættleggur frá þeim komin. í þá daga Margrét Jónsdóttir á Stétt- um hafði fyrr á árum búið skamma hríð með Gísla Gutt- ormssyni í Hafliðakoti. Á efri árum sínum lýsti hún þeirri sambúð með svofelldum orð- um: „Ef maður hugsaði, að þetta ætlaði eitthvað að fara að gjóa til manns, þá gaut það upp á mann kolmórauðu aug- anu. En maður þoldi það nú illa í þá daga“. Stundum ættum við menn- írnir að minnast þess, að við vitum ekki, hvernig veröldin lítur út í augum meðlima dýraríkisins. Við höfum nefni- lega tilhneigingu til að halda, að skepnurnar, þessir mál- lausu vinir okkar, hafi ná- kvæmlega samskonar sjón og við sjálf. En ef við fengjum skyndilega að sjá umhverfið með augum hunds, fugls eða hests mundum við verða furðu lostin. Sjónfæri og heili eru mjög nátengd. Til þess að dýr sjái vel, eða réttara sagt vinni vel úr því sem þau sjá, þarf heilinn að vera nokkuð þrosk- aður. Ekkert dýr getur séð í myrkri, ekki einu sinni kött- urinn eins og almennt er hald- ið. Til þess að sjá og verða séður er ekki mögulegt nema ljós sé til staðar. Birtan er griðarlega mikilvægur þáttur hjá dýrunum, og hver tegund leitar eftir því birtustigi, sem hæfir henni. Flestar skepnur, sem halda ekki kyrru fyrir á nóttunni, hafa augu, sem glampar á í myrkri. Sjáöldur þessara næturröltara, eins og kattar- ins, eru sérlega viðkvæm fyrir birtu og ljósi. Fyrir þeim er veröldin frá um næt- ur en mjög björt á daginn. Margir fiskar hafa þróað með sér fyrirtaks sjón, og sumir þeirra geta greint liti, en það er mikill kostur. Búddatrúarmenn fornaldár- innar völdu sér fisk að tákni fyrir aðgát þeirra gegn freist- ingum vegna þess að fiskaugu lokast aldrei. Fiskar hafa sém sé engin augnalok. Augu þeirra eru fremur flöt og net- himnan illa þroskuð — nema í laxi og þorski — en regn- bogahimnan ber oft fallega liti. Fiskarnir geta hreýft augun ofurlítið, og þar sem þau eru oftast beggja vegna á hausnum, er sjónsviðið tals- vert. Snákarnir hafa komizt frain fyrir fiskana í því að með þeim hafa þróazt augnalok, en þau eru mjög þunn, og við þau er áfast gagnsætt hreist- ur, sem þekur sjónflöt aug- ans. En með aldrinum kemur ský á þetta hreistur og deyfir sjónina. En hinn góði heili snákanna gerir meira en að bæta upp þetta sjóntap. Fuglarnir eru komnir langt fram úr okkur mönnunum hvað gæði og fegurð augn- anna snertir. Langdrægi sjón- ar þeirra og skarpleiki er undrunarvert, einnig aðlögun- arhæfni augnanna. Sérstak- lega eru gammar og haukar frægir fyrir góða sjón, og án efa sjá uglur og aðrir nætur- fuglar betur en mannfólkið. WITH COMPLIMENTS OF SIGURDSON FISHERIES LTD. PRODUCERS OF LAKE WINNIPEG FISH Dealers In Allis Chalmers Farm Machinery — North Star Oil Johnson Outboard Motors TELEPHONE 378-2456 RIVERTON MANITOBA MADE RIGHT HERE IN CANADA BLUENOSE NYLON GILL NETS MADE WITH — Our Patented Johnson Knot* guaranteed slip-proof knots — High wet mesh tensile strength — Soft laid twines for good gilling — Uniform Meshes — "Polyfilled" synthetic sideline — Textured nylon seaming twine Bluenose Netting & Twine Ltd. DRUMMONDVILLE QUEBEC ‘Canadian Patent No. 528130

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.