Lögberg-Heimskringla - 23.07.1964, Page 29

Lögberg-Heimskringla - 23.07.1964, Page 29
LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 23. JÚLl 1964 29 Um atvinnu vegina er indælt að ræða uppsprettulindina jarðneskra gæða, hvar gullið má heita sé grafið úr foldu og gimsteinar dýrmætir tíndir úr moldu. — Þar er Johnson sem verslar með klæði og klúta, með kápur og svuntur og skýlur og strúta með tvinna og silki í treyjur og kjóla og talsvert af gjöfum til nýárs og jóla. — Þá er Thomas með gullið og glingrið og kétið, svo geti menn hvortveggja, prýtt sig og étið og Finny með alskonar fínustu rétti, með fatnað og leirtau og glasvöru setti. — Þá er Paulson & Company’s pjátur og blikk og pottar og ofnar sem fást fyrir slikk og Fredericksons verslan með skyr og skökur með skótau og mölbrotnar soda-kökur. — Þá er Rebrekka, háöldruð heiðurs-frú sem hafði til forna mikið bú — en hefir nú sest í helgan stein og hvílir með því sín lúin bein að selja rúsínur, sykur og tólk sitja yfir konum og bera út mjólk. Fái þeir kvalir og kveisu-sótt af kýrhausa áti, um miðja nótt þeir hlaupa eftir Sigurði hómópata og hafa svo óðar fengið bata. En þar þarf hann einn að vera við, ef veikin hleypur í kvennfólkið. Hér er enginn með mönnum sem ekki hefir kú enda þó hann sé vinnuhjú; og mjólkin er borin í dunkum og döllum eða dregin um strætin af aflóga körlum. Úr mykjunni byggja þeir háa hóla þar heygja þeir nafnfræga kúasjóla. Hér eru íslenskar stúlkur svo blíðar og bjartar að betur ei neitt undir sólunni skartar. Þær eru alt eins og verur sem alheimnum stjórna og ungir og gamlir sé skyldir að fórna og viljinn er lögmál sem veröldin hlýðir en vanginn er blómstur er þjóðflokkinn prýðir. — S. J. SCHEVING, Ort í jan. 1890. LOFTIÐ EINS OG SORPRÆSI Maðurinn getur lifað án matar í fimm vikur og án vatns í fimm daga, en hann kemst ekki af án lofts í fimm mínútur. Loftið er sem sé mikilvægast allra frumefna, og maðurinn notar frá fæð- ingu til hinzta andardráttar um tíu rúmmetra af lofti dag- lega. En frá örófi alda hefur maðurinn vanizt því að um- gangast loftið eins og það væri sorpræsi, og hefur spillt því með allra handa úrgangs- efnum, svo sem gasi, ryki, uppgufun, raka og reyk, segir í skýrslu sem Evrópudeild Alþj óðaheilbrigðismálastof n- unarinnar (WHO) í Kaup- mannahöfn hefur birt. Lengi vel hafði þessi vani ekki í för með sér nein óþæg- indi, þar sem andrúmsloftið er vítt og rúmgott, og úr- gangsefnin voru tiltölulega umfangslítil og leystust auð- veldlega upp. En á seinni árum hefur þessi spilling andrúmsloftsins sýnt sig að vera skaðleg fyrir menn jafnt og skepnur, og einnig fyrir plöntur og jafnvel bygg- in'garefni. Við getum hæglega fylgzt með því, hvernig loftið sem við öndum að okkur eyði- leggur veggina í húsum okkar. Við getum fylgzt með því hvernig trén á götum stór- borganna deyja smátt og smátt. Hvaða áhrif skyldi þá ekki hið spillta andrúmsloft geta haft á okkar eigin lungu! Slys Til að menn geti gert sér rétta hugmynd um, hve al- varlegt ástandið raunveru- lega er, minnir WHO-skýrslan — sem samin var á ráðstefnu heilbrigðis sérfræðinga í Brussel — á nokkur „loft- spillingar-slys“, sem átt hafa sér stað, fyrst og fremst „slysið“ í Lundúnum 1952, þegar þétt þoka ásamt hita- breytingum og stóraukinni spillingu andrúmsloftsins leiddi af sér 4000 fleiri dauðs- föll en venjulega á einum tveim vikum. 1 borgum Evrópu stafar spilling andrúmsloftsins fyrst og fremst af ýmiss konar brennsluefnum. Eldsneytið, sem notað er í iðnaði og á heimilum, er að jafnaði kol, olía eða gas, og mikið af þess- um efnum hefur að geyma brennistein. 1 borgunum eru benzín- og dísel-knúin öku- tæki orðin æ umfangsmeiri orsök til spillingar loftsins. Hve mikilvæg hin ýmsu spillingarefni eru, má gera sér í hugarlund með því að athuga tölur sem eiga við París. Þar er gengið út frá, að 50 hundraðshlutar spillingar- innar stafi frá eldstæðum í heimahúsum, 25 hundraðs- hlutar frá úrgangsgasi öku- tækja, og 25 hundraðshlutar frá úrgangsefnum iðnaðarins. Hægt að koma í veg fyrir það Ráðstefnan í Brussel komst að þeirri niðurstöðu, að nú væri hægt að hindra nálega með öllu spillingu andrúms- loftsins. Raunhæfar og efna- hagslegar aðstæður setja því samt takmörk, sem hægt er að gera í þessu efni. Aukin notkun rafmagns dregur mjög úr spillingu and- rúmsloftsins. Sama er að segja um ráðstafanir til að draga úr brennisteinsinnihaldi gas og byggingu sérstakra hitun- armiðstöðva fyrir heil hverfi. QrL GjuUl (Daif Alberta Wheat Pool The success of a venture, of an organ- ization or even of a nation depends to a large degree on the harmony which exists among those engaged in the Þessi bragur var flultur á afar fjölmennri samkomu sem haldin var í Alberl Hall, að viðstöddum öllum þeim. sem nafngreindir eru; þeir voru vinir höfundarins. „Hann er eitt af því marga, sem maður hafði sér til gamans á þeim ógleym- anlegu frumbýlingsárum". segir höfundurinn í bréfi 1927. — Ritst. enterprise. Harmony in a group of any size is a desirable quality which must be sought. Hugheilar árnaðaróskir til allra íslendinga á þjóðminningardaginn. LUNDAR MOTOR HOTEL Now Open — Fully modcrn units with shower, bath ond Television. "Visit Our Round-Up Room" On No. 6 Highwoy ond Moin Street, Lundar, Man. PHONE: 762-5685 Ad. and Val. Scheske, Owners CONGRATULATIONS . . . to the lcelandic People on the Occasion of the 75th Anniversary of their Annual Celebration Day at Gimli, Manitoba, August 3rd, 1964. QUEEN'S PARK MOTORS RAMBLER SALES & SERVICE Rosser and Moin Street, Selkirk, Man. Phone 482-6034 Service Div. Eveline and Eaton — At The Bridge Sclkirk, Manitoba Phone 482-5713 Prop. WALTER SKRUPSKI Manitoba Pool Elevators Saskatchewan Wheat Pool Harmony in a nation can exist only when all parts of society are given free play and when all people freely participate in the role of citizenship. People from many lands with diverse histories have demonstrated, here in Canoda, that a free society can be operated; that a new nation of which all people may be proud can be built when people accept the opportunity to harmonize their views and differences. Canadian Co-operative Wheat Producers, Ltd. — CANADIAN WHEAT POOLS — WINNIPEG MANITOBA

x

Lögberg-Heimskringla

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.