Lögberg-Heimskringla - 23.07.1964, Side 32

Lögberg-Heimskringla - 23.07.1964, Side 32
32 LÖGBERG-HEIMSKRINGLA, FIMMTUDAGINN 23. JÚLl 1964 Úr borg og byggð Miss Berlha (Guðbjörg Julia) Jones sendi ritst. bréf og minnist þess að hún hefði verið stödd á fyrsta íslend- ingadeginum í Winnipeg 1890, sem haldin var í Victoria Park. Hún segir meðal ann- ars, „Indælt veður, alt gekk að óskum. Þóra systir mín, nýkomin að heiman, átti af- mæli þennan dag, var rétt sautján ára. Margir fóru í skrúðgönguna í fínum opn- um kerrum; garðurinn var rétt austan við ána, það var allt svo skemmtilegt í þá daga. Man vel eftir Gesti Páls- syni — svo laglegur og mesta prúðmenni — sárt að hann skildi falla frá svona ungur; öllum þótti vænt um hann“. Okkur langaði til að birta mynd of Miss Jones í þessu hátíðablaði en því miður tókst það ekki. Eins og kunn- ugt er, hefir hún áhuga fyrir öllum góðum málum íslend- inga og hefir styrkt þau höfð- inglega. Hún er systir Jóns heitins Jónssonar, sem lengi var forseti Fróns og þó hún færi frá Winnipeg fyrir 39 árum er sú borg henni einkar kær. Við árnum henni heilla. ☆ Sveinbjörn læknir Björnson frá Wilmington, Delaware, var hér á ferð nýlega ásamt konu sinni, Helgu og börnum þeirra. Dvöldu þau nokkra daga hjá foreldrum hennar Mr. og Mrs. S. V. Sigurdson í Riverton og svo hjá frænd- fólki hans í Winnipeg. For- eldrar hans Dr. og Mrs. S. E. Björnson frá White Rock, B.C. komu að vestan til að njóta samveru stunda með þeim, og vera á íslendingadeg- inum, en þar flytur Sveinn læknir frumort kvæði. Svein- björn læknir og fjölskylda hans héldu heimleiðis um síð- ustu helgi. Á þessu sumri eru liðin 65 ár frá því Pétur Tergesen hóf verzlun á Gimli og eftir hans dag tóku synir hans við fyrir- tækinu. „Tergesens“ hefir jafnan verið með stærstu og vinsælustu verzlunum Gimli- bæjar. Til hamingju með starfsafmælið. Miss Alda Davidson Þessi unga stúlka, dóttir Charles og Guðrúnar David- son í Santa Patricia, Ont., vann í þriðja sinn verðlaun, The Legion Bursary, fyrir að vera efst af öllum miðskóla- nemendum í hennar skóla- umhverfi í prófunum í vor. Hún er sonardóttir Mrs. R. Davidson, Winnipeg og dótt- urdóttir Ólafs Bjarnasonar á Gimli og konu hans Feldísar. ☆ Hon. J. T. Thorson gerir ráð fyrir að sækja íslendingadag- inn á Gimli 3. ágúst. Þar hitt- ir hann marga kunningja og vini, er munu fagna heim- sókn hans, hann var Sam- bandsþingmaður Selkirk kjör- dæmis í mörg ár. ☆ Mr. og Mrs. Vigfús Bald- winson frá Vancouver eru ný- komin til Winnipeg í heim- sókn til sonar síns og fjöl- skyldu hans og vinafólks. Hér áttu þau heima í mörg ár. Þau munu og sækja Islend- ingadaginn á Gimli. ☆ Þessu hátíðablaði seinkaði nokkuð bæði vegna þess að sumt af starfsfólki prentsmiðj- unnar var í „fríi“ og svo varð blaðið stærra en ætlað var. Við treystum því að áskrif- endur forláti þennan drátt. Næsta blað kemur væntan- lega út á réttum tíma, 30. júlí. ☆ Hirðmeyjarnar. Því miður fengum við ekki báðar mynd- irnar af hirðmeyjum fjall- konunnar í tíma fyrir þetta blað, og birtast þær í næsta blaði 30. júlí. MESSUBOÐ Fyrsla lúterska kirkja Sr. V. J. Eylands. Dr. TheoL Heimili 686 Banning Street. Sími SUnset 3-0744. Guðsþjónustur á hverjum sunnudegi: 11.00 f. h. Bus Service between Win- nipeg and Gimli on Aug. 3, 1964. Leaves Winnipeg — 10 a.m. Arrives Gimli — 11.30 a.m. Regular bus leaves Gimli for Winnipeg 6.00 p.m. Special Bus — 10.00 p.m. Glúmur Hólmgeirsson: Draumur Sigríðar Faðir minn, Hólmgeir Þorsteinsson, bóndi, Valla- koti, var kvæntur Aðalbjörgu Jónsdóttur, systur Benedikts frá Auðnum. Þegar faðir minn dó, var Benedikt dáinn fyrir nokkr- um árum, þá 93 ára gamall. Sigríður, sem dreymdi eft- irfarandi draum, er dóttur- dóttir Benedikts. Hún býr á Ökrum, sem standa að austan- verðu í Reykjadal, en Valla- kot að vestanverðu í dalnum í suðvestur frá Ökrum. Á milli bæjanna rennur Reykjadalsá, og er lygn og alldjúp; var oftast að sumr- inu sett mjó göngubrú yfir ána niður við Akra. Daginn, sem faðir minn var jarðsunginn var Sigríður las- in og fór því ekki að jarðar- förinni. Hún lúrði um daginn og sofnaði. Þá dreymdi hana að afi hennar kemur til henn- ar og segir „Ég skrapp frá jarðarförinni til að vita hvernig þér liði.“ Þá dettur Sigríði í hug brúin yfir ána, og að ekki væri gott fyrir svo gamlan mann að ganga hana (í draumnum man hún ekki að afi hennar er dáinn), og segir því: „Gekk þér ekki illa að ganga brúna?“ En afi hennar svarar: „Nei, nei, ég er nú svo léttur á mér núna.“ Skrifað eftir sögn Sigríðar. Heima er bezl. ÍSLENDINGADAGSNEFNDIN efnir til SAMSÆTIS til heiðurs forsætisráðherra Islands dr. Bjarna Benediktssyni og frú Sigríði Björnsdóttur Internalional Inn, 1808 Wellington Ave. Miðvikudaginn 5. ágúst 1964 kl. 7 e.h. Aðgöngumiðar $4.50 hjá Jochum Ásgeirsson, 126 Lodge Ave. VE 2-4654. PUBLIC RECEPTION PROVINCE OF MANITOBA A public reception in honour of the Prime Minister of Iceland Dr. Bjarni Benediktsson and Mrs. Benedikts- son on the occasion of their visit to our province, will be held in Room 200 Legislative Building on Thursday, August 6th, between 4:00 and 6:00 p.m. All those wishing to meet the Prime Minister and his lady may do so by attending this reception. íslendingadagurinn Sjötugasta og fimmta þjóðhátið íslendinga í Vesturheimi GIMLI, MANITOBA Mánudaginn 3. ágúst1 1964 Skrúðför hefst frá Johnson Memorial Hospital kl. 11.00 f.h. Blómsveigar lagðir á minnisvarða landnemanna kl. 11.30 f.h. FJALLKONAN FORSÆTISRÁÐHERRA ÍSLANDS MRS. ÁSGERÐUR BESSASON DR. BJARNI BENEDIKTSSON SKEMMTISKRÁ 1. O Canada 2. ó, Guð vors lands. 3. Forseti dagsins setur hátíðina, Mr. S Aleck Thorarinson. 4. Ávarp Fjallkonunnar, Mrs. Ásgerður Bessason. 5. Barnakór Gimli, Stjórnendur. Mrs. Shirley Johnson, Mrs. Anna Stevens og Mrs. Guðrún Stevens. 6. Ávörp tiginna gesta: Ríkisstjórn Canada, Hon. Wm. M. Benedickson, Fylkisstjórn Manitoba, Hon. George Johnson, Bæjarstjórn Gimli, Mayor Violet Einarson, Borgarstjórn Winnipeg, Mayor Ræðismaður íslands, Mr. Grettir Leo Johannson, Þjóðræknisfélag Islendinga í Vestur- heimi, Rev. P. M. Pétursson. 7. Barnakór Gimli, Stjórnendur: Mrs. Shirley Johnson, Mrs. Anna Stevens og Mrs. Guðrún Stevens. 8. Ræða — Canada, His Honor Errick F. Willis. 9. Scandinavian Choir, Mr. Arthur Anderson, söngstjóri, Mr. Gunnar Erlendsson, spilar. 10. Ræða — ísland, Dr. Bjarni Bene- diktsson. 11. Kvæði, Dr. Sveinn E. Björnsson. 12. Scandinavian Choir. 13. God Save the Queen. Stephen Juba, ÍSLENZK GLÍMA. Drengjaflokkur frá Árborg, undir stjórn Steina Eyolfssonar og Harvey Benson sýnir íslenzka glímu að lokinni skemmtiskrá. Minjasýning. Munir sem minjasafn Þjóðræknisfélag Islendinga í Vesturheimi og aðrir hafa góðfúslega lánað verða sýndir í skálanum til kl. 7.30 e.h. Icelandic Canadian Club annast sýninguna. KVÖLDSKEMMTUN Almennur söngur hefst kl. 7.00 e.h. Gústaf Kristjánson stjórnar. Mrs. Jóna Krist- jánson annast undirleik. — Frægar íslenzkar kvikmyndir gerðar af Ósvaldi Knudsen verða sýndar í rökkrinu. Myndirnar sem hann hefir góðfúslega lánað nefndinni eru Askja on fire og Hornsirandir, með ensku tali og HrognkelsaveiSar í Skerjafirði, með íslenzku tali. DANS hefst kl. 9.30 e.h. Johnny and his Musical Mates spila.

x

Lögberg-Heimskringla

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg-Heimskringla
https://timarit.is/publication/160

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.