Alþýðublaðið - 05.11.1960, Side 1
41. árg. — Laugardagur 5. nóvcmber 1960 — 252, tbl,
TOLLGÆZLAN í Reykjavík
íann mikinn smyglvarning í Lag
arfossi á fimmtudagsmorgun, —
þegar skipið kom til landsins
frá New York. Leitinni hefur
verið haldið áfram síðan. Inn-
kaupsverð smyglvarningsins,
sem þegar hefur fundizt, nem-
ur hátt á annað hundrað þúsund
krónur.
Þegar Lagarfoss kom á ytri
höfnina í Reykjavík á fimmtu-
dagsmorgun hóf tollgæzlan
mikla leit í skipinu. Var meðal
annars leitað vandlega í klefum
skipverja. Þegar leitað var yfir
lofti klefanna fannst felustaður,
þar sem komið hafð'. verið fyrir
miklum smyglvarningi. Frágang
urinn var það góður, að ilimögu-
legt var að gera sér í hugarlund
að átt hefði verið v.ið loftið. —
Ekki hefur enn ver.’ð gefið upp,
hjá hversu mörgum skipverjum
smyglvarning'.r* hefur fundizt,
en þeir eru alimargir.
Leit hélt áfram í skipinu í
gær, svo ekki hefur enn feng-
izt fullnaðar skýrsla yfir varn-
inginn, en blaðinu er kunnugt
um að fundizt hafa 180 dúsin
af brjóstahöldurum, 60 dúsin
af nælonsokkum, 54 dúsin af
sokkabuxum, 10 dúsin af leik-
föngum, 220 kvenpeysur, 72
pör af kvenskóm, 24 öskjur af
tyggigúmmí, 30 þúsund Camel
og Chesterfield sígarettur, 4
dúsin af segulbandsspólum og
9 innanhússímatæki.
Verðmæti þessa smyglvarn-
ings er hátt á annað hundrað
þúsund krónur miðað við inn-
kaupsverð úti í Bandaríkjunum.
Flestar þessar vörur eru há-
tollavörur, svo raunverulegt
verðmæti er margfalt meira.
Rannsókn þessa smyglmáls,
sem er hið mesta sem tollgæzl-
an hefur lengi haft til meðferð
ar, er í fullum gangi hjá saka-
dómaraembættinu. Málið er í
höndum Hauks Bjarnasonar,
rannsóknarlögreglumanns, en
blaðið gat ekkj náð tali af hon
um í gærkvöldi, til að afla nán-
ari upplýsinga.
IMWMWWWMMWMWWVMW
SÍÐA ER
LAUGAR-
DAGSSÍÐA
Kastabist
9 metta
Ekið var aftan á bifreiðina
R-8273 í fyrrinótt, þar sem hún
stóð fyrir utan húsið nr. 11 við
Flókagötu. Líklega hefur þettaj
gerzt á milli klukkan 2 til 3.
Áreksturinn varð mjög harð-
ur og kastaðist fyrrgreind bif-
reið, sem er af Morris-gerð, níu
metra áfram. Stórskemmdir
urðu á bifreiðinni og eru þær
lauslega áætlaðar um 20 þús-
und krónur.
Bifreiðinni, sem árekstrinum
olli, var ekið burtu, en hún mun
vera mikið skemmd. Líkur
benda til að hún sé rauð að lit.
,Geti einhverjir gefið upplýs-
ingar um atburð þennan, eru
þeir beðnir að gera rannsókn-
arlögreglunni aðvart, svo eig-
andi bifreiðarinnar hafi mögu-
leika á að fá tjón sitt bætt.
Hér er stærsta brosið,
sem við fundum í fyrra-
dag, þegar við skutumst
bak við tjöldin í Þjóðleik-
húsinu, Það var lokaæfing
á „Eiginmaður í öngum
sínum“, Molliére-leikrit-
inu, sem frumsýnt var í
gærkvöldi. Það var ys og
þys á æfingunni, sem
vænta mátti, mátulegur
taugaskjálfti og lítill tími
til aukabrosa fyrir ljós-
myndara. Svo að við meg-
um vel við una.
Eftir á að hyggja: Sú
brosmilda heitir Stella
Holm Ólafsdóttir.
WWWWWWMM
Pólland vann
Leipzig, 4. nóv.
PÓLLAND vann ísland með
3:1. Arinbjörn gerði jafntefli
við Plater, Doda vann Gunnar,
Ólafur á lakari biðskák vð Kots
ro, og Filipovicz vann Guð-
mund. — Ólafur fékk jafntefli
út úr biðskákinni, þannig að
íslendingar hlutu 1 vinning
gegn 3, eins og fyrr segir.
Krústjov
fallinn?
919
DANMÖRK
VANN
Danmörk vann ísland í B-
riðlinum á Olympíuskálcmót-
inu í Leipzig með 2 Vá vinning
'gcgn llá. Arinbjörn vann Nil-
esn Kölvig vann Gunnar, Ól-
afur gerði jafntefli við Peter-
- loi.i Viaíin iíara.
DEILURNAR um land-
helgina við Breta mega
gjarnan halda áfram sagði
Finnbogi Rútur Valdimars
son, talsmaður kommún-
ista í málinu, í efri deild
í gær. Hann taldi að deilan
hefði ekki skaðað íslend
inga, löndunarbann gerði
ekkert til, enda hefðum
við komizt út úr slíkú áð
ur. Loks gerði hann ekk
ert úr jpeirri hættu, sem
það mundi stofna sjómönn
um í, ef Bretar færu aft-
ur inn fyrir mörkin með
togara í herskipavernd.
Umræðunum um frumvarpið
um lögfestingu reglugerðarinn-
ar um landhelgismál var haldið
áfram, og talaði fyrst Páll Þor-
steinsson, en Finnbogi síðan út
allan fundartímann.
Auðheyrt var á Finnboga, að
hannhefur meiri áhuga á að
deilan við Breta haldi áframt
sem lengst, en að henni verði á
einhvern hátt komið út úr
heiminum, og hann lætur sig
engu skipta, hvaða hættur
fylgja því. Hann reiknar sýni-
lega með, að áframhaldandi
deilur okkar við vestrænar
þjóðir mundu leiða til þess, að
Framhald á 14. eíðu.
H L EMÐ
Blaðið hefur hlerað —
AJE) þeir félagar Einar
Olgeirsson og Kristinn E.
Andrésson séu á förum til
Moskvu.