Alþýðublaðið - 05.11.1960, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 05.11.1960, Blaðsíða 2
 mm}öT*x. Glsll J. Astþórsaon (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúar rlt- flljómar: Sigvaidi Hjáisuirsson og Indri'ði G. f>orsteinsson. — Fréttastjóri: ^jörgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasíw £4 906. — Aðsetur: Aiþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins Hverfis- ðt»ta 8—10. — Áskriftargjald: kr. 45,00 á mánuði. í lausasi51u kr. 3,00 eint ^tgofandl: Alþýöuflokkurinn. — Framkvæm dastj óri: Sverrir Kj artanssoD HvaB segir Trygve Lie? NORSKA STJÓRNIN hefur fengið reyndasta heimsstjórnmálamanni sínum, Trygve Lie, það hlutverk að draga erlend fyrirtæki til Noregs, fá þau til að setja þar upp ný framleiðslufyrirtæki. I Prátt fyrir þá staðreynd, að Norðmenn verja 35% , þjóðartekna sinna til fjárfestingar, skortir þá meira fé, og þeir vilja fá erlent fjármagn. Hafa þeir allmikla reynslu í þeim efnum, því alúmínum iðnaður þeirra var þannig byggður, enda þótt Norðmenn hafi síðar eignazt þær verksmiðjur all ar. Nú er talað um að fjórfalda alúmíumfram leiðslu landsins á 10 árum, og hafa fyrirtæki í Bandaríkjunum, Kanada, Bretlandi, Frakklandi, Vestur Þýzkalandi og Svíþjóð áhuga á fjárfest ingu í Noregi. Trygve Lie sagði nýlega í sjónvarpsviðtali í J Osló, að hin erlendu fyrirtæki gerðu ítarlegar i rannsóknir, áður en þau festu fé sitt, Það væri ekki gert vegna fegurðar landsins. Hins vegar aijóta Norðmenn góðs álits í heiminum, og er land xð talið æskilegt til fjárfestingar af ýmsum sök Í um. Norðmenn hafa ávallt borgað skuldir sínar, 3 launa og verkalýðsmál eru þar í mjög föstum j fikorðum, og vinnutap vegna verkfalla mjög lítið. 1 Loks þykja Norðmenn heiðarlegir og ábyggilegir : í viðskiptum, sagði Trygve Lie. Hér er frá þessum réttum sagt vegna þess, hve i mikio er talað um að fá erlent fjármagn til stör j iðju á íslandi. Að vísu eru mjög skiptar skoðanir um, hvort það sé yfirleitt æskilegt fyrir íslend 1 xnga. Ýmsir, sem til slíkra mála þekkja, telja að I við munum geta fengið lánað nauðsynlegt fé til : að reisa þau mannvirki, sem efnahagskerfi okkar i getur borið, en risvaxin orkuver og stóriðja á \ heimsmælikvarða mundi kalla á fjölda erlendra • verkamanna og valda stórfelldum truflunum á ! efnahagskerfi okkar. Hver sem skoðun manna er á þessum efnum, j er athyglisvert hvað Tryggve Lie telur vera kosti !Noregs, sem erlend fyrirtæki meti mest. Þar er : efst á blaði jafnvægi í efnahagsmálum og festa í • launa og kjaramálum. Án þess að koma á slíkri festu hér á iandi er þýðingarlítið að tala um er : tenda fjárfestingu. Án slíks jafnvægis erum við varla sjálfstæðir aðilar í samskiptum við aðrar þjóðir í efnahagsmálum. 41 Slysavarnadeildin Hraunprýði | Hafnarfirði. Fundur verður haldinn þriðjudaginn 8. nóvember kl. 8,30 í Sjálfstæðishúsinu. i Venjuleg fundarstörf. Félagsvist og kaffi. STJÓRNIN. 2 ,.nov. 1960 — Al|í^ðúblaði| Nýtt pósthús | Framliald af 16, síðu. • ness (aðalverktakar; verjkstj. ^ Guðni Þórðarson), Trésmiðja ^ Guðmundar Magnússonar (inn- s réttingar), Jóhann Rönning S (raflagnir), og Sighvatur Einars ) son (pípulagnir). Þakkir fluttu ) fyrir ihönd bæjarins, Daníel Ág- ^ ústínusson, Þórhallur Sæ- • mundsson, bæjarfógeti, Valdís ^ Böðvarsdóttir, fyrrverandi póst ^ og símstjóri á Aki'anesi, séra ^ Jón M. Guðjónsson og síðast ( þakkaði símstöðvarstjórinn, s Karl Helgason, öllum, sem S lagt höfðu hönd á plóginn, S Akurnesingum skal bent á, • að öll starfsemi pósts og síma ^ er flutt í þetta nýja hús. — ^ H.S.H. ^ ___________________ S Gerðu upp- j tækan vöru- \ bílsfarm ^ Berlín. (NTB—AFP). s Austur-þýzk yfirvöld gerðu \ í ag upptækan enn einn vörubíl, S sem var á leið frá Vestur-Ber- S lín til Vestur-Þýzkalands með S radíóefni. Voru í bílnum radíó- ) senditæki og loftnet frá út- ) varpsverksmiðju { estur-Ber- ) lín. ^ Frá 1. nóv. verða salirnir til afnota fyrir einkasamkvæini, allskonar veizluhöld og fundi. Sérstök áherzla verður lögð á ljúffengan mat og drykki. Góð þjónusta og vönduð í öllum viðskiptum. ★ Hin nýstofnaða veizluhljómsveit JOSE M. RIBA, sem «r fastráðin hljómsveit hússins, mun leggja sérstaka áherzlu á að gera gestum til hæfis. ★ Meðlimir hljómsveitarinnar eru allt kunnir hljóð- færaleikarar, en það eru þeir: Reynir Sigurðsson, víbrafónleikari, en hann leikur einnig á harmonikku, bassa og celló. Guðjón Pálsson, píanóleikari Sverrir Garðarson, trommuleikaii og Hljómsveitarstjórinn er svo spánverjinn góðkunni RÍBA er leikur á saxafón, klarinett og fiðlu. ATH. Pöntunum veitt móttaka í súna 15533. S s s s s s ,s s s s s s s s s s s V s c s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s s Hannes h o r n i n u ýV Lög unga fólksins hafa verið flutt á óheppileg an tíma. ýV >Vér mótmælum allar‘, segja þrjár starfssyst ur. ýý Engar endurhættar síðari fréttir. Eftirlit með skemmti samkomum. ÞRJÁR STARFSSYSTUR skrifa mér: „Viltu vera svo góður og mótmæla j»ví fyrir okkur unga fólkið, að þátturinn, sem nefnd ur hefur verið „Uög unga fólks- ins“, skulj vera flultur til frá þriðjudagskvöldum til síðdegis á laugardögum. ÞESSI ÞÁTTÍJR hefur verið mjög vinsæll og satt bezt það eina, sem hlustandj hefur verið á í dagskránni s þriðjudögun:. Þetta er þó ekki aðalatriðið. Við vinnum til dæmis alla laugar- •daga og getum þá ekki hlustað, Við getum aðeins hlustað á kvöldin. Lög unga fólksins á þriðjudagskvöldum hafa alltaf verið okkur tilhlökkunarefni — og við verið heima. Nú hefur liann verið tekinn af okkur. Er ekki hægt að fá þessu breytt aftur?“ HLUSTANDI skrifar: „Vil- hjálmur Þ. Gíslason sagði í boð- skap sínum, að ákveðið væri að vanda betur til síðari frétta nú en áður — og yrði það t. d. gert til þess að bæta þeim upp, sem ekki gætu hlustað kl. 7.30. Stutt ur tími er liðinn síðan útvarps- stjóri talaði þessi orð, enda þetta loforð enn ekkj komið til fram- kvæmda. Sl. sunnudagskvöld voru aðeins „endurteknar frétt- ir“ og styttar frá því fyrr um kvöldið. Vitanlega eru ýmsar nýjungar í heimsfréttum á tíma- bilinu frá kl. 18 til kl. 22.“ ÞESSI ÚTVARPSGAGNRÝNI verður að nægja í dag, en vel má þakka þjóðsagnaþátt Stef- áns. Jónssonar á sunnudagskvöld •— og þó sérstaklega síðasta hluta hans. PÉTUR SKRIFAR: „Frá blöð um og útvarpi liafa borizt hroða legar lýsingar á skemmtisam- komum, einkum í hinum nýju, glæsilegu félagsheimilum sveit- anna. Samkvæmt þessum frá- sögnum er hleypt inn á þessar dansskemmtanir börnum og unglingum allt frá 12 ára aldrei, og drykkjuskapur sagður keyra svo úr hófi, að hvergi á byggðu bóli munu dæmi finnasi til ann- arc eins. Lögreglueftirlit er sára lítið, enda fær ósóminn, tarenni- vínssala, fyllirí og lauslæti að þróast þarna hömlulaust ÞAÐ ER BANNAÐ að hleypa yngri unglingum en 18 ára inn á opinberar dansskemmtanir og er talið að þetta bann sé haldið í Reykjavík. í sveitunum er því borið við, að ómögulegt sé að halda uppi þessu banni vegna skorts á eftirliti. En hvers vegna þarf að vera slíkur skortur á eftirliti frekar í sveitum en bæj- um? Ekki ætti að vera frágangs sök að ráða nægilega marga eft- irlitsmenn í sveitunum, sem j undir stjórn þjálfaðra lögreglu- þjóna gætu haldið uppi fullkom inni reglu og rekið fyllirafta og börn heim til sín. En þeltu mundi kosta peninga, og ágjarn ar sveitastjórnir nota félagsheim ilin sem féþúfu og „skeyta hvorki um skömm né heiður1, þegar fjárvon er annars vegar. ÞÁ ERU HIN TÍÐU umfeið- arslys orðin alvarlegt vandamá], Flest stafa þau af brotum á um- ferðarreglum og skorti á nægi- legu eftirlili. Allt ber hér að sama brunni. Það er ekki unnt að halda uppi viðunandi reglu í landinu, nema fjölga lögregiu- mönnum stórkostlega. A með'an meginhluti þjóðarinnar bjó í sveitum og samgöngur voru tregar, þá var hægt að komast af án mikilla vandræða þó lög- gæzlan væri ekki mikál, einn eða tveir lögregluþjónar í stærstu bæjum, og svo hrepp- stjórar. í sveitum, sem þá gátu sinnt því starfi betur en nú, þeg ar mestur tímj þeirra fer í alls konar skýrslugerðir og umboðs- störf, alveg óviðkomandi lög- gæzlustörfum. ÞAÐ ER AÐKALLANDI að endurskoða lögreglumálin. Stór fjölga löggæzlumönnum og skipa yfirstjórn þessara mála með allt öðrum hætti en nú tíðkast.11 Hannes á horninu.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.