Alþýðublaðið - 10.03.1961, Qupperneq 8
„Millord"), en hún hafði frí
þetta kvöld.
* EINS OG JÁRN-
BRAUTARLEST.
Fyrst léku hljóðfæraleik-
ararnir nokkur lög og vakti
trommuleikarinn Ed Thyg
pen úr tríói Petersons
mesta hrifningu áheyrenda.
Eftir hléið birtist Ella á
sviðinu og söng fyrst lagið
LA
MESTA jazz-söngkon-
an? Hver er það? Allir vita
að hún heitir Ella Fitzger-
ald. Hún er nú á hljóm-
leikaferð um Evrópu með
Lou Levy kvartettinum og
Oscar Peterson tríóinu.
í síðustu viku skemmti
Ella í Olympíu-músiksaln-
um í París og voru fagnað-
arlætin svo gífurleg að þak
ið ætlaði bókstaflega að
rifna. Þarna skemmtir Ed-
ith Piaf (fræg fyrir lagið
„Too Close for Comfort“.
Þegar hún byrjaði á laginu
„Cheek to Cheek“ eftir Ir-
vin Berlin er sagt að hún
hafi drunað eins og eim-
reið.
Ella hefur notið mikilla
vinsælda í París alllengi.
Hún kann ekki stakt orð
í frönsku nema „Merci“
(takk) og notaði hún það
orð líka óspart. Þegar dró
að lokum hljómleikanna
bað Ella áheyrendur um
^ 10. marz 1961-— Alþýðublaðið
OSCAR
PETERSON
tillögur og létu þeir ekki á
sér standa með það. Ella
valdi lagið „Times Have
Changed“ (Tímarnir breyt-
ast) og gall þá í einhverj-
um í fremstu röð: „Já.“ —
Þetta var skilið sem tákn
ánægju með að Ella skyldi
syngja aftur en ekki sem
staðfesting á heiti lagsins.
É!
IGU
* SKALF AF ÓTTA.
Ella er 43 ára gömul,
fædd í Virginíu. Upphaf-
lega ætlaði hún sér að
verða dansmær, en hætti
við það á síðustu stundu,
þegar hún átti að koma
fram á sviði í Harlem. Hún
skalf svo mjög af ótta, að
hún efaðist um að fæturnir
gætu borið hana. Hún á-
kvað því að fara inn á svið-
ið og gera nokkuð, sem
hún var vissari um að hún
gæti: syngja. Og það gerði
hún. Hún söng lag nokkurt,
sem allir eru búnir að
gleyma, nema hún sjálf, —
„Judy“ eftir Carmichael,
höfund lagsins „Stardust.11
Þetta var nokkurs konar
samkeppni og vann Ella
fyrstu verðlaun. 25 dollara
og að auki söngkonustarf
hjá hljómsveitarstjóranum
Chick Webb. Hann sá
strax að hér var á ferðinni
stúlka, sem var með jazz-
inn í blóðinu og hafði til
að bera furðulega rythma-
tilfinningu.
Nokkrum árum síðar sló
hún í gegn með laginu „A
Tisket A Tasket“. Þótt
henni bærist fjöldi freist
andi tilboða var hún um
kyrrt hjá Harlem hljóm-
sveit Chick Webb. Þegar
hann andaðist árið 1939
tók Ella við stjórn hljóm-
sveitarinnar og stjórnaði
henni allt til ársins 1942,
þegar svo margar hljóm-
sveitir leystust upp vegna
stríðsins.
★ Á LÍFSTÍÐAR-
SAMNING.
Allir þekkja Ellu af lög-
unum á síðustu hæggengu
plötunum hennar, Mack
the Knife og EUa Sings
the Cole Porter Song Book.
Þetta er það bezta, sem frá
henni hefur heyrzt á síð-
ari árum og þegar maður
hlustar á þessar plötur,
skilur maður hvers vegna
Norman Granz hefur ráðið
hann upp á lífstíðar samn-
ing.
Sagt er, að Ella byrji
venjulega tónleika sína á
rólegum „Ballöðum", sem
hún heldur mikið upp á,
en síðan hleypi hún í sig
hitamóð og syngi meðal-
hröð lög. Þar er hún
bezt heima og slík lög hæf a
rödd hennar bezt. Skal að-
eins bent á lög eins og
„Lady Be Good“ og „How
High the Moon“ þessu til
sönnunar.
Sem fyrr segir, er Ella
nú á hljómleikaferðalagi
með Oscar Petersen. Hófst
það fyrir mánuði í Berlín
og lýkur £ ísrael £ næsta
mánuði.
iKlauf bæjarbúa i
jtvær andstæður
Madame Blanche Ker-
moal bæjarstjóri mun
halda áfram afskiptum
sínum af stjórnmálum
þrátt fyrir dóm sem hún
hefir fengið (fyrir fjársvik)
og megna óánægju all-
flestra samborgara hennar.
Þessi vígamóða fimm-
tuga rauðhærða kona hef-
ur klofið bæjarbúa í Lef-
frinckoucke skammt frá
Dunkirk í tvær andstæður
og verið öðrum Frökkum
aðhlátursefni vegna grát-
broslegra viðburða, sem
þar hafa átt sér stað.
Madame Blanche Ker-
moal drottnaði yfir bæn-
um með harðsnúinni
vinstri stefnu, unz kona
nokkur, sem áður starfaði
við ráðhúsið, fór til lög-
reglunnar og kærði bæjar-
stjórann fyrir að eyða af
almannafé í bíl handa
sjálfri sér, stinga kampa-
víni handa gamalmenna-
hæli £ vínkjallara sjálfrar
sín, og skreyta heimili
sitt fyrir peninga ætluð-
um skólum, og loks kærði
konan borgarstjórann fyr
ir að taka af peningum
skattgreiðenda til þess að
kaupa handa sér sjónvarps
tæki og ísskáp.
Þá kærði konan borg-
arstjórann fyrir að hald-
ast við völd með atkvæða-
fölsunum.
í réttarhöldum í Dun-
kirk nýlega var bæjarstjór
inn dæmdur £ eins árs
fangelsi fyrir að misbrúka
fé og falsa atkvæði.
En áður en dómstólam-
ir gripu í taumana og
sviptu Madame Blanche
völdum kallaði hún saman
fund í bæjarstjórninni. —
Bæjarstjórnin kaus hana
heiðursbæjarstjóra og kaus
ennfremur bæjarstjóra til
bráðabirgða, sem gegna
skyldi störfum í fjarveru
hennar. Stuðningsmenn
hennar sögðu furðu lostn-
um Parísarblaðamanni:
„Þið Parísarbúar eigið
kannski erfitt með að trúa
þessu, en bæjarstjórinn
nýtur okkar fyllsita
trausts.“
WALTER SCOl
— rithöfundi
skozki, sem var
á árunum 177
1832 varg þess
urs aðnjótandi
1832, að aðdát
hans og landar i
stóra myndastyt
honum í Glasgo'
Hún er upp á 2
hárrr súlu, sem
haflega var :
Georgi konungi
En nú á að fjarl
bæði styttuna oj
una til þess að
fyrir þremur
brunnum, sem
að tákna tjarn
þrjár í Glasgow.
Ýmsa sveið þe
kvörðun sárt, en
lertt lætur ahnei
ur sér þetta í
rúmi liggja. Svo
ist sem Walter
sé öllum gleyr
jafnvel löndum
um.
Einnig getur
að mönnum þyki
erns vænt unt st
af frægum möi
eins og fyrr á s
Nýlega var flutt
stytta af David
ingstone án þe
nokkrum mótm
væri hreyft.
'■»»%%%%%%%%%%%%%%*
LESA
MEST
N orðurlandaþj óði
^ru í hópi þeirra 7
hióða, sem lesa me
segir í síðasta hefti
bæklingsins „Facl
Figures.“ Listinn er
leið:
Bretar 573 blöð s
1900 íbúa, talan er f
"Ivíar 464, frá 1958,
Horgarar 429, frí
'rínnar 420, frá 1
■’dingar 389, fr:
T "ðmenn 368, fr.
Danir 357, frá 195£