Alþýðublaðið - 10.03.1961, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 10.03.1961, Blaðsíða 13
MUWHUVmWMUUVMWVUUiUiHiUiUWWmvmmw Noirænf sambgnd ungra jafnabar- ■ IIIII II■ 11 fllllllM■I IIMI* manna stofnað '62 UNGIR jafnaðannenn á Norðurlöndum Kafa lengi haft með sér samstarf á ýmsum sviðum, Undanfarin ár hefur sérstök norrœn sam vinnuefnd haft með sameig- inleg mál unghrevfinganna að gera. Samband ungra jafn aðarmanna á Islandi hefur átt fulltrúa í sainvinnunefnd inni og er hann nú Björgvin Guðmundsson, formaður SUJ. Starf samvinnunefndar- innar hefur reynzt svo vel, að norrænu unghreyfingarn- ar hafa nú í hyggju að hafa með sér enn nánara sam- starf. Samvinnunefndin hefur lagt til, að stofnað verði heildarsamband ungra nor- rænna jafnaðarmanna, For- bundet Nordens socialdemo- kratiske ungdom. Stofnend- ur Sambands ungra jafnað- armanna á Norðurlöndum yrðu Danmarks socialdemo- kratiske ungdom, Social- demokratiske ungdoms Cent ralforbund í Finnlandi, Sam band ungra jafnaðarmanna á Islandi, Arbeideres Ung- domsfylkig í Noregi og Svcr iges socialdemokratiska ung- domsforbund. Tilgangur SUJ á Norður- löndum á að vera sá, að síarfa sem heildai'samtök fyr ir unghreyfingar . jafnaðar- manna í Danmörku, Finn- landi, fslandi, Noregi og Svíþjóð, og sem siík annast hið norræna samstarf og jafn framt á alþjóðlegum vett- vangi. SUJ á Norðurlöndum á að vinna að samhæfingu starf semi meðlimasambandanna á allan þann hátt sem mögu- legt er, vekja lathygli á mál- efnalegri afstöðu ungs fólks og afla fylgis hugmyndinni um sameinuð Norðurlönd. Áætlað er, að stjórn sam- takanna verði skipuð 11 mönnum, tveirn frá hverju landanna og formanni, sem kosinn verður sérstaklega á þingi samtakanna, sem háð verði annað hvert ár. Búast má við, að nokkurn tíma taki að koma þessum norrænu samtökum á fót. — Stofnun sambandsins og að- ild að því verður að sam- þykkja á þingum samband- anna á Norðurlöndunum öll- um. Guðmundsson, var staddur í Kaupmannahöfn fyrir skömmu. Sótti hann fram- kvæmdaráðsfund dönsku unghreyfingarinnar, þar sem þetla mál var rætt á- samt ýmsum öðrum, sem leggja á fyrir þing DSU. Björgvin hefur skýrt frá því, að mikill áuhgi sé fyrir því í Danmörku að stofnað verði SUJ á Norðurlönduni. Ungir jafnaðarmenn á ís- landi munu vafalaust einnig gerast aðilar að því. Áætlað er, að hægt verði að halda stofnþing Sambands ungra jafnaðarmanna á Norðvjrlöndum árið 1962. Arbeidernes Ungdoms- fylking í Noregi hélt þing sitt um síðustu helgi í Oslo. Væntanlega hefur aðifd AUF verið samþykkt á þinginu, þótt fréttir hafi ekki enn bor izt af því. Ungir jafnaðarmenn í Danmörku (DSU) munu halda þing sitt um mánaðar- mótin marz-apríl og þar verður stofnun sambandsins á dagskrá og má efalaust telja að hún verði samþykkt. Formaður SUJ, Björgvin heimili bráðlega FÉLAG ungra jafnaðar- manna í Reykjavík tók 15. dcsember sl. á leigu fjórðu hæð hússins að Stórholti 1. I»ar hefur síðan verrð unn- ið að því, að innrétta hús- næðið fyrir félagsheimili. Hæðin er 150 fermetrar að flatarmáli, undrr risi. Á henni verður um 100 ferm. salur, eldhús, geymslur, sal erni og gangar. Salurinn mun geta rúmað við borð á milli 60 og 70 manns. Stjóm FUJ hefur starfað sem félagsheimilisnefnd og annast allar daglegar fram kvæmdir. Fjölmargir félag ar hafa lagt mikla vinnu fram við innréttingar á hús næðinu og einnig ýmis kon ar sérfræðilega aðstoð. Búizt er við að hægt verði að vígja félagsheiniilið eft- ir nokkra daga, lililbga sunnudaginn 19. marz næstk. Fyrhhugað er, að í Fé- lagsheimiiinu, sem verður eittglæsilegasta félagsheimili æskulýðsfélags í Reykjavík, verði haldið uppr margs konar tÚmstunda- og skemmtistarfsemi. Þarna eiga ungir jafnaðarmenn og kunningjar þeirra að geta komið saman flest kvöld vrk unnar sér til gagns og gam- ans. Ennþá er margt óunnið áður en hægt verði að taka félagsheimili FUJ til notkun ar. Sem fyrr segir er von- ast til að það verði sunnu- daginn 19. marz. Það er því ekki nema rúm vika til stefnu. Stjórn FUJ leggur ó það ríka áherzlu að félag- ar taki nú þátt í að leggja síðustu hönd á verkið. Þeir félagar í FUJ í Reykjavík, Sem vilja hjálpa til ættu að gefa sig fram við formanninn, Sigurð Guð- mundsson. — FUJ-félagar! Takið þátt í að gera það að veruleika, að félag ykkar hafi til umráða myndarlegt husnæði til skemmlunar og starfs. MYNDIN: — Ungur FUJ- félagi, hjálpar til við inn- réttingar félagsheimilis- ins. Ritstjóri: Björn Jóhannsson. Alþýðublaðið — 10. marz 1961 13

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.