Alþýðublaðið - 14.03.1961, Blaðsíða 16

Alþýðublaðið - 14.03.1961, Blaðsíða 16
ISVONA brást skopteiknari Politiken vilð, þegar fréttin barst um ;! handtöku dönsku fegurðardísarinnar Lise Bodin fyrir meinta þátt- töku í barnsráninu í Frakklandi, sem mjög hefur verið ræft undan- «; - farna daga. Textinn undir teikningunni: „Danskar stúlkur eru mjög ;! | eftirsóttar erlendis um þessar mundir.“ !; WtWmMWWWtWWtWWtWlW.WWtWtWVlVWWWMWVWMVWWWWWMWW Á VORI komanda verður haf izt handa um að reisa stöð tii sjóeldis á laxi og silungi í Búða ósum á Snæfellsnesi. Kostnað- itrinn við stöðina er áætlaður 3 miiljónir króna. Hlutafélag verður stofnað í sambandi við t>etta mikla fyrirtæki, og hefur stjórn félagsins þegar verið val in. Gísli Indriðason Skýrði blaða mönnum frá þessu á fundi í gær, og sagði nánar frá tildrög Indriði G. Þor- steinsson kjörinn formaður B.í. ÁÐALFUNDUR Blaðamanna- félags íslands var haldinn á Hótel Borg sh sunnudag. Frá farandi formaðu,. félagsins flutti skýrslu um starfsemi fé lagsins sl. starfsár. Formaður f.vrir næsta starfsár var kjör- inn Indriði G. Þorsteinsson, en aðrir í stjórn voru kjörn- ir: Jón Magnússon, Atli Stein arsson, Björn Jóhannsson og Högni Torfason. Framhald á 15. síðu. um þessarar hugmyndarÞað var árið 1956 að hann kom fram með þá hugmynd, að ala lax- fiska, sérstaklega sjóbirting og sjóbleikju, í sjó að loknu eðli- legu ferskvatnseldi. Leitaði hann þá fjárhagslegs stuðnings til þessara tilrauna, en það tókst ekki sökum þess að ráða- menn töldu slíka aðferð ó- þe'kkta, og ólíklegt að hún tsék ist með arðvænlegum árangri. Síðar kom í ljós að þessar til raunir hafa verið framkvæmdar í Noregi um 5 ára skeið með mjög góðum árangri. Fór Gísli þá þegar til Noregs með það í huga, að kynna sér þessi mál betur. Það voru tveir bræður, arkitekt og garðyrkjufræðing- ur, sem árið 1955 hófu að hyggja smá stöð til sjóeldistil- rauna á laxi í Noregi. Náðu þeir nokkrum löxum með ádrætti í sjó, og settu þá í sjóeldis- „damma". Fyrst voru laxarnir tregir að taka fæðið, en að lok um fóru þeir að taka bita, og með vorinu og hækkandi sól tóku þeir að dafna. Haustið ’56 voru svo tekin hrogn og svil úr þessum löx- um, og þeim síðan sleppt í sjó- eldistjarnirnar, og gekk eldi þeirra eðlilega síðan. Nú er bú- I íð að taka hrogn og svil úr þess ] um sömu löxum þrisvar sinn- um, eða fjórum sinnum samtals og lifa þeir enn við góða heilsu. | Eftir þessu að dæma, er hægt að ala upp lax í sjóeldi, þannig j að þroski hans og vöxtur verði svipaður eins og í frjálsu lífi væri. í Noregi eru nú í bygg- ingu eða fullbyggðar um 60 sjó- eldisstöðvar, og á næsta ári verða þær sennilega um 120. Slíka reynslu hafa Norðmenn fengið af þessum tilraunum. Hin góða reynsla af sjóeldinu hefur m. a. komið fram í því, að það nægja 3,8 kg. af fóðri til að framleiða 1 kg. af matfiski. Til samanburðar má nefna að aðrar þjóðir þurfa allt að 10 kg. Gísli sagði, að svo væri mál- um 'komið hér, að engin lána stofnun teldi sér viðkomandi að lána til fiskræktar eins og annarra atvinnuvega, enda hef ur Gísli ekki notið neins op- inbers stuðnings til þessa starfa sinna. Því hefur ú verið tekið það ráð að stofna hlutafélag, og er nú hlutafjársöfnun í full- um gangi. Stjórn hins nýja félags skipa þessir menn: Gísli Indriðason, Ólafur Finsen, Benedikt Gutt- ormsson, Áki Jakobsson og Sturlaugur Böðvarsson. 42. árg. — Þriðjudagur 14. marz 1961 — 61. tbl. Hvatti bændiar til að nota eitur í ÚTVARPINU í gærkvöldi mátti heyra marg endurtekna tilkynningu þess efnis, að bænd ur væru varaðir við því, að nota vítissóda eða önnur eiturefni til þvotta á mjólkurílátum. Það var tekið fram að tilkynning þessi væri lesin að gefnu tilefni. Þar sem þetta var mjög ó- vanaleg tilkynning, þá aflaði Alþýðublaðið sér upplýsinga um tildrög hennar. Kom þá í ljós, að tilkynningin hafði ver- ið lesin vegna þess, að fulltrúi Búnaðarfélagsins hafði flutt er indi í útvarpið fyrr um daginn, og í því erindi hvatt bændur til að nota m. a. vítisóda til þvotta á mjólkurílátum. Nú er það svo að vítisódinn er talinn það mikið eitur að hann er merktur með þrem krossum, eins og gert er við svæsnustu eiturtegundir. Einnig kom það í ljós við eft- irgrennslanir blaðsins, að sami maðurinn er flutti erindið í út- varpið, mun hafa skrifað í ár bók bænda, og þá einnig hvatt til notkunar vítisóda við þvotta á mjólkurílátum. Hvað það er, sem kemur manninum til að mæla svo mjög með notkun þessa efnis, veit enginn. FLO.KKURINN Fulltrúaráð Alþýðu- flokksins í Reykjavík held ur fund um bæjarmálin annað kvöld kl. 8.30 í Fé- lagsheimili múrara og raf virkja að Freyjugötu 27. Magnús Astmarsson bæjai fulltrúi Alþýðuflokksins flytur framsöguræðu um bæjarmálin. Síðan vcrða | frjálsar umræður. SVARA ÞEIR [ / KVÖLD ? í ÚTVARPSUMRÆÐUNUM í gærkvöldi um vantraust það, er Framsókn og kommar hafa borið fram á ríkis- stjórnina, beindi Gylfi Þ. Gíslason viðskiptamálaáðherra þessum fjórum ispurningum til stjórnarandstöðunnar og kvaðst vilja fá skýr og ákveðin svör í umæðunum í kvöld: 1. Ef Framsókn og Alþýðuhandalagið fengju meiri- hluta í næstu kosningum, myndu þeir þá gera tilraun til stjórnarmyndunar einir? 2. /Ef þeir mynduðu ríkisstjórn, myndu þeir þá keppa að því að halda einu og sama gengi fyrir alla útflutn- ingsframleiðsluna eða myndu þeir taka aftur upp bóta- kerfi? 3. Ef þeir mynduðu ríkisstjórn myndu þeir þá keppa að því að viðhalda því viðskiptafrelsi, sem nú héfur verið komið á, eða imyndu þeir taka aftur upp þau víðtæku innflutningshöft, sem áður höfðu verið við lýði í nærfellt 30 ár? 4. Ef þeir mynduðu ríkisstjórn myndu þeir þá segja tafarlaust upp varnarsamningnum við Bandaríkin? Flokkar, isem bcra fnn vantraust á ríkisstjóm, gcta ekki treyst á það, að vantraustið sé fellt. Þeir verða þess vegna að vera reiðubúnir að skýra þjóðinni frá því hvað þeir vildu gera fengju þeir völdin. Framsókn og kommúnistar hljóta því að geta svarað þessum fyrir- spurnum Gylfa Þ. Gíslasonar. Alþýðublaðið hvetur al- S menning til þess að taka vel eftir því við umræðurnar jj í kvöld hvort þeir svara eða ekki. '

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.