Alþýðublaðið - 15.03.1961, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 15.03.1961, Blaðsíða 12
beholder, og herfra b!e det a\J 'uft- trykket spröytet i en jevn ström gjen- nom et dreihart stráierör. Men opp- finneisen bleglemtogi middelalderer Alt i det Z árhundre f Kr. fant den gresKe .ingeniör’ Ktesibios B\> Aiexan- dria opp en brannspröyte. To hánddreu- ne pumper som var bundet sammen, sendte oé skift vannet inn i en trykk- elier rev husene ned. (Nes'ce: Nyere spröyter) SLOKKVITÆKI I FQRNÖLD: Þegar á 2. öld f. Kr. fann hinn gríski ,,verkfræðingur“ Ktesibios frá Alexandríu upp slökkvitæki. Tvær handknúnar dælur, sem voru festar saman, þrýstu til skiptis vatninu inn í þrýstirör, en þaðan þeyttist það vegna loftþrýstingsins í jöfhum straumum út í gegnum hreyfanlegt rör. En uppfinningin gleymdist og á miðöidum slökktu menn elda með því að nota fötur — í nevð með litlum handdælum, eða rifu hús- in niður. (Nýrri slökkvi- tæki). ★ Hann: Ó, ég er svo þyrst- ur. Hún: Þér getið fengið vatn. Hann: Þér misskiljið mig, ég er þyrstur en ekki óhreinn. Samningar yfir manna SUNNUDAGINN 12. febrúar I síðastiiðinn birtist grein í Al- þýðublaðinu með yfirskriftinni: „Þurfa yfirmenn hærri laun?“ Þar sem grein þessi virðist skrif uð af hreinum ókunnugleik höf undar eða af rætni í garð þeirr ar stéttar, er þar um ræðir, óska ég eftir að fá birta leið- réttingu í blaði yðar. Mörg undanfarm ár hafa yfir menn á bátaflotanum harizt fyr ir að fá fram í samningum á- kveðna örorku og dánarbóta- tryggingu. Við síðustu samn- inga þessara aðila var talið, að slíkir saminngar hefðu tekizt. Mér er vel kunnugt um, að fjölda margir aðilar frá beggja hálfu töldu svo vera. Nú fór það svo, er slys hafði orðið og hefja skyldi dánarbótagreiðslu, að þeir formgallar voru á samn ingi þessum, að þær greiðslur fengust ekki, þar sem ókunn ugt var um orsök slyssins. Allir, sem einhvern vott hafa af skilningi, hljóta að skilja það að þetta var ckkur ekki sárs- aukalaust, svo mikið sem fyrir jþvi hrfði verið barizt. Ég vil því fullyrða, að það var heitstreng- I ing hvers og eins einasta manns er að samningum þessum gekk að þessu sinni, að skrifa aldrei- nafn sitt undir þá nema þessi réttarbót fengist. Þetta er sann leikurinn um samningana. Fyr ir að fá þetta mál fram gáfu yf- irmenn eftir af kaupi sínu kr. 300,00 á mánuði. Get ég því ekki skilið hvar Alþýðublaðið hefur fengið fréttir sínar um þessa gífurlegu kauphækkun- arkröfur yfirmanna. Um launa kjör yfirmanna skal ég ekki deila, en ég tel góðum yfir- manni aldrei of borgað. Laun þeirra fara að öllu leyti eftir dugnaði þeirra og framsýni svo ætti það líka að vera um fleiri stéttir innan þjóðfélagsins. Það er persónuleg skoðun mín ,að da^blöð séu eitt mesta menningartæki hverrar þjóð- ar. Almenningur hefur þar að- gang að vitneskju um hvað er að gerast hverju sinni innan þjóðfélagsins. Það ríður því ekki lítið á, að þau séu vönduð í málflutníngi Kaup- og kjara- samningar eru yfirleitt við- jkvæm mál, og oftast mun það vera svo, að menn utan þess hrings, sem um þá fjallar, vita afar takmarkað um sannleikan allan. Það er margt sem þar er rætt og ráðgert sem aldrei kem- ur fyrir almennings augu né eyru. Ég myndi hiklaust halda því fram, að banna ætti öll op- inber skrif um samninga, með- an á þeim stendur. Mér hefur virzt að þau skrif tak markist um of af persónuskoð- un þeirra manna, sem um þau fjalla hverju sinni. Svo tel ég að hafi verið í þessu tilfelli. Akranesi, 10. marz 1961. Hallfreður Guðmundsson. Athugasemd Hr. ritstjóri. ÞAR eð stjórnendur Áfayrgð ar og BFÖ hafa hætt sér út á þann hála ís að ráðast að fyrr- verandi samstarfsmanni vegna skrifa Vikutíðinda, og bendlað nafn mitt við það uppistand ei' hlauzt af stofnun Ábyrgðar h.f., og opinberlega haft í frammi rangfærzlur, dylgjur og hótanir í minn garð ef ég segi „eitthvað“, einkum ef fréttablöð skyldu birta greinar um þetta mál, þá vil ég benda þessum mönnum á, að ég er ekki eigandi eða ritstjóri neins blaðs hvað þá blaðahrings. Með þessum hótunum gefa þeir til kynna að ég geti sagt eitthvað er kunni að varpa Ijósi á þetta leiða mál og komi þeim illa ef fréttist. Það er dæmalaust að lögfr., maður eins og B. S. B„ skuli ógna mönnum til að hilma yfir þessi mál. Þessar aðdróttanir neyða mig þvert á móti til að upplýsa þetta mál með þeim hætti er ég tel rétt. Til ráðamanna BFÖ mun ég ekki sækja um leyfi til að segja eða gera það sem ég tel rétt í þessu máli sem öðrum og er óbundinn af lögum BFÖ fyrir þeirra tilveknað, lítið eitt fyrr en ella. Ég harma að bindindishreyf ingunni skuli vera stjórnað af mönnum, sem í augnabliks æsingu hafna friðsamlegri lausn á vandamálum og upp- skera tortryggni og andúð fólks af einstökum klaufa- skap, t. d. að svara Vikutíð- indum; og í frétt af síðasta aðalfundi Rvk-deildar BFÖ, þar gleymdist að það voru fleiri en ég sem fóru frá BFÖ ■ af þessum sökum, m. a. úr stjórn deildarinnar. Það þarf engin snilling til að lesa á milli lína í fréttinni, það er á vantaði um ósamkomulagið. Óþarft var með öllu að nefna þetta utan félagsins. Á þessum vettvangi vil ég ekki ræða nánar þessi mál, er betur hefðu aldrei skeð. Virðingarfyllst, Viggó Oddsson. Friðarfylking Framhald af 4. síðu. sem friðarfylkingin gæti tekið að sér þar. Þingmaðurinn Henry Reuss, sem árum saman hef- ur unnið að því að vekja at- hygli á og stuðning við hug- myndina að friðaríylkingu ungmenna, svaraði Indverj- anum nokkrum dögum síð- ar. Reuss sagði, að ef hinn strangi dómur Indverjans yfir bandarískum ungmenn um væri réttur, „þá er sann arlega úti um okkur. En hví- lík skömm væri ekki að því að gera ekki tilraunina!!! — Það er vel til, að þér hafið rétt fyrir yður f því, að fylk ingin eigi- að starfa annars staðar en í Indlandi. En er það sem við þurfum ekki ef til vill friðarfylking, þar sem ungir Bandaríkjamenn og Indverjar vinna saman að því að færa fagþekkingu, ásamt mikilli vinnu og mannlegri samúð, til þeirra landa, þar sem þeir geta gert mest gagn?“ I •'••I - | -'VV I U N D I R V 3 C NH RYÐMBNSUN & MíMHQÍkjN sl. GELGJUTANGÁ"- SIMl 35-400 12 15. marz 1961 — Alþýðublaffið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.