Alþýðublaðið - 16.04.1961, Blaðsíða 9
i
*m unnu í happdrætti Alþýðublaðsins, Kristinn Breiðfjörð pípulagningameistari og, frú Sigurlaug
óttir og 6 ára dóttir þeirra.
IWllMffllWiHHMMMlifflBaiWMi—W—WHPtWttHiM——I——WB—M—MWI
HÚSGÖGN
Sófasett, 11 gerðir.
Svefnsófar — Svefnbekkir
Svefnstólar — Skrifborð
Klæðaskápar — Kommóður
Sófaborð — Vegghúsgögn — Dívanar.
BÚ S LÓÐ
Sími 18520 — Skipholti 19 (Gengið inn írá Nóatúni).
Sálarrannsóknarfélag Islands
heldur aðalíund í Sjálfstæðishúsinu mánudaginn 17.
“ apríl kl. 8 30 e. h.
Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Að þaim loknum verður flutt stutt erindi.
Stjórnin.
Áskriftarsíminn er 14900
Alþýðublaðið — 16. apríl 1961 .0
ast með
íöfðingja
á þann
:t skyldi
ta sunnu
H. Fyrst
i undan
þeir öfl-
hörfuðu
mtu ekki
en þeir
vel fyrir
ðinganna
)rgina.
síðu.
FYRIR NOICKRU var
dregið í Happdrætti Al-
þýðublaðsins um vinning,
sem marga dreymdi um að
eignast. Hann var eins og
allir vita ferð fyrir tvo
umhverfs jörðina á 80
dögum. Þegar dregið var
korn upp númerið 899, og
kom í ljós að eigandi mið-
ans var Kristinn Breið-
fjörð, pípulagningarmeist-
ari.
Tíðindamaður blaðsins
skrapp heim til Kristns
þegar honum var tilkynnt,
að heppnin hefði verið með
honum, og að í haust gæti
hann ,,skotizt“ ásamt konu
sinni umhverfis jörðina.
Þegar Kristinn kom til
dyra, og við höfðum sagt
honum hverra erinda við
værum komnir varð hann
auðvitað glaður við og
bauð okkur til stofu.
Eg hélt að þið væruð að
fá mig til að leggja pípur,
sagði Kristinn og náði í
konu sína, Sigurlaugu Sig
urfinnsdóttur fram í eld-
hús.
Þegar við spurðum þau,
hvort þau hefðu nokkru
sinni farið út fyrir land-
steinana, svaraði Sigurlaug
því neitandi, og sagði að
hún hefði ekki einu sinni
komið til Vestmannaeyja!
'Við vorum einmitt að
hugsa um að reyna að kom-
ast til Norðurlanda í sum-
ar, sagði Kristinn og brosti.
Ég er nú búinn að vinna í
20 ár, og hef ekki tekið mér
sumarfrí í allan þann
tíma.
Sigurlaug hafði setið
þsgjandi meðan við vor-
um að tala við mann henn-
ar, svo okkur datt í hug að
spyrja hana, hvort hún
hefði áhyggjur af því að
geta kannski ekki komið
börnunum fyrir meðan á
ferðinni stæði.
Nei, það er allt í lagi,
sagði Sigurlaug og hló. Við
eigum ekki nema einn
krakka, 6 ára stelpu, sem
m^mma myndi ugglaust
sjá um.
Kristinn grein nú fram
í, og sagði að hann hefði
aldrei haft trú á neinum
happdrættum, og hefði
ekki búizt við vinningi í
þessu fremur en öðrum.
Ég endurnýjaði miðann
minn daginn áður en dreg
ið var, en ég hef átt tvo
miða frá byrjun.
Við sýndum nú hjónun-
um kort og lýstum fyrir
þeim ferðinni, sem þau eiga
í vændum. Þegar við sögð
um þeim að þau gætu far-
ið landleiðis yfir hluta af
Afríku, þ. e. á milli hafna,
sem skipið kemur til,
spurði Sigurlaug hvort
ekki væri þarna fullt upp
af óþjóðalýð.
Við sögðum henni að
þeirra yrði gætt af örugg-
um fylgdarmönum og þetta
væri alls ekki hættulegt.
Mér er ekkert vel við að
fara í haust, sagði nú Krist
inn, þá fer vinnan aftur að
aukast hjá mér, og þetta er
svo skrambi mikið vinriu-
tap. Ég ætti bara að nota
ferðapeningana til að
kaupa mér nýjan Volvo.
Mig hefur aldrei dreymt
um að geta farið svona
ferð, sagði Sigurlaug. —
Svona tækifæri koma ekki
nema einu sinni á ævini.
Þetta hlýtur að vera stór-
kostlegt.
Þegar við kvöddum sagði
Kristinn: Jæja, við verð-
um nú að fá að hugsa okk
ur um í nokkra daga. —
Svona nokkuð skeður ekki
á hverju kvöldi.
Nú er rétti tíminn til að glerja nýja húsið og skipía
um gler í því gamla.
Búið yður í tíma undir að Iækka hitakostnaðinn á
komandi vetri.
CUDO—einangrunargler sparar yður stór útgjöld
án fyrirhafnar.
Það sem er varanlegast er alltaf ódýrast.
5 ára ábyrgð.
Á milli glerskífanna er blýlisti,
sem festur er við rúður.nar með
sérstöku plastefni sem hefur ó
trúlegan teygjanleika. Glerskif
urnar eru EKKI fa-st bræddar
við blýlistann.
CUDO — rúðan þolir því betur
öll veðurátök, titring og högg.
Þegar rúðan svignar eða þe.nsla
verður í glerinu gefur plastefnið
eftir án þess að samsetningin*
skaðist og glarið brotnar því síði
ur.
Blýlisti
Glerskífur.
CUDOGLER h.f.
Bautarholti 4 — Sími: 12056.