Alþýðublaðið - 16.04.1961, Side 10
MEISTARAMÓT íslands í
körfuknafctleik hélt áfram að
Hálogalandi í fyrrakvöld. Þá
sigraði Ármann (a) í 2. flokki
KR mað 35 stigum gegn 28. —
jSigur Ármenninga var verð
skuldaður, en KR-líðið sýndi
góðan lei'k* og liðið er orðið
nokkuð sterkt.
ÍR sigraði stúdenta í meist-
araflokki karla með 43 stigum
gegn 40.
Þorsteinn Hallgrímsson,
körfuknattleiksmaður á
alþjóðamælikvarða.
tWtMWMWMWWWMtWV
Stúdentar ógnuðu ÍR.
Fyrirfram var almennt álit-
ið að ÍR myndi sigra stúdenta
frekar auðveldlega og úrslit
fyrri hálfleiks benti til þess, en
ÍR ingar skorðu 20 stig gegn
13 stigum stúdenta. Var sam-
leikur ÍR á köflum allgóður.
* 40:39 ÍR í HAG 1. MÍN.
FYRIR LEIKSLOK.
Síðari hálfleikur var spenn-
andi, stúdentar minnkuðu stöð
ugt bilið allan hálfleikinn og
þegar rúm mínúta var til leiks-
loka munaði aðeins einu stigi,
en ÍR-ingar tryggðu sér sigur-
inn með því að skora þrjú stig
áður en dómararnir flautuðu
af, lokatölumar .voru því 43:40
ÍR í vil.
Stúdentar léku nú mun bet-
ur en gegn ÍKF, sýndu meiri
hraða og léttara samspil. Hrafn
Johnsen átti mjög góðan leik
og skoraði 10 stig. Einnig var
Kristinn hættulegur eins og oft
áður og Hafsteinn Sigurðsson
átti einn sinn bezta leik.
I í liði ÍR voru landsliðsmenn
I irnir þrír beztir, Þorsteinn
! Hallgrímsson (7 st.) Guðmund-
i ur Þorsteinsson (11 stig) og
Hólmsteinn Sigurðsson (16 st.)
Ásgeir Guðmundsson og
Davíð Helgason dæmdu leikinn
sæmilega.
íþróttafréftir
í STUTTU MÁLI
RÚSSNESKI bringusunds
maðurinn Golovtj-enko náði
'tflmanum 2:34,3 rnlín. í 200
m. bringusundi í Mosvku.
Hann synti í '25 m. laug.
Á SUNDMÓTI í Karlsruihe
nóðist ágætur árangur. Jácob
sen fékk 56,4 í 100 m. skrið
sundi, Lotter 1:02,8 í 100 m.
flugsundi og Tröger 2:37,3
mín. í 200 m. bringusundi.
Synt. var í 25 m. laug.
16. apríl 1961 — Alþýðublaðið
MMMMMMMWWWMMMMM
2. metra
maðurinn
MyndÍH er tekin við
körfu stádenta og það er
hæsti leíkmaðurinn í liði
ÍR, Guðmundur Þorsteins
son (2.00 m.) sem er með
knötítnn. Ekki vitum við
hvort honum tókst að
skora í þetta sinn. Aðrir,
sem sjást á mynornni eru
stúdentarnir Jón Eysteins
son og Kristinn Jóhanns-
son og Sigurður Gíslason,
ÍR. Ljósmynd Sv. Þor-
móðsson.
Áfturelding
Valur í kvöld
MEISTARAMÓT íslands í
handknattleik heldur áfram í
kvöld og þá mætast 'Valur og
Afturelding og KR og Fram í
meístaraflokki karla, I. deild.
Lið Fram er Mklegt til sig
urs í leiknum gegn KR, en eins
og venjulega munu KR-ingar
ekkí gefa sig fyrr en í fulla
hnefana,
Leikur Vals og Aftureldingar
er þýðingarmikill fyrir bæði
liðin og reyndar ÍR einnig. Það
verður barizt um veruna í I.
deild næs.ta keppnistímabil. Ef
Valur sigrar eða gerir jafntefli,
fellur Afturelding niður í 2.
deild, en ef Afturelding sigrar
verða þrjú áðurnefnd félög að
þreyta keppni ,að nýju.
ENGLAND VANN 9:3!
^ ENGLAND sigraði Skotland
á Wembley lí gær með 9
mörkum gegn 3. Staðan í hálf
leik var 3:0. England hefur aldr
ei skorað svona mörg mörk gégn
Skotlandi og átti frábæran leik,
einn sinn bezta leik í langan
tíma, en iiðið, sem ieikið hefur
nær óbreytt síðustu fimm lands
leiki, hefur, skorað 32 mörk
gegn 8 og' ávallt farið með sigur
af hólmi.
Jimmy Greaves átti frábæran
leik og áttí þátt í 8 af mörkun
um Mörkin: Robson á 8. mín.
Framh. á 14. síðu
KOSS LÍFSINS
Lærið lífgunartilraunir og hjálp í viðlögum á námskeiðunum, sem byrja á
morgun. — Innriíun í síma 14658 kl. 1—5 á morgun.
Rauða kross deiid Reykiavíkur.
*
s
s
s
s
s
s
s
s
s
i
s
N