Alþýðublaðið - 25.04.1961, Blaðsíða 10

Alþýðublaðið - 25.04.1961, Blaðsíða 10
Ritstjóri: Ö rn Eiðsson, Valdimar sigraði í Sfefánsmótinu Á sunnudaginn héldu KR- ingar hið árlega minningar- mót um hinn látna brautryðj- anda, Stefán Gíslason. Mót þetta er 11. Stefánsmótið sem haldið er. Veður voru heldur válynd á sunnudaginn í skíðalandi þeirra KR-inga við Skálafell. Skömmu fyrir hádegi skall á með rigningu og allan daginn var veður heldur dumbungs- legt, nema stutta stund, — er keppni A-flökksmanna hófst. Snjórinn að hverfa. Keppni Stefánsmótsins að þessu sinni var ekki síður yfir- gripsmikil en oft áður, og um 90 keppendur skráðir. Hina nýju skiðalyftu reynd- ist ekki hægt að nota, enda er snjór nú sem óðast að 'hverfa fyrir vorsól og rigningum. Er ekki ólíklegt að mót þetta verði hið síðasta á þessu keppnistímabili skíðamanna. 'TP’ Skemmtiieg braut Steinþórs. Brautin fyrir A og B-flokk lagði hinn kunni skíðakappi, Steinþór Jakobsson, sem hef- ur verið í Bandaríkjunum nú um nokkurt skeið við skíða- MVNDINA tók Jakob Albertsson á Rieders mót inu nú fyrir skemmstu. Það er Valdimar Örnólfs son, sem sést þar í svig keppni, en hann vann Stef ánsmót'ið í sömn grein. kennslu. Brautin var hin skemmtilegasta og hlaut lof skíðamannanna. í A-flokki var Leifur Gísla- son með bezta tímann í fyrri umferð, 53,5 sek., en Valdi- mar Örnólfsson með 2/10 sek. lakari tíma. Seinni umf. var mörgum erfið, brautin orðin grafin nokkuð og heldur tor- farin. Leifur og Steinþór féllu á sama stað, í miðri brautinni, en Valdimar stóð alla leið og rann í mark á langbezta tíma allra keppenda í seinni um- ferðinni, 54,7, og hlaut hann því langbeztan samanlagðan tíma, 108,4 sek. 4 keppendur lúku keppninni. Brautarlengdin í A-flokki var 650-700 m. með 62 hliðum. í B-flokki sigraði bráðefni- legur skíðamaður, Úlfar J. Andrésson. Úlfar hafði nokkra yfirburði (98.3 sek). yfir Hin rik Hermannsson og Einar Þor kelsson (100,6 og 144,9 sek). C-flokkurinn vannst af Sig- urði Einarssyni, sömuleiðis mjög skemmtilegum skíða- manni. 1 kvennaflokki voru yfirburðir Mörtu B. Guðm. algerir, og sama er um sigur Júlíusar Sigurðssonar að segja í drengjaflokknum. ÚRSLIT: A flokkur: Vald. Örn. ÍR 53,7 -f 54,7 = 108,4 sek. Leifur Gíslas., KR 53,5 + 62.5 = 116.0 sek. Bjarni Einarss. KR 56,0 + 64.2 = 120,0 sek. KR-ingur fyrstur - en Ármann sigraði í sveitakeppni Sig. Guðj. KR 54,4 + 72,6 = 127,0 sek. B flokkur: Úlfar Andr. ÍR 98,3 sek. Hinrik Herm. KR 100,6 sek. Einar Þork., KR 144,9 sek. (54 hlið í B-flokki). C flokkur; Sig. Ein., ÍR 72,2 sek. Kvennaflokkur: Marta Guðm., KR 63,9 sek. Arnh. Ámad. Á. 78,6 sek. Karólína, KR 81.9 sek. Drengjaflokkur: Júlíus Magnússon, KR 63,9 s. Jóhann Reynisson, KR 47,2 s. Þórður Sigurj. KR 49,4 sek. — Birgir. — DRENGJAHLAUP Ármanns var háð á sunnudaginn og voru keppendur 18 talsins frá 5 félög um. Úrslit urðu þau, að Þorgeír Guðmundsson, KR, sigraði eftir harða keppni ViS Júlíus Árna soa, Ármanni. Hlaupin var nú öimur leið í þessu hlaupi, en áð ur. hefur vetið gert, byrjað og endað í Hljómskálagarðinum. — Vegalengdin var einnig skemniri eða ca. 1800 m. Úrslit í hlaupinu: / sfuftu máli Á SUNNUDAGINN var háð afmælismót KFK í knattspyrnu innanhúss,. Mótið fór fram í i þróttahúsinu á Keflavíkurflug velli og 10 félög tóku þátt. Til úrslita léku KR og Akurnesingar og sigruðu þeir fyrrnefndu. oOo Hafnfirðingar sigruðu Kefl víkinga i bæjarkeppni í sundi á sunnudag með 47 stigum gegn 41. Keppnin fór fram í Sundhöll Keflavíkur og var hln skemmti legasta. Nánar á morgun. Þorgeir Guðmundss., KR, 5:09,0 Júlíus Árnason, Árm., 5:09,8 Jón Sigurðsson, UMFB, 5:13,6 Valur Guðmundsson, ÍR, 5:14,0 Jón Kjartansson, Árm., 5:17,7 Róbert Jónsson, Árm., 5:18,9 Eiriíkur lugólfsson, KR, 5:20,4 Guðmundur Haraldsson, KR, Kjartan Sigtryggsson, ÍBK, Friðrik Georgsson, ÍBK, Guðmundur Sigurjónsson, Á, Gunnar Sigurgeirsson, ÍR, Þorvarður Björnsson, KR, Grétar Magnússon, ÍBK, Guðmundur Kristinsson, Á, Philip Woolford, KR, Sveinn Pétursson, ÍBK, Friðþjófur Óskarsson, ÍBK. í sveitakeppni var hörð keppni milli Ármanns og KR, en þeir fyrrnefndu sigruðu þó í báðum. Sveitakeppni 3ja manna: Árm. 9 stig, KR 12 stig, ÍBK 26 st. Sveitakeppní 5 manna: Armann 30 stig, KR 35 st. og ÍBK 55 stig. Enska knattspyrnan .. /■ NÚ LÍÐUR að lokum deildar keppninnar og er útséð að mestu hvaða félög hafa unnið sig upp og hver fallið niður. — Hér er skráin: 1. deild: Sigurvegari, Tottenham og falllið Newcastle og Preston. 2. deild: Ipswich og Sheff. Utd. leika í 1. deild næsta ár og Lincoln og Portsmouth falla .niður í 3. deild 3. deild: Sigurvegari er Bury og upp í 2. deild fara með þeim annað hvort Walshall eða Q. Park Rangers, en fjögur félög falla niður í 4. deild og eru örugglega fallin Chesterfield og Cochester. 4. deild: Peterborough, Chrystal Palace og Northampton eru örugg með að leika í 3. deild næsta ár og er líklegt að Bradford fylgi þeim upp. Úrslit skozku bikarkeppninn ar fór fram á laugardag á Hamp den Park og voru áhorfendur 113.000. Celtic og Dunfermline léku til úrslita og varð leikur inn jafntefl; 0:0 Þrátt fyrir markleysið var hann vel leikinn og spennandi. Þau leika aftur á miðvikudag. Walthamstow A. sigraði B. Auckland í úrslitum bikar keppni enskra áhugamanna og fór leikurinn fram á Wembley. Úrslit urðu 2:1 og skoraði hinn 33 ára gamli J. Lewis sigurmark ið. Hann kom hingað meff enska áhugamannalandsliðinu 1956. Leikirnir á I. deild: Arsenal — Birmingh. - Burnley — Card'iff — Fulham — Manch_ C. Newcastle Nott. For. Preston — Sheff. W. - W Brom. - laugardag: Wolves — Blackpool Tottenham West Ham Blackburn — Aston V. — Bolton — Leicester aMnch. U. — Everton — Chelsea 1:5 0:2 4:2 1:1 1:1 4:1 4:1 2:2 2:4 1:2 3:0 Léikirnir á íaugardag: II. deild: Brighton — Huddersf. 2:1 Britsol R. — Sheff, U. 3:1 Der.by — Charlton 2:3 Ipswich — SunderJand 4:0 Leeds — Lincoln 7:0 Leyton — Norwich 1:0 Liverpool — Stoke 3:0 Middlesbro — Portsm. 3:0 Rotherham — Swansea 3:3 Framh. á 14. síðu. Korfu- knatt- leikur ALLS voru háðir 10 leikir í Is landsmótinu í körfuknattleik á föstudagskvöld og sunuudag. Að þeira loknum eru úrslit kunn í tveim flokkum, KR Vjarð íslands meistari í kvennaflokki, sigraði Ármann á föstudag með 28:11. ÍR varð sigurvegari í 2.. flokki kvenua, sigraði KR með 23:9. Línurnar eru einnig farnar að skýrast í öðrum flokkum, senni legt er, að baráttan í 2. fl. karla standi milli ÍR ogT Ármanns, í 3. fl karla milli ÍR og KR og í 4. fl. karla milli ÍR og Ármanns., Úrslit annarra leikja um helg ina: KFR sigraði ÍFK í mfl.. karla 48:44, Ir vani, KR í 4. fl. kai-la 19:14, ÍR vann Hauka 2:0 og KIFRb vann Ármann í 3. fl karla með 28:8. Ármann vann ÍRc i 4. fl. karla 22:2, KR vann ÍRb í 3 fl. karla 28:17, Ármann a vann Ármann b 45:29 og ÍR vann Hauka í 2.. fl karla 75:15. í kvöld heldur íslandsmótið á fram að Hálogalandi og hefst keppnin kl. 20,15. Þá mætast ÍR og KR í 2. fl, karl'a og Ármann og ÍS í mfl. karja. 25. aprí^ 1961 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.