Alþýðublaðið - 24.05.1961, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 24.05.1961, Blaðsíða 3
Seoul, 23. maí. (NTB). HERFORINGJAKLÍKAN í S- Kóreu heldur áfram að hreinsa til í landinu og binda þ:ar með endi á spillinguna þar. 12 lög- reglumenn hafa verið líflátnir fyrir að bregðast skyldu sinni í umferðarstjóm. í síðustu viku voru 20 þúsund manns handtekn ir fyrir ýmis brot, en flest'ir voru istirbingar afmarka fjald■ búðasvæði ísafirði — BÆJARSTJÓRN ísafjarðar samþykkti á s. 1. vetri, að leggja fram fé til þess að útbúa tjald- stæði í Tunguskógi fyrir ferða- menn, svo og að láta byggja þar hús, þar sem komið yrði fyrir salernis- og' hreinlætistækjum. Nú er unnið að framkvæmd málsins. Landið, sem girt verð- ur af sem tjaldþúðarsvæði, er 5923 m2, Húsið, sem byggja á, verður 5x6 metrar að flatarmáli. — Bé. látnir lausir, innan sólarhrings. í dag gengu ný lög í gildí. Með þeir er útgáfa 70 af 110 dagblöð- um í Suður-Kóreu stöðvuð og þau valda því að aðeins 5 af 180 fréttastofum í landinu geta hald ið áfram starfsemi sinni., Sam- kvæmt þessum nýju lögum verð- ur sem sé hvert dagblað :að e'iga sína eigin prentsmiðju og sér- hver f éttastofa verður að eiga sínar eigin símalínur, auk þess sem hún verður að vera í sam- bandi við erlenda frétyastofu. Lög þesSi eiga að leggja grund- völl að raunverulega lýðræðis- legri pressu cg skapa raunveru- legt fréttafrelsi, svo að byltinga- stefnan verði framkvæmd, að því er formaður herforingjaklík unnar liefur lýst yfir. Varafor- maður klíkunnar sagði í ræðu I dag, að líklega yrðu haldnar frjálsar kosn'ingar í landinu þeg ar tími vær.i til þess kominn. Þá yrðu stjórnmálaflokkar leyfðir aftur. Klíkan ætlaði sér ekki að sitja lengur víð völd en nauð- synlegt væri, sagði liann. Herforingjaklíkan hafði í dag í fyrsta sinn samband við banda ríska sendiráðið. Fréttir er bor- izt hafa til Tokyo herma að sam- bandið milli klíkunnar og yfir- herstjórnar SÞ sé ekki eins og bezt verði á kosið Þar sem klík- an hafi kallað suðurkórenskan SÞ-her til þátttöku í bylting- ÖKUFERÐIR UM SUÐURRÍKIN Montgomery, 23. maí. (NTB-Reuter). DEILD úr bandaríska þjóð- verðinum stóð í dag vörð um áætlunarbílastöðina í Montgo- mery í Alabama-ríki í Bandaríkj unum. Var það tilefni þess að hópur hvítra manna og svartra hugðist halda áfram för, sinn'i í hópbíl um Suðurríkin. Er för sú gerð í áróðursskyni fyrir eyð- ingu kynþáttamismunar. Hópurinn kom til Montgomery á hvítasunnudagskvöld og brut ust þá út alvarlegar óeirðir Nú hefur hópurinn tilkynnt að hann muni halda næst til Jackson í Tennessee, en þar hefur þegar verið tilkynnt af æsingamönn- um að honum, og þá negrunum sérstaklega, verði veittar óblíð- ar viðtökur. í Montgomery slös uðust nokkrir þátttakenda, en ný ir sjálfboðaliðar hafa komið í staðinn. Ríkisstjórinn í Mississippiríki, Ross Barnett, hefur lýst yfir því að komi hópurinn í sitt ríki muni honum verða fylgt af her- liði og lögreglu út úr því aft- ur án þess að hann fái tæki- færi til að stanza. í gær kom enn annar hópbíll til Montgomery og voru í lionum 12 amerískir nazistar. Hafði lög reglan fengið skipun um að koma í veg fyrir að hann fengi tækifæri til að stanza. Nazist- arnir voru allir með hakakross- bindi um handlegginn og til- | gangur ferðar þeirra var að láta í Ijós andstöðu við kynþátta- ; jafnræðið. George Rockwell, sem er foringi bandaríska naz- istaflokksins, sagði að flokkur hans hefði einkutn áliuga fyrir Gyðingum og kommúnistum, er hann sagði að hefðu forystu fyr- ir þeim öflum er ynnu að því að koma kynþáttajafnræði á. unni án þess að leita áður leyf- is yfirstjórnar SÞ eins og samn- ingsbundið er. FYRIR nokkrum dög- um hófst ráðstefna í Genf um framtíð Laos. Komu þangað sendi- nefndir 14 ríkja undir forystu utanríkisráðherra sinna og sitja þær nú og þinga um örlög Laos- manna. Ekki vantaði að tekið væri á móti sendi- nefndunum með pompi og pragt og sést hér Dean Rusk utanríkisráðlierra Bandaríkjanna koma til ráðstefnunnar. Evian, 23, maí. (NTB-Reuter).' FULLTRÚAR frönsku ríkis- stjórnarínnar og alsírsku útlaga- stjórnarjnnar hófu að nýju í dag friðarumleitanir í Evian. For- maður alsírsku sendinefndarinn ar, Belkacem Krim, hóf um- ræðurnar í dag en siðan flutt'i formaður frönsku selldinefndar innar, Joxe, Alsírmálaráðherra ávarp sitt. Ráðstefnan var sett s. 1. laugardag. í Evian gengur orðrómur um að alsírska sendinefndin setji það skilyrði fyrir áframhaldandi viðræðum, að alsírski uppreisn arforinginn Mohammed Ben- bella verð þegar í stað látinn laus. Ilann hefur undanfarið verið í fangelsi á eyju einni við Atlantshafsströnd Frakklands en er nú haldið í stofufangelsi í kastala í Loire-dalnum. I Til þessa hafa friðarumleitan- irnar gengið umyrðalaust og eru Alsírmennirnir sagðir hrifnir af móttökum þeim er þeir hafa fengið. Mikill viðbúnaður er í Evian, til að mæta hugsanlegri árás á ráðstefnuna og eru skriðdrekar og loftvarnarbyssur við hótelið, þar sem ráðstefnan fer fram. Vínarborg, 23. maí. (NTB-Reuter). GÓÐAR heimildir í Vín segja, að Krústjov forsæt'isráðherra muni koma til Vinar með lest hinn 2. júní n. k. Mun hann dvelja þar til 5. júní, Sömu i heimildir segja að Kennedy | muni koma t'il Vínar 'að morgni j 3 júní og halda til London að I kvöldi 5. júní. | í París sagði málsvari utanrík isráðuneytisins, að það sem fram liefði komið í uppliafsræðum for manna beggja send'inefndanna sýndi að fjölda hindrana yrði að ryðja úr vegi áður en eining fæst. Málsvarinn sagði einnig, að friðarumleitanirnar, yrðu erf iðar, en engin ástæða væri til að halda að ekki yrði unnt að , komast að samkomulagi. Framkoma viÖ Spán sögð til skammar London, 23. maí. (NTB-AFP). SAMKVÆMT spönskum heim ildum á Butler, innanríkisráð- herra Breta, að hafa sagt við há- degisverð í einkahúsi í Madrid í dag, að það væri til skammar !að Spáni hafði verið haldið svo lengi fyrir utan alþjóðlegt, zam- starf. Ennfremur á hann að hafa sagt, að Spánn væri véigamikill fyrir Vesturlönd. Orð Butlers voru á forsíðum ^brezku blaðanna í dag Ekki | vildi málsvari brezka utanríkis- ráðuneytisins segja neitt um orð hans. Reuter-fréttastofan segir að þingmenn Verkamannaflokks ins muni krefjast þess í neðri deildinni að ríkisstjórnin geri grein fyrir því að" hve miklu leyti skoðun ráðherrans er stefna stjórnarinnar, Ennfremur verður hún beðin að gera skýra grein fyrir afstöðu sinni til ' spænskrar þátttöku í NATO. Alþýðublaðið — 24. maí 1961

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.