Alþýðublaðið - 14.06.1961, Blaðsíða 9
Dauðans matur
RAUNALEG og seiðandi
músik, sem staðið hefur af
sér alla storma og lifað af
kónga, kardínála, flug-
skeyti og menn, eins og t.
d. 'Valentino, er sögð á
hröðu undanhaldi í heima
landi sínu og að jafnvel sé
hætta á því að hún hverfi
af sjónarsviðinu og deyi
hægu andláti, ef ekkert
verður að gert.
ÍC ROKKIÐ VIN-
SÆLLA.
Músik sú, er um rseðir
hér, er argentínsk að upp
runa og nefnist tango.
Er sagt, að rokk, jazz og
nýtízkuleg uppátæki séu
alveg að gera út af við
tangóinn. Blaðamenn í
Buenos Aires voru þvíliku
felmtri slegnir, er þeir
komust að raun um þetta
nú fyrir stuttu, að þeir
ruku upp til handa og fóta
og stofnuðu ,,klúbb tangó-
vina.“ Þarna var efnt til
heljarmikillar tango-dans
keppni og keppzt um hver
gæti dansað sem lengst.
Lengi vel virtust tveir
atvinnudansarar öruggir
um sigurinn, en þegar til
kom, höfðu þeir ekki roð
við pípulagningamanni,
sem fór með sigur
af hólmi að lokum. Hann
og dama hans dönsuðu
maraþon-tangó í 130 klst.!
Vakti þetta að vonum
nokkra forvitni almenn-
ings og áhuga hans á þess-
ari í)ornu > argentínísku í-
þrótt, en til þess var leik-
urinn einmitt gerður.
* ER að deyja út
í ARGENTÍNU.
í spurningaþætti argen-
tínska útvarpsins, nokk-
ars konar „Spurt og
spjallað,“ var mál þetta
tekið til rækilegrar ígrund
unar og þar komst blaða-
maður nokkur að þeirri
niðurstöðu, að tangó væri
dauðans matur. En hins
JÁ, ykkur er vel- <;
komið að horfa eins Jí
og ykkur lystir, hafið !;
þið aldrei séð for- ;[
eldra á göngu með |!
börnin sín, eða hvað? !;
Við erum á leið út ;!
á tjörn til að kenna !;
blessuðum rolling- !;
unum að synda ef þið ;!
eruð forvitin, þá meg !;
ið þið gjarnan koma ;!
með. !;
VWWtWMWWWMWWMMtM
vegar benti hann á það,
að sér virtist sein tangó
væri að ná auknum vin-
sældum í París og í New
York og að jafnvel gæti
svo farið, að tangóinn
hæfist aftur til vegs og
virðingar í þessum tveim
heimsborgum á líkan hátt
og ýmis önnur tízkufyrir-
bæri frá 3. áratugi aldar-
arinnar hafa gert.
Tangóinn á sér gamla
sögu. Argentínubúar hafa
verið frá öndverðu tón-
elskir mjög — og má til
dæmis nefna, að fyrsti
jarðarskikinn, sem seldur
var í Buenos Aires fór
fyrir hest og gítar. Gítar-
leikur var líka ein mesta
skemmtun landsmanna
fram eftir öldum og upp frá
honum þróaðist tangóinn,
arfblandinn Andalúsíu-
músik Spánar.
í byrjun þessarar ald-
ar var tangóinn á hraðri
leið að ná alheimsvinsæld-
um, en sennilega á Rudolf
Valentino drýgstan heiður
inn af því að gera tangó-
inn vinsælan.
MARIA FRIS, príma-
ballerína Hamborgaróper-
unnar, er var af mörgum
talin bezta ballettdansmær
Þýzkalands og aðeins 29
ára að aldri framdi sjálfs-
morð nú fyrir skömmu að
því að talið er.
Hún steyptist niður á leik
sviðið úr 18 metra hæð á
meðan verið var að sýna
Rómeo og Júlíu.
Aður hafði Maria Fris
gert tilraun til sjálfsmorðs
á Spáni.
Astæðan fyrir sjálfs-
morði Ballettdansmærinn-
ar er talin vera sú, að lækn
ar höfðu fyrir nokkru tjáð
henni að mein í öðrum fæti
hennar gæti orðið til þess
að hún yrði að hætta á
f rægðarbr autinni.
»1
Ww
II loGöiin
Aðalstræti 9 — Sími 18860
Fallegar dömu
Poplinkápur
nýkomnar í tízkulitum
Fallegar
Barnakápur
fyrir 17. juní
amavagnar -
Barnakerrur
Ný sending.
Húsgagnaverzlun Austurbæjar
Skólavörðustíg 16.
FYRSTA FLOKKS JAPÖNSK VEIÐARFÆRI
Á stórlækkuðu verði
„AMILAN“ (DuPont) Nælon framleitt af
Toyo Rayon Co. Ltd. —
Nælon taumar 25% verðlækkun
Pylen taumar 25% verðlækkun
Nælon ábót 18% verðlækkun
Pylen ábót 18% verðlækkun
Nælon þorskanetjaslöngur 10% verðlækkun
Nauðsynlegt er að senda pantanir sem fyrst,
svo varan geti komið til landsins í tæka tíð
fyrir næstu vetrarvertíð.
Steinavör hf.,
Norðurstíg 7 — Reykjavík — Sími 24123
Alþýðublaðið — 14. júní 1961 0