Alþýðublaðið - 29.07.1961, Page 13

Alþýðublaðið - 29.07.1961, Page 13
Vitringarnir viff vöggu frelsarans. Aukin vísinda- leg mennfun KONUNGUR KONUNGANNA Frá unglingsárum hefur Samuel Bronston dreymt um að gera kvikmynd um líf Jesú frá Nazaret. Hann vildi gera kvikmynd um líf hans, en ekki aðeins nokkra kafla úr því eins og tíðkast hefur í „stór- myndum“ undanfarinna ára- tuga. Og fyrir hálfu öðru ári hafði Bronston fengið þær milljónir sem nauðsynlegar voru til þess að geta byrjað myndtökuna. Metro-Goldwyn Mayer á stóran hlut í henni og nokkrir auðmenn afgang- inn. Kvikmyndin heitir auðvit- að Konungur konunganna og kemur á markaðinn eftir nokkra mánuði — en líklega dregst það, að hún komi til íslands. Engin bók hefur verið lesin jafn víða og af slíkum inni- leik stm biblían frá sól breyskju hitabeltisins til ís- kulda norðurhjarans hefur hún flutt mannkyni boðskap kærleikans — og enn eru lík ingar hennar og tilvitnanir í hana kunnari öllum almenn ingi en flest önnur bókmenta leg atriði. Það er orð biblí- unnar og sem sönnust mynd af lífi fólksins á dögum Krists, sem Bronston hefur fest á filmu. Undanfarin þrjú ár hef ur hann unnið að myndinni, rætt við fjölda guðfræðinga, kaþólöka, mótmælendur, gyð inga, og færustu fornfræðing ar hafa verið ráðgjafar hans. Bronston gekk jafnvel á fund Jóhannesar páfa XXIII. og hefur hann lagt blessun sína yfir handritið. ,Innimyndir eru teknar í tveim slærstu kvikmyndaver um Evrópu, Sev. og Chamar- tin í Madrid. í myndinni erú 450 senur úr lífi Jesú. Úti- myndir eru teknar á Spáni, og var það valið með tilliti til þess, að mjög svipar til lands- lags í landinu helga. Einnig hafa verið reist heil hverfi, sem eru eins og talið var, að Jerúsalem og Betlehem hafi verið á Krists dögum. Þegar myndatakan stóð sem hæst fór hvirfilbylur yfir Madrid og musterið, sem reist hafði verið með miklum til- kostnaði fauk burt. Krossfestingin var kvik- mynduð f klettóttum hæðum við Alberhe-fljótið, og eyði mörkin þar, sem Jesús baðst fyrir í fjörutíu daga og fjöru tíu nætur var á svipuðum slóðum. Fjallræðan tekur aðeins nokkrar mínútur í myndinni, en samt tók kvi'kmyndun henn ar fleiri mánuði og 7000 menn, konur og börn v.oru fengin í nærliggjandi þorpum. 20.000 manns taka þátt í hinum miklu bardögum Gyðinga og Rómverja. Fjöldi manna ann aðist kaup á klæðaefnum, sem svipaði til þess, er tíðkaðist í Jerúsalem fyrir tvö þúsund árum. Eitt hefur Samúel alltaf Frh. á 14. síðu. Jóhannes skírir í ánni Jórdan. Washington, (UPI). Sérstök nefnd, sem skipuð var til að kanna ástand menntamála í Bandaríkjunum sérstaklega með þörf Banda- ríkjamanna fyrir vísinda- menn í huga, hefur nýlega skilað skýrslu sinni. Segir þar, að Bandaríkjamenn verði að þrefalda fjárframlag sitt til vísindalegrar menntunar fyrir lok þessa áratugs. Telur nefndin að brýn þörf sé á þessari aukningu eigi Bandaríkin að hafa nægilegan fjölda velmenntaðra vísinda- manna í næstu framtíð. Á þessu ári er veitt um 3 billj- ónum dala í þessu skyni, en sú upphæð verður að hafa náð 8,2 billjónum dala 1970. Þetta ætti að tryggja það, að hver ungur Bandaríkjamaður, sem hæfileika hefur á þessu sviði ætti að geta notið þeirrar menntunar, sem hæfileikar hans standa til, vilji hann á annað borð læra. Kennedy hefur fagnað þess- > ari skýrslu og sagði við það tækifæri, að Bandaríkjunum bæri skylda til að nota til fulls alla þá hæfileika sem búa með bandarískum ungling um, það væri nauðsynlegt ör- yggi og velmegun Bandaríkja manna og áframhaldandi þró un vísinda og tækni. ”Auknar framfarir á þessu sviði“ sagði forsetinn, ”eru ekki aðeins öllum til heilla, heldur er það skylda okkar hvers og eins að vinna að þeim eftir mætti.” í skýrslunni eru nokkrar Félagsheimili í smíðum á Hellissandi HELLISSANDI, 27. júlí. Héð- an er lítilla tíðinda að vænta, enda margir í burtu úr kaup túnýíu. Þrír bátar héðan stunda nú síldveiðar fyrir Norðurlandi. Nokkrar /rillur eru gerðar ú/, cn hafa lítið ró ?ð yfir sunnarmánuðina. Annars er atvinna sæm!leg fyrir þá, sem heima eru. T d. er verið að byggja sér félags heimdi, mikið hús, sem er nú þriðja árið { smíðum. Vonir standa tl, að einaötver hluti þess, ef til vill ein álma, kom izt und r þak og verði not- hæfur næsta vetur. Þá vinna tailsvert margir við að byggja fbúðarfblökk við Lóransöðina. Tíðarfar er gott og afkoma fólks yfirleitt ágæt. — G.K. tillögur til úrbóta og eru þess ar helztar: Þar sem hæfileikar til vís- indaistarfa eru fremur sjald- gæfir, ber nauðsyn til að nýta þá alls staðar þar sem þá er að finna. Þeim unglingum fer fjölgandi sem leggja vilja stund á vísindastörf og ef þeirri þróun heldur áfram munu verða helmingi fleiri vísindamenn 1970 en nú. En til þess að svo geti orðið verð ur að auka mjög námsstyrki í vísindagreinum og verja aultnu fé til rannsóknarstofa og háskóla. Á blaðamannafundi var formaður nefndarinnar spurð- ur hvort þessar ráðstafanir væru gerðar vegna vaxandi samkeppni Rússa á þessu sviði. Hann sagði þá, að þessar ráð- stafanir væru ekki gerðar á móti neinum eða til að keppa við neinn, því hinir sönnu and stæðingar væru sjúkdómar og fáfrseði. Forseti stór- þingsins kem- ur i heimsókn FORMAÐUR þingmannasamr bands NATO, Norðmaðurijrin Nils Langhelle, kemur hingað til lands í heimsókn 1. ágúst nk. og mun dveljast hér til 10. ágúst. Nils Langelle er for seti norska stórþingsins og fyrrverandi ráðherra jafnaðar manna. Langhelle Iverður haldin veizla í Sjálfstæðishúsinu þann 2., en daginn eftir mun hann halda norður í land í fylgd með Jóhanni Hafstein, forseta neðri deildar alþingis, en hann er einnig formaður fulltrúa íslands í þingmanna- sambandi NATO. Á Akureyri mun Friðjón Skarphéðinsson bæjarfógeti og forseti samein aðs alþingis taka á móti Lang helle, en síðan mun hann fara í Þingeyjarsýslu, þar sem hann mun renna fyrir lax Langholle er 54 ára gamalli og var hér síðast á ferð í fyrra sumar. Venjan er að formaður bingmannasambands NATO heimsæki aðildarríkin og kem- ur Langhelle hingað i fyrsta sinn sem slíkur. -jfc- SUMAR. Sólskin. Hiti, En vandamál sumar-sól- og góð- viðristízkunnar eru ekki partur af henni lífi. Búning- ur nunnunnar breytist ekki, eins og mcðfylgjandi Alþýðu blaðsmynd ber með scr. Alþýðublaðið — 29. júlí 1961 |_3

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.