Alþýðublaðið - 11.10.1961, Blaðsíða 7
ÁHRIFANNA af aukinni
þjóðerniskennd hinna nýju
ríkja Afríku gætir einnig í
portúgölgku nýlendunni An
gola á vesturströnd álfunn-
ar, En portúgalska stjórnin
vill láta hart mæta hörðu
og hefur sífellt sent liðs-
auka til nýlendunnar að
berjast gegn frelsishreyf-
ingunni, sem þar hefur einn
ig risið upp. Bardagar hafa
geysað í nýlendunni síðan
um miðjan marzmánuð sl.,
en þá gerði Bakongo-ætt-
bálkurinn í norðurhéruð-
um nýlendunnar uppreisn
gegn nýlenduvaldhöfunum,
og barizt er af æ meiri
hörku af beggja hálfu. Ein-
ræðisstjórn Salazars í Portú
gal hefur engin fyrirheit
gefið um að slakað verði á
klónni í nýlendunum.
Myndirnar, sem hér birt-
ast, eru úr kvikmynd NBC-
sjónvarpsins um þjálfun
hinna innfæddu uppreisnar-
manna. Vopnirí eru heldur
fáfengileg, trébyssur, eins
sjá má á myndinni efst til
hægri, en seinna lærðu þeir
að fara með raunveruleg
vopn (neðst til hægri). —
Myndin neðst til vinstri sýn
ir þrjá innborna, sem géng-
ið hafa í lið með uppreisn-
armönnum, en þeir munu
alls vera um 10 þús. að tölu
og sagt er, að Portúgalar
hafi sent gegn þeim 18 þús.
hvíta hermenn. Þó hefur
hermönnunum ekki enn
tekizt að fæla þá burtu úr
felustöðum sínum, og bráð
lega kemur regntíminn.
. « .
.
..
f • ’
'ÍP
. v/
PoM'lti.
Alþýðublaðið — lil. okt. 1961 ^