Alþýðublaðið - 16.11.1961, Side 16

Alþýðublaðið - 16.11.1961, Side 16
mWWWmWWWHWWMWWWMMMMMWMWWMWWWWMmWWMmWWWW í Tízkusýning íLIDÓ Á SUNNUD A.GSKVOLD .var tízkusýning í veitinga- húsinu Lidó og var sýnd vetrartízkan frá Eygló og Feldi. Þetta gafst svo vel, að sýningin var endurtekin a mánudags- og þriðjudags- kvöld og ákveðið hefur ver ið að hafa eina til á föstu dagskvöldið. Sýningar þessar eru nýj- ung að því leyti, að öllum er heimill ókeypis aðgang- ur, en frani að þessu hafa tízkusýningar aðeins verið fyrir viðskiptavini viðkom- andi fyrirtækja. Þessi nýjung vcitinga- hússins Lido, Eyglóar og Feldsins er skemmtileg til- breyting og vonandi að haldi áfram. Franikoma sýn ingarstúlknanna, sem allar eru úr Tízkuskólanum, þótti sérstaklega góð og skemmti leg. Myndin er frá tízkusýn- ingunni. 42. árg. — Fimmtudagur 16. nóv. 1961 — 258. tbl. - 1 Alvarlegt umferbarslys amsæti til beiðurs Jóhönnu Egilsdóttur 'EIK A K V E N N A FÉL A G 11) Framsókn géngst fyrir samsæti til heiðurs Jóhönnu Egils- dottur, formanns félags *US, í tUefni áttatíu ára a'Öníelis héniiar laugar- daginn 25. nóvember. fsamsætið verður í Iðnó ög hefst klukkan 7 síðdeg is með sameiginlegu borð haldi. Allir vinir og vel- unnarar Jóhönnu eru vel- komnir. Allar upplýsingar við- víkjandi hófinu eru gefn- ar á skrifstofu Verka- kvennafélagsins, sími 12931, og hjá Pálínu Þor- finnsdóttur, Urðarstíg 10, sími 13249. Vinsamlegast tilkynnið þátttökuna fyrir 24. þ. m. Féll fram af vinnupalli MJÖG alvarlegt umferðar- slys varð á Reykjanesbraut- ! inni í gær, skammt fyrir ofan Elh’- og fæð/ngarheimilið Sól í vang í Hafnarfirði. Lentu þar saman tvær b freiðar með þeim afleið/’ngum að karlmaður og kvenmaður, sem voru í ann- ; arr/ bifi-eiðinni, blösuðust [al- varlega. 1 Slysið varð um klukkan 9. 45 í gærmorgun, er bifreið, sem mun bafa (komið efúr iheimreiðinni frá Setbergi ók ú á Reykjanesibrautina í veg fyrir Volga-fólksbifreið, sem var á leið austur veginn. Á- reksturinn varð mjög harður, og snérist önnur bifreiðin al- veg við á veginum, en hin þeyttist út í hraun. BÍIstjórinn á Volga-bifreið- inni skrámaðist töluvert og fékk heilahristing, en stúlka sem sat í framsætinu hjá hon um hentist á framrúðuna og skarzt mjög alvarlega í and- liti. Þau voru bæði flutt á Landsspít^lann. Báðar bifreiðarnar skemmd ust svó mikið að þær eru tald ar næst gerónýtar. Bílstjórinn á bifreiðinni, er ók út á Reykjanesbrautina 'segist hgfa stöðvað við gatna mótin og litið vel í kringum sig, en þarna er stöðvunar skylda. Síðan mun hann hafa ekið 'hægt út á Reykjanesbraut ina, og ekk; séð Volga-bifreið- fyrr én hún var um það bil eina bíllengd frá honum. ÞAÐ SLYS varð í gær við hús ið að Mánagötu 20, að fertugur maður féll þar ofan af vinnu- palli n'gur á útidyraþrep og slas aðist mikið. Hann höfuðkúpu- brotnaðj m. a. og einnig mun hann hafa orðið fyrir töluverð- um öðrum meiðslum_ sem ekki voru fullrannsökuð í gærkvöldi. Það var um hádegið í gær, að Sigþór Lárusson, sem er kenn- ari í Austurbæjarskólanum, ætl aði að lagfæra rennu á þak; húss ins, en hann býr þar sjálfur á annarri hæð. Fór hann upp á vinnupalla, sem eru við húsið, c>g gerði við rennuna. Þegar hann var að fara niður í mat, gekk hann eltthvað tæpt á enda vinnupallsins, strikaði fótur og féll .a ður. Var þetta um fimm metra fall, og kom hann r.iður á höfuðið á steinsteyptar tröppur, sem eru fyrir framan húsið. Honum var fljótlega kom 1 Ið til hjálpar, og hann fluttur á Landakotsspítala. I Við rannsókn reyndist hann höfuðkúpubrotinn, en ekki gat blaðið aflað frekari upplýsmga I um meiðsli hans. Sigþór var nokkuð þungt haldinn í gær- kvöldi Seldi fyrir 84.700 mörk í Þýzkalandi TOGARINN Röðull seldi afla sinn í Brcmerhaven í Vestur- Þýzkalandi í gærmorgun. Röðull var mcð 101 lcst, sem scldist fyrir 84.700 mörk. Lido í Bing- nei Bingo í Lido í kvöld! Margir glæsilegir vinn- ingar. - FUJ Skriðan tók bfl- inn með PATREKSFIRÐI í gær: Bíl stjóri nokkur, sem var á 1e/ð t/1 Patreksfjarðar frá ísafirði stöðvaði bíl s!'nn lallskyndilega þegar skr/ða féll fyrir framan hann á veginn. Bílstjórinn fór út úr bílnum og t/1 Mjólkár- kirkjunail/nnar, Sem er þar nkammt frá. En á meðan tók önnur skriða bílinn með sér n/ður í fjöru. Annars hafa litlar slkemmd- ir orgið af völdum hinna miklu skriðufalla og rigninga hér umi slóðir aðrar en á vegum, eins og t. d. á veginum yfir Breiða dalsheiði, sem mun vera ó fær. Ástandið virðist heldur vera að lagast og þurt er x dag. Rigningarnar eru með þeim mestu, sem mælzt hafa í mörg ár. I Kvígindisdal mæld ist úrfellið 101 mm. Er það hið mesta úrfelli, sem þar hef ur mælzt í þau þrjátíu ár, sem stöð'n h>"ur starfað. — Á. P. FLOKKURINN Hafnarfiröi + SPILAKVÖLD Alþýðu flokksfélaganna í Hafnar- firði verður í kvöld í Al- þýðuhúsinu við Strand- götii. Það hefst klukkan 8,3Ó. Allt Alþýðuflokksfólk er hvatt 11 að fjölmenna og taka með sér gesli. MMMMMWMMMMMMtMMMi

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.