Alþýðublaðið - 03.12.1961, Page 4

Alþýðublaðið - 03.12.1961, Page 4
Hannes Hafstein 1861—1961 3 1 i ? ALDARMINNING í Háskólabíóinu sunnudaginn 3. desember kl. 2 eftir.bádegi. DAGSKRÁ: 1 Ræða: Bjarni Benediktsson forsætisráðherra. • Einsöngur: Kristinn Hallsson óperusöngvari. Ræða: Tómas Guðmundsson skáld. Upplestur: Ævar Kvaran leikari, Róbert Arn finnson leikari, Hjörtur Pálsson stúdent. Kórsöngur: Félagar úr Karlakórnum Fóstbræður- Aðgöngumiðar kosta kr. 20,00 og eru seldir við I innganginn eftir kl. 1. Stúdentaráð Háskóla íslands. | Almenna bókafélagið. | Stúdentafélag Reykjavíkur. TILKYNNING um bögglaflutning Að gefnu tilefni' tilkynnist það bér með, að flug- áhöfnum svo og öllum öðrum starfsmönnum fé~ lagsins er óheimilt að taka hvers konar böggla til flutnings með ílugvélum félagsins á milli landa, án þess að þeir séu skrásetttir á tilskilda pappíra. ~ ____ /Cf/AA/JBA/J* Tómstunda- og skemmtiklúbbur æskulýösráös T 7 ÍGULKLÚBBURINN BISKUPINN yfir íslandi hef- ur lyft staf sínum og boðað, að plága muni ganga yfir landið. Ekki mun þess að vænta, að sjór verði að blóði, froskar eða flugur plagi fólk, kvikfénaður falli, engisprettur herji eða 1 myrkur verði um miðjan dag, | heldur sér biskupinn framund- | an eina „verstu plágu menn- I ingarinnar11 — sjónvarpið. I í sambandi við umræður um | skemmtisjónvarp hermanna í Keflavík hafa þau tíðindi gerzt, að margir af andlegum forystu mönnum þjóðarinnar hafa ráð- izt gegn ÍSLENZKU SJON- VARPI ekki síður en hinu er- lenda, lýst því sem plágu og ómenningarstofnun og látið í ljós þá von, að íslenzka þjóðin ifái sem síðast og helzt aldrei sitt eigið sjónvarp. í þessum kór þröngsýni og afturhalds heyrast raddir biskups, rektors, prófessora, skálda, bíóstjóra og annars stórmennis. Þessir menn hafa yfirleitt haft lítil kynni af sjónvarpi, en þá helzt af auglýsingasjón- varpi í Bretlandi eða Banda- ríkjunum. Af stuttum og yfir- borðskenndum kynnum fella þeir stóra dóma og lýsa yfir, að plága sé í vændum, ef íslenzkt sjónvarp verður til. Sjónvarp er aðeins iæki, sem er hvorki vont né gott frekar en til dæmis síminn. Eigum við að banna símann öðrum en biskupi, prófessorum og skáld- um, af því að það er fátt til menningarauka, sem sagt er í síma? Eigum við að banna prentlistina með öllu á íslandi og kalla hana plágu, af því að sumir menn misnota hana til að gefa út æsirit? Til eru 1250 sjónvarpsstöðv- ar í öllum heiminum, og eru þær eins mismunandi og tíma- ritin Skuggar eða Sex annars vegar og biblían hins vegar. — Sennilega hefur biskupsliðið séð eitthvert léttmeti í ensku auglýsingasjónvarp, en ekki haft fyrir að kynna sér skóla- sjónvarp það, sem Cyril Jack- son stjórnar fyrir BBC. Ef til vill hafa þeir séð glæpaleikrit í sjónvarpstæki hólelherbergis í New York og dæma eftir því án þess að athuga, hvað 50 stöðvar, sem opinberir aðilar eða háskólar í Bandaríkjunum eiga, flytja í dagskrám sínum. Það er furðulegt, að mennt- aðir menn skuli fella slíka sleggjudóma um sjónvarpið, og hreint hneyksli, að biskup og prófessorar skuli láta hafa eftir sér svo stórorðar og órök- studdar fullyrðingar, sem hér hafa heyrzt. Eða hvað gengur að íslenzku kirkjunni, ef hún kallar þau tæki plágu, sem hún ætti sjálf að nota til að gegna köllun sinni? Veit ekki biskup íslands, að kennimenn um heim allan hafa séð í sjónvarpi nýtt og á- gætt tæki til að „komast í kall- færi“ við þúsundir manna? Veit hann ekki, að jafnvel í sjálfri háborg auglýsingasjón- varpsins, New York, hafa bisk- upar boðið skemmlidagskrám birginn og fengið milljónir til að hlusta og horfa á sig? Veit ekki biskup vor, að yfir 50 þjóðir eru aðilar að alþjóðlegu útvarps- og sjónvarpssambandi kaþólsku kirkjunnar? Hefur hann aldrei heyrt, hve mikinn áhuga mótmælendasöfnuðir um heim allan hafa á hagnýt- ingu útvarps og sjónvarps til að boða kristindóm og kristi- legt líf? 'Víðsýnir menn á öllum öld- um hafa forðazt að berjazt við dauða hluti, hvort sem eru vindmyllur Don Quixote eða sjónvarp Sigurbjarnar. Þeir taka tækni hverrar kynslóðar og blása í hana lífi, láta hana þjóna æðri hlutverkum. Ef Framhald á 12. síðu. 4 Hlöðudansleikur í kvöld kl. 9 í BURST, Stórholti 1. Fjölmennið. T> ígulklúbburinn 1 I ÞARNA ER PLÁGAN! ÞETTA er ,,plágan“, sem biskup landsins vill losa íslenzku þjóðina við sem lengst: Vísindamaður sjón varpar beint úr smásjá og skýrir svo nnyndiná fyrir nemendum. Þannig er sjónvarp notað á margan hátt til kennslu, en marg- ar slíkar myndir hafa orð ið forláta dagskráratriði fyrir almenna hlustendur, sem aldrei fengju slíka fræðslu öðrum kosti. í greininni ræðst Benedikt á hina þröngsýiiu gagn- rýni á íslenzku sjónvarpi, sem nú er undirbúið. l*W*WHWWHWVVMWtiWmMMMMWMWWWMmWMMW «4 des. 1081 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.