Alþýðublaðið - 04.04.1962, Page 8
rjj)
Kvikmynda-"
safn byggt
í Hollywood
Kvikmyndaver Chaplins í
Hollywood hefur nú veriS selt
Red Skelton, sem notar það
aðallega til að taka myndir
fyrir sjónvarp. Fljótgerðari
og ódýrari kvikmyndir, það
er lausnin, menn virðast því
ekki hafa mikla virðingu fyr
ir fortíðinni,- allra sízt fyrir
Chaplin, eða það skyldu
menn halda eftir breyting-
unum, sem orðið hafa á því,
hvemig er unnið og hvað er
unnið í kvikmyndaverinu,
sem Chaplin rak svo lengi.
Það var ekki aðeins, að Chap-
Jin væri útlendingur í Banda-
ríkjunum allt sitt líf, en hann
var brezkur ríkisborgari, —
heldur hafði hann þar á ofan
margar furðulegar og óþjóð-
legar hugmyndir í kollinum,
svo það er bezt að gleyma
honum, hugsa þeir, sem nú
hafa tekið við gamla verinu
hans Chaplins.
*
Danskur blaðamaður, sem
heimsótti þetta fræga kvik-
myndaver fyrir nokkru, sagð-
ist hafa vonast til að sjá ein-
hvers staðar úti í horni,
spanskreyrstafinn fræga eða
pípuhattinn, en allt þetta er
horfið, menn binda sig ekki
við fortíðina í kvikmynda-
borginni. Hér fer á eftir laus-
leg frásögn af því hvað fyrir
hinn danska blaðamann bar
á ferð hans í Hollywood.
Síðastliðna daga hef ég
spurt marga leikstjóra og
kvikmyndaframleiðendur að
því, hvar kvikmyndasafnið
sé í Hollywood, en flestir
hafa svarað mér undrandi á
svip: Hvað segirðu, eigum við
kvikmyndasafn hér 1 Holly-
wood, það hef ég aldrei
heyrt.
★
í einu úthverfi Hollywood
liggur gamalt auðmannshús,
sem er tveggja hæða timbur-
hús — og skilti fyrir utan
það, „Hollywood Motion Pic-
ture & Television Museum“,
segir gestinum hvað húsið
hafi að geyma. Við fyrstu sýn
virðist það vera tómt og yfir-
gefið og ég geng um nokkur
tóm herbergi, en skrautlega
gerð með tómum innskotum,
þar sem áður hafa auðsjáan-
lega verið innskot fyrir riku-
lega gerðar marmarastyttur.
Loks uppi í turnherbergi
hitti ég mann fyrir. Þar er
fyrir H. nokkur Keith Weeks,
sem strax segir mér, að ég sé
fyrsti gestur safnsins. Hann
tekur að sýna mér það, sem
þarna er að sjá, m. a. tæki
frá 1895, sem 700 myndum
er snúið í með handfangi,
svo að kvikmynd myndast á
tjaldinu. Þar sjáum við sjálf-
: : ■
- -MHkWMMMWV
an Thomas Edison ljós lif-
andi taka á móti nokkrum
vinum sínum eða viðskipta-
vinum. Þá vísar Keith mér
inn í annað herbergi við hlið
ina, en þar liggur pappaaskja
með nokkrum myndum úr
kvikmyndinni „Umhverfis
jörðina á 80 dögum.“ Þar með
hef ég séð allt safnið.
Keith hefur. um margra
ára skeið verið einn af deild-
arframkvæmdarstjórum Me-
tro-Goldwin-Mayer og unnið
við framleiðslu fjölda kvik-
mynda. Fyrir nokkrum árum
hætti hann starfi og hugðist
setjast í helgan stein og
njóta ávaxta vinnu sinnar.
En vinur hans einn stakk þá
upp á því við hann, að hann
ætti að sækja um stöðu for-
stjóra kvikmyndasafns, sem
verið væri að koma því á fót.
Gerði Keith það og var einn
af 400 umsækjendum, en
hlaut embættið. Hæversk-
lega segir hann frá því, að
hann hafi litla hugmynd um
sögu kvikmyndanna, enda
gerizt þess ekki þörf, þar
sem hann þurfi nú að byrja
á því að skipuleggja safnið
og koma því á laggirnar, en
síðar muni hann fá sérfróða
menn til að stárfrækja hinar
ýmsu deildir þess.
— Það er ekki ætlun okkar
að reisa hér rykfallið safn,
sem enginn lítur inn i. í
september ætlum við að rífa
þetta hús og byggja annað,
sem á að verða tilbúið að
ári loknu.
★
Borgarráðið í Los Angeles
hefur gefið land undir bygg-
inguna, en einstaklingar í
Hollywood hafa gefið um 4
milljónir dollara til að reisa
safnhús. Safnhús þetta verð-
ur heldur engin smásmiði,
aðalbyggingin verður hvorki
meira né minna en 10 hæðir
með skrifstofum, sýningar-
sölum, bókasafni og svo loks
veitingastofu á þakhæðinni.
Auk alls þessa verður svo
mikill sýningarsalur fyrir
alls kyns sýningar, og þar
sem safn þetta á fyryst og
fremst að vera það, sem
nefnt er lifandi safn, þá á
að byggja þarna tvö lítil
kvikmyndaver, eitt fyrir kvik
myndir og annað fyrir sjón-
varp, sem eiga að vera í stöð
ugri notkun og starfrækslu.
Ver þessi munu ýmist vera
leigð til einkaframleiðenda
eða hin stóru kvikmyndafé-
lög munu nota þau til að
taka þar smærri stykki. Alls
verða þessi tvö kvikmynda-
ver um 900 fermetrar að
stærð og þau munu útbúin
háum svölum, þaðan sem á-
horfendur geta í gegnum rúð
ur alltaf fylgst með því, sem
þar er verið að gera.
Því miður kemur þessi
hugmynd um að stofna kvik-
myndasafn í Hollywood held-
ur seint. Mikið magn sögu-
legra verðmæta um kvik-
myndimar hefur þegar glat-
ast, og það verður erfitt og
tafsamt verk að mynda gott
kvikmyndasafn. Þótt Keith
voni, að hann nái nokkrum
árangri með því að skipta á
kvikmyndum við söfn utan
Bandaríkjanna. Eitt hefur
safnið þó þegar hlotið, sem
er einstakur dýrgripur, en
það er safn af hinum svo-
nefndu „laterna magicae" —
eða töfraljóskerunum svo-
nefndu, sem voru undanfari
kvikmyndanna. í þessu safni
eru 1800 slíkar „seríur" og
fékkst það fyrir aðeins 45
þús. dali, sem þótti ekki mik-
ið verð fyrir þessa dýrmætu
og sjaldséðu gripi.
★
— Enn er hér ekki mikið
að sjá, en komið aftur eftii
eitt ár, segir Keith nú gest-
um sínum, þá munum við
hafa hér píanó Valentinos.
Enn vantar staf og hatt
Chaplins, en ef til vill verður
þetta upphaf stærsta kvik-
myndasafns heims, þótt seint
hafi verið byrjað á því.
Engan
ruqliru
asP a
II.IÓNIN voru á leii
strætisvagninum og v
ásátt um eitthvert si
sem þurfti úrlausnar
bráðasta.
Þau þráttuðu fram
og að lokum virtist
eiginmaðurinn ætlaði
sitt fram, en rétt þe;
var að ljúka við að
því er virtist mjög i
lega grein fyrir lau
ins, tók kona hans I:
fram í fyrir honum i
„Nei, heyrðu mig
veit alveg hver mín s
á þessu máli, svo að
ekki vera að reyna
mig með öllum þíni
reyndum".
Don Cam
kemur a
Don CamiIIo er '
legur aftur. Leik
Carmine Gallone h(
lokið við kvikmyndí
að nýrri Don Camilli
og auðvitað verðii
Fernandel, sem leik
fræga klerk. í þettí
gerist leikurinn í
en þangað hafði ki
istaforinginn Peppon
kallaður af yfirboður
um, til þess að taka
mikilvægu námskeit
CamiIIo ákveður þá ;
með í förina í þeii
að hann geti á rúi
grund frelsað and
sinn frá villutrúnni.
inn vcrður sá, að I
kemur heim til Ítalíii
efasemda um ágæt
únismans, en einnig
ótta um það, að s
Don CamiIIos hai
breytzt og hann tel
rauðu trú, eftir al'
hann sá austur í Rú
8 4. apríl 1962 - ALÞYÐUBLAÐIÐ