Alþýðublaðið - 08.06.1962, Qupperneq 2
Hltstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Aðstoðarritstjóri:
®jÖrgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími
14 9Q6. —Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu
—10. — Áskriftargjald Kr. 55.00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgef-
andi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannesson.
FRJÁLSARI MENN
ÍSLENDINGAR hafa um langt árabil verið þátt
takendur í efnahagssamstarfi þjóða Vestur-Evrópu
og Norður-Ameríku. Var stofnunin OEEC mynduð
í sambandi við MarshalLhjálpina á sínum tíma,
og gegndi síðan mikilsverðu hlutverki sem mið-
stöð efnahagsmála eftir að þeirri hjálp lauk og
þátttökuríkiln reistu efnahag sinn við eins mynd-
arlega og raun ber vitni. Bandaríkin og Kanada
voru ekki aðilar að því samstarfi nema óbeint. Eft
ir að Vesturálfa var risiin á ný sköpuðust ólík við
horf, og 'hefur stofnunin verið endurskipulögð und
ir 'heitinu OECD — með fullri þátttöku Norður-
Ameríkuríkja.
Síðan heimsstyrjöldinni lauk hefur ísland ver-
ið eitt þeirra landa í Evrópu, sem hafa átt við þrá
látasta efnahagsörðugleika að etja. Eru til þess
margar ástæður og skiljanlegar. Hefur þátttaka
okkar í efnahagssamstarfinu reynzt hin þýðing-
armesta og oft gert okkur kleift að sigrast á vanda
málum. Þar að auki höfum vi'ð fengið margvíslega
tæknilega hjálp frá samtökunum í París, nú síð-
ast hina nosku hagfræðinga, er undirbjuggu fyrstu
fimm ára framkvæmdaáætlun okkar, sem á að taka
gildi um næstu áramót.
Þeir óraunsæju menn, sem annað 'hvort vilja
einangra ísland eða tengja það við kommúnista
ríki Austur-Evrópu, hafa haldið uppi miklum á-
• róðri gegn þátttöku okkar í þessu efnahagsstam-
starfi. Hafa þeir haldið fram, að OEEC og síðar
OECD væru aðeins tæki hins vestræna auðvalds
til að hlekkja okkur. Ekkert er fjær sanni. Þetta
samstarf hefur í engu heft sjálfræði íslendinga
heldur aukið það með því að stuðla að efnahagsleg
um styrk þjóðarinnar. Þegar viðreisnin hófst, var
mjög bent á tengsl hennar við þessar stofnun, sem
þó byggðust aðallega á yfirdráttarlánum, sem við
við fengum til að geta gerbreytt utanríkisviðskipt
um okkar, gert þau frjálsari og afnumið höft og
skriffinnsku. Reynslan talar skýru máli' um þessi
' efni. Við höfum staðið í skilum með þau lán, sem
áttu að vera myllusteinn um háls okkar. Og við-
skiptamálin hafa breytzt svo til batnaðar, að
stjórnarandstæðingar minnast nú helzt aldrei á
þap þegar þeir gagnrýna viðreisnina.
Sannleikurinn er sá, að íslendingar eru nú frjáls
, ari þjóð en þeir voru fyrir viðreisn, af því að skila
menn eru frjálsari en skuldakóngar. Efnahagssam
starfið hefur þannig orðið okkur til góðs, og gefur
sú reynsla okkur ærna ástæðu til að halda áfram
þátitöku okkar í OECD.
Fyrsta tlokks skófatnaður
á heiidsöluverði
Vegna væntanlegra breytinga á húsnæði seljast allar vörur verzlunar-
innar á HEILDSÖLUVERÐI — Meðal annars:
Herraskór .................... Kr. 325,00
Herrabomsur .................... — 155,00
Rúmenskir karlmannaskór .... — 450,00
Karlmannaskóhlífar ............. — 80,00
Iðunar-drengjaskór ............. — 230,00
_ _ ..................... — 180,00
Strigaskór, sléttbotnaðir ...... — 98,00
Leðurstígvél. karlmanna.......... — 486,00
Knattspyrnuskór .............. — 180,00
_ _ ........... _ 290,00
Útlendir karlmannasokkar .....— 35,00
Kvenskór með háum hæl......... — 310,00
— — _ — ........ — 375,00
_ _ _ _ ........ - 598,00
Rúmenskir kengönguskór sterkir
og hentugir í sumarleyfisferðir — 167,00
Kventöflur....................... — 153,00
Barnastrigaskór (fyrir telpur) .. — 85,00
Plast-sandalar (fyrir telpur) .... — 45,00
Uppreimaðir barna-strigaskór .. — 65,00
Margskonar annar skófatnaður
Skóáburður í túbum .......... — 7>50
Skóáburður í dósum .......... — 9>00
Skókrem í glerdósum ......... — °>°0
Kvenskór með lágum hæl ...... — 175,00
_ _ _ - ..... — 215,00
Sérstaklega lágt verð
Allt tyrsta flokks vörur
Rýmingarsalan stendur aðeins 7 daga ennþá
Skóbúð Reykjavíkur
Aðalstræti 8.
HANNES
Á HORNINU
★ Borgin breytir um
svip.
★ Tré gróðursett við
Suðurlandsbraut.
★ Auð grasigróin svæði
svo að borgin geti
dregið andann.
SMÁTT OG SMÁTT — og þó
nokkuð hratt, breytir borgin um
svip. Þó að mjög hafi verið deilt
um Miklubraut og meðal annars
verið bent á það, að brautina út úr
bænum hefði átt að leggja eftir
Bústaðaveginum, þá mun það koma
í ljós, að brautin verður myndarleg
og skemmtileg. Það var ekki svo
gott að átta sig á henni meðan
hún var aðeins komin meðfram
Klambratúni, en nú breytir hún
umhverfinu hið efra og virðist
ætla að verða stórfengleg á okkar
mælikvarða.
ÉG ÞEKKI EKKI fyrirætlanir
borgarverkfræðinga og stjórnar
borgarinnar um umhverfi Miklu-
brautar, en það lítur svo út sem
húsin muni eiga að standa alllangt
frá akreinunum og að auð græn
svæði verði sitt til hvorrar handar
Þannig myndast „lungu“ í borginni
svo að hún geti „andað“ að sér,
„dregið andann“ eins og komist er
að orði stundum um skipulag borga
Þetta er gott og gagnlegt — og
breytir útliti borga til stórra muna.
ÞAÐ ER BÓKSTAFLEGA eins
og manni séu færðar gjafir þegar
borgin tekur svipbreytingum til
bóta. Þannig er þetta við Suður-
landsbraut. Þar hafa verið rudd
moldarbörð og melar til vinstri
handar þegar farið er úr bænum
og hafa stórvirkar vélar verið þar
að verki undanfarnar vikur. Þegar
ég ók þarna um á miðvikudags-
kvöld voru svæðin orðin slétt eins
og stofuborð. Að líkindum verður
Framh. á 12. síðu
2 á. júní 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ