Alþýðublaðið - 08.06.1962, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 08.06.1962, Qupperneq 3
Algeirsborg, 7. júní NTB-AFP, Leynihreyfingin OAS hóf a'ð nýju gereyðingarað'gerðir sínar í dag með hermdarverkaaðgerðum í Algeirsborg. Kveikt var í há- j skólabyggingunni, sem brann til grunna, þar á meðal bókasafn há- skólans um hálf milljón binda. Þá brann barnaheimili á miðborgiuni til grunna eftir að íkveikjusprengj ur höfðu sprungið þar. Engin biirn voru þó í húsinu. Lögreglan hefur fyrirskipað útgöngubann í borg- inni frá kl. 20,30 að kvöldi til 5 að morgni fyrst um sinn. Fjórir Arabar voru drepnir og tveir særð ust af völdum vopnaðra hermdar- verkamanna í miðhluta Algeirs- borgar í morgun. Jacques Saradet, sem áður var yfirmaður 2000 OAS- deildar í Algeirsborg, skírskotaði í dag til OAS að Ieggja niður vopn. Jafnframt bað hann FLN að veita OAS-mönnum sakarupp- gjöf. Hann sagði á blaðamanna- fundi, að OAS hefði tapað, að Evrópumenn yrðu að hætta bar- dögum og hefja samvinnu. „Ef þeir ekki hætta, veröur Algier nýtt Kongó.” Ennfremur hvatti hann Evrópumenn til að flýja ekki land. Þrjár sprengjur sprungu í aðal byggingu háskólans um liádegi í dag og stóð byggingin umsvifa- laust í ljósum loga. Eldminn breiddist út til annarra húsa á lóðinni og tók það slökkviliðið marga tíma að ráða niðurlögum eldsins. OAS tilkynnti um hina ólöglegu útvarpsstöð sína í gærkvöldi, að „vopnahléi” væri lokið og hermd- arverk mundu hefjast að nýju. — Um tveim tírnum síðar byrjuðu sprengingarnar. Talsmaður þjóðernissinna í Roc- her Noir sagði síðar í dag, að nú yrði hert á aðgerðum, er OAS hefði tekið upp aftur „gereyðing- araðgerðir” sínar. Hann kvað hina evrópsku hermdarverkamenn nú verða að taka ákvörðun um það fyrir miðnætti að hve miklu leyti þeir vildu viðurkenna Evian samninginn. Frestur til þátttöku í kosningabaráttunni vegna þjóðar- atkvæðisins rennur út í kvöld. Annar leiðtogi þjóðcmissinna sagði þetta : Evrópumenn verða að taka þátt í þjóðaratkvæðagreiðsl- unni 1. júlí, þó að þeir ekki styðji sjálfstætt Algier. Ef beir ekki gera það, hafa þeir sýnt augljós- lega, að þeir hlýða skipunum OAS og eru samsekir, en þá hafa þeir eyðilagt framtíð sína hér í landi. Mikið var um rán víðs vegar um Algeirsborg í dag, aðallega á pósthúsum. í Bone var einn Evr- ópumaður skotinn til bana. Fouchet, stjórnarfulltrúi Frakka í Algier, kom til Parísar í dag og átti viðræður við de Gaulle, Popi- dou og Joxe, Algiermálaráðherra. MIKILL ELTINGARLEIKUR VIÐ DRUKKINN ÖKUÞÓR andarískur jéðasöngvari skemmfir hér Reykjavíkurlögreglan lenti í fyrrinótt í miklum eltingaleik við drukkinn ökuþór. Var ekið eftir götum borgarinnar á miklum hraða, og eitt sinn á Hringbraut- inni sýndi mælir lögreglubifreið- arinnar yfir 100 km. hraða, og lientist þá bíll hins drukkna manns til og frá á götunni. Miðar vel á Reykja- nes De Gaulle tðlar í kvöld París, 7. júní. NTB-Reuter. Ræðu, sem de Gaulle forseti ætlar að lialda í sjón varp á föstudagskvöld, er beðið með hinni mestu eftir- væntingu. Menn velta því enn fyrir sér, hvað muni ger ast með hinn dauðadæmda, fyrrverandi hersliöfðingja, Edmond Jouhaud, en de Gaulle einn getur nú bjarg- að honum frá dauða. Hægri blaðið’ Paris-Presse telur, að ekkert muni gerast í því máli — hvorki aftaka né náð un - fyrr en íbúar Algier hafa 1. júlí lýst yfir vilja sínum um hver skuli vera framtíðartengsl landsins við Frakkland. tMHMMMMMWmMHMtUW UNGUR bandarískur Ijóðasöngv ari, John Langstaff, kemur til Reykjavíkur í dag, en hér heldur hann þrjár söngskemmtanir á veg um Tónlistarfélagsins. Langstaff hefur fengið góða dóma í Banda- ríkjunum fyrir söng sinn, og þá sérstaklega fyrir söngskemmtanir sem hann liefur haldið fyrir ungl- inga. Hann og kona nans eru m n. þekkt fyrir útgáru á barnabókum með sönglögum Þykir Langstaff hafa góða hæfileika til að hrífa börnin, fá þau til aö syngja með og njóta tónlistarinnar og söngsins. Það hefur lengi vakað fyrir Tón listarfélaginu að koma á sérstök- um tónleikum fyrir ungt fólk. Er það nú að undirbúa nýja deild, sem eingöngu verður ætluð fyrir ungl- inga. Það hefur komið í Ijós á sin fóníutónleikum í vetur, að áhugi ungs fólks fyrir klassískri tónlist er mikill, og þarf nú að gera eitt- hvað til að fullnægja þeim áhuga Á hvítasunnudag mun Langstaff halda söngskemmtun fyrir börn í Tónabíó, og hefst hún klukkan þrjú Þá flytur Páll ísólfsson ávarp, og Lárus Pálsson flytur skýringar með sönglögunum. Miðar verða seldir á þessa skemmtun, og er verð þeirra 20 krónur. Það eru ein dregin tilmæli félagsins, að börn yngri en 10 ára komi ekki nema í fylgd með fullorðnum. Þá verða tónleikar í Austurbæj- bíó í kvöld klukan 7 og á morgun klukkan 4 síðdegis. Undirleikari Langstaff verður Charles Crowder. Á efnisskrá þessara tónleika verða fornir enskir söngvar eftir Henry Purcell og John Dowland. Þá syng ur hann Ijóðaflokk við lög eftir Francis Poulenc, söngva eftir Charles Ives og þrjú lög eftir Schubert úr „Die Schöne Múllerin” Að lokum syngur hann þjóðlög frá ýmsum löndum. SAMKVÆMT upplýsingum vegamálastjóra, gengur vinna vel við Reykjanesbrautina nýju. Þcssa dagana er vinna einnig að hefjast við hinn nýja veg austur yfir fjall, Þrengslaveginn. Rej'kjanesbrautin nýja nær nú senn allt suður undir Hvassahraun og sækist verkið eftir áætlun. Notuð eru stórvirk tæki við vinn una. Unnið hefur verið í allan vetur að þessu og mun þetta vera annað árið, sem unnið er að vegagerð hér sunnanlands — næstum óslitið allan ársius hring. Vinna er einnig að hefjast við austurveginn nýja, sem unnið hefur verið við undanfarin sum- ur. Verður nú byrjað frá Selvogs- vegi, skammt fyrir austan Vind- heima í Ölfusi. Þaðan eru um fjórir kílómetrar þangað, sem hætt var í fyrra og sagðist vega málastjóri vonast til, að vegur- inn mundi ná saman í sumar eða í haust. Aðstaða er fremur erfið til vegagerðar þarna, yfir hraun er að fara og þarf að fylla mikið upp. Vonir standa samt til að þessu ljúki í haust, ef ekkert óvænt kemur fyrir, og fjárskort ur liamlar ekki framkvæmdum. Það var um kl. 3.15 í fyrrinótfc að götulögreglunni var tilkynnt, iJ drukkinn maður væri að aka bif- reið eftir Snorrabraut. Var þegar farið á eftir henni, og sáu lögreglu menn hana við Austurbæjarbió. Þegar hinn drukkni maður varð var við lögreglubílinn setti hann þegar á fulla ferð. Barst nú leikurinn upp í Hlíðar niður á Hringbraut og vestur hana síðan upp á Hofsvallagötu, út á Ægissíðu eftir Tómasarhaganum og tókst lögreglunni að ná bílnum í Sörlaskjóli. Oft á tíðum var ekið á ofsalegri ferð. Er bílstjórinn var færður út úr bílnum, kom í ljós, að það er piltur, sem lögreglan hefur haft mikil afskipti af. bæði fyrir glanna- legan akstur og ýmis konar klandur Var hann töluvert ölvaður. Við yfirheyrslu viðurkenndi hann að hafa neytt áfengis á dans- leik í Vetrargarðinum. Nýtt póst- og s'imahús á Hvammstanga Ilvammstanga, 7. júní. NÍTT póst og símahús var1 tekið í notkun á Hvammstanga 1. júní. Hafizt var handa um bygg- inguna í fyrra, en henni lokið i ár. Hér er um að ræða glæsilega byggingu, þar sem öllu er ágæt- lega haganlega fyrir komið. Er mikil bót að þessu nýja húsi, þar sem póstur og sími eru samein- uð, en áður var póstur og sími aðskilinn. Björn Blöndal, sem. hefur verið póstmaður á llvamma tanga í 40 ár lætur nú af þv£ starfi, en við vígslu hins nýja húss voru honum þökkuð hans störf sem hann hefur gengt með stakri reglusemi og trúmennsku. Debora Þórðardóttir er nú póst og símstjóri á Hvammstanga en hún var áður símstjóri þar. B. G. MUN FJOLGA ORSTJO Níu manna Á AÐALFUNDI Sölumiðstöðv-1 ar hraðfrystihúsanna, sem lauk á miðvikudagskvöld, var samþykkt lagabreyting um ráðningu fleiri framkvæmdastjóra. Fjölgað var í stjórninni úr fimm mönnum í sjö. Fundinum, sem hófst á mið-| vikudag, lauk með því að fluttar voru skýrslur urn markaðs og framleiðslumál. Formaður stjórnar var kjörinn i Elías Þorsteinsson, útgm. Kefla-| vík, varaform. Einar Sigurðsson, útgm. Rvík, og ritari Sigurður Ágústsson, útgm. Stykkishólmi. Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum. Fjöldi nýrra framkvæmda- stjóra, er ráðnir verða er ótiltek inn. Munu þeir fjalla um mark- aðs og framleiðslumál fyrirtækig ins o. fl. Jón Gunnarsson, framkvæmda- stjóri, gaf skýrslu um afurðasölu- mál á lokafundinum. Björn Hall- dórsson gaf skýrslu um ákvæðis- vinnufyrirkomulag í frystiiðn- aði, Óttar Hansson um gæðaetftir- lit og Benedikt Sigurðsson unt vinnuhagræðingu o. fl. » ALÞYÐUBLADIÐ 8. júnf 196Z J

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.