Alþýðublaðið - 08.06.1962, Síða 15

Alþýðublaðið - 08.06.1962, Síða 15
þessar. Ég skal senda yður nokkra pakka á hótelið. Þaer eru beztar. Diplomtes. Það er ekki auðvelt að ná í þær. Mest af þeim fer til ráðuneyta og sendiráða. Nokkuð annað, áður en við núum okkur að verkefn- inu? Hafið ekki áhyggjur af mál tíðum og frítímum. Ég sé um hvort tveggja. Ég hef gaman af því, og ef þér afsakið, þá ætla ég að halda mig nálægt yður á meðan þér eruð hér. „Ekkert annað“, sagði Bond. „Nema að þér verðið að koma til London einhvern tíma“. ,„Aldrei“, sagði Kerim ákveð- inn. „Veðrið og kvenfólkið er alltof kalt. Og ég er stoltur af að hafa yður hér. Það minnir mig á stríðið. Og nú“, hann hringdi bjöllu á skrifborðinu. „Viljið þér kaffið sykurlaust eða með sykri? í Tyrklandi getum við ekki talað alvarlega án kaff is eða raki, og það er of snemmt til að drekka raki“. „Ósætt“. Dyrnar að baki Bond opnuð- ust. Kerim gaf skipun. Dyrun- um var lokað, Kerim opnaði skúffu með lykli og tók upp skjalamöppu og lagði hana á borðið fyrir framan sig. Hann sló flötum lófanum á hana. „Vinur minn“, sagði hann liörkulega, „ég veit ekki hvað segja skal um þetta mál“. Hann hallaði sér aftur í stólnum og hélt saman höndunum fyrir aft an hnakka. „Hefur yður nokk- urn tíma dottið í hug, að starf okkar er dálítið líkt kvikmynda töku? Ég hef svo oft verið búinn að ná öllum leikendum á stað- inn og haldið, að nú gæti ég byrjað. En þá eru það leikararn ir, eða veðrið, eða slys. Og svo er dálítið annað, sem gerist líka, þegar kvikmyndir eru teknar. Ást kemur fram í einhverri mynd, í versta tilfelli, eins og núna, milli aðalleikendanna. Fyrir mér er það atriðið, sem ruglar mig mest, óskiljanlegasta atriðið. Elskar þessi stúlka raun HANN er ekki lofthrædd ur þessi. Hann er að vinna við nýju brúna yfir Forth- fjörð í Skotlandi. Þetta verður lengsta hengibrú í Evrópu, lengdin er rösk- lega lVt míla. Smíði lienn ar verður lokið á miðju næsta ári, en áætlaður byggingarkostnaður er um 1800 milljónir króna. 0 0 í> Þetta var stórt, rétthvrnt her- bergi, þiljað með mahogny allt ,um kring, nema að baki Kerims, þar sem stórt austurlenzkt tjald ■hékk ofan frá lofti og bærðist hægt fyrir golunni, eins og op- inn gluggi væri að baki því. En Það virtist ólíklegt, þar eð ljós kom inn um þrjá, hringlaga glugga. hátt á veggjunum. Ef til vili voru svalir að baki tjaldinu, svalir, sem sköguðu út yfir Gullahornið, sem Bond heyrði gjálfra við húsvegginn. Á ein- um vegg herbergisins var stór mynd af drottningunni og gegnt henni mynd af Churchill tekin í stríðinu. Djúpur bókaskápur stóð við einn vegginn og gegnt honum þægilegur leðursófi. I miðju herberginu stóð svo skrif- borðið, en á því stóðu innan um mikið drasl þrír silfurv’asar, og sá Bond út undan sér, að þar voru innrömmuð skjöl um heið- ursmerki og viðurkenningar frá brezku stjórninni. Kerim kveikti í sígarettu sinni. Hann hnykkti til höfðinu í áttina til tjaldsins. „Vinir okk- ar heimsóttu mig í gær,” sagði hann rólega. „Festu sprengju við vegginn úti. Stilltu hana þannig, að hún næði mér við skrifborðið. Eg var.svo heppinn að hafa tek- ið mér nokkrar mínútur til að slappa af á sófanum þarna með ungri, rúmenskri stúlku, sem enn heldur, að maður muni segja leyndarmál fyrir ástaratlot. Sprengjan sprakk á úrslita- stundu. Eg neitaði að láta það trufla mig, en ég er hræddur um, að reynslan hafi verið fullmikil fyrir stúlkuna. Þegar ég sleppti, fékk hún móðursýkiskast. Eg er hræddur um, að henni hafi fund- izt atlot mín alltof ofsafengin.” Hann veifaði sígarettumunnstykk inu afsakandi. „En það gekk mik ið á að lcoma þessu öllu i samt lag fyrir komu yðar. Nýtt gler í gluggana og myndirnar og allt lyktar af málningu. En,” Ker- im hallaði sér aftur í stólnum og ygldi sig, „það, sem ég skil ekki eru þessi skyndilegu friðslit. — Við lifum mjög vinsamlega í Is- tanbul. Við höfum allir okkar verk að vinna. Slíkt hefur ald- rei gerzt, að mínir ágætu koll- egar lýstu yfir stríði á þennan hátt. Það er dálítið uggvæn- legt. Það fer ekki hjá því, að þetta leiði til vandræða við hina rússnesku vini okkar. Eg neyð- ist til að skamma manninn, sem gerði þetta, þegar ég hef koin- verulega hugmynd sína um yð-, ur? Mun hún elska yður, þegar hún sér yður? Getið þér elskað hana nóg til að fá hana til að koma yfir?“ Bond sagði ekkert. Það var bajp ið að dyrum og yfirbókarinn kom ■ með kaffið og fór út aftur. Bond. smakkaði á kaffinu og lagði boll'h ann frá sér. Það var gott, en. þykkt af korgi. Kérim svalg sitt kaffi í sig og kveikti ser í ann- arri sígarettu. „En það er ekkert, sem við getum gert með þessi ástamál“, hélt Kerim áfram, hálfvegis við. sjálfan sig. „Við getum aðeins beðið og séð, hvað setur. En á meðan kemur annað til“. Hann kallaði sér fram yfir borðið og horfði á Bond með augum, sem skyndilega voru orðin hörð og kænleg. „Það er eitthvað um að vera hjá óvinunum, vinur minn. Það er ekki aðeins þessi tilraun til að losna við mig. Menn eru að koma og fara. Ég hef lítið af stað reyndum“, hann rétti upp stór- an vísifingur og lagði hann að nefninu, „en ég hef þetta'*. Hann klappaði nefi sínu, eins og hann væri að klappa hundi. „En þetta er góður vinur minn, og ég treysti honum“. Hann færði höndina hægt niður á borðið og bætti lágt við, „Og ef ekki værl um svo mikið að tefla, mundl ég segja við yður: „Farið heim, vinur, farið heim. Það er eitt- hvað hér, sem þarf að flýja". Allt í rúmfatnað Tvíbreiði hálfhörinn kominn affc ur. Einnig lakaléreft — Sæng- urveradamask — Fiðurhelt lér- eft — Dúnléreft og dúnn. Verzlunin Snót Vesturgötu 17. . ' WMWWMWWWtMMMW ' 0 izt að því, hvað hann heitir.” Kerim hristi höfuðið. „Þetta er mjög ruglandi. Eg vona, að það komi ckki yðar erindi neitt við.” „En var nauðsynlegt að gera komu mína svona opinbera?” spurði Bond rólega. „Það siðasta sem ég vil, er að flækja yður í þessu öllu saman. Hvers vegna að vera að senda Rollsinn út á flugvöll? Það þýðir bara, að þeir set.ia yður í samband við mig ” Hlátur Kerims var umburðar- lyndur. „Vinur minn, ég verð að útskýra dálítið, sem þér þurfið að vita. Við og Rússar og Banda- ríkjamenn höfum mann á laun- um á öllum hótelum, og við höfum allir mútað embættis- manni í aðalstöðvum leynilög- reglunnar, og við fáum afrit af lista um alla útlendinga, sem koma inn í landið á h.verjum degi loftleiðis, landleiðis og sjó- leiðis. Ef við hefðum haft svo- lítið lengri tíma til umráða, hefði ég getað smvglað yður yfir landa mærin frá Grikklandi. En til hvers? Hinir verða að fá að vita um, að þér eruð kominn líingáð svo að vinur okkar geti sett sig í samband við yður. Hún setti sjálf það skilyrði, að hún gerði sínar eigin ráðstafanir til að hitta yður. Ef til vill treystir hún ekki öryggisráðstöfunum okkar. Hver veit? En hún var ákveðin í þessu, og hún sagði, eins og ég hefði ekki vitað það, að hennar deild mundi þegar í stað tilkynnt um komu yðar.” Kerim yppti miklum öxl- unum. „Hvers vegna ættum við þá að vera að gera henni erfitt fyrir? Eg hef aðeins áhuga á að gera yður þetta þægilegt og ánægjulegt, svo þér hafið að minnsta kosti gaman af förinni — jafnvel þótt hún beri ekki árangur.” Bond hló. „Ég tek það allt aft ur. Ég var búinn að gleyma regl unum, sem gilda á Balkanskaga. Jæja, ég er alla vega háður yð- ar skipunum á meðan ég er hér. Þér segið mér, hvað ég á að gera, og ég geri það“. Kerim bandaði frá sér hend- inni. ,,Og nú, úr því að við erum að tala um þægindi yðar, hvern ig er hótelið yðar? Ég varð hissa, að þér skylduð velja Palas. Það er litl.u betra en hóruhús — það, sem Frakkar kalla baisodrome. Og Rússar venja komur sínar mikið þangað. En það gerir svo sem ekkert til". „Það er ekki mjög slæmt. Ég vildi bara ekki vera á Istanbul- Hilton eða neinu öðru af þess- um fínu hótelum". „Peningar?" Kerim opnaði skúffu og tók fram bunka af nýj um, grænum seðlum. „Hérna eru þúsund tyrknesk pund. Raun verulegt verðmæti þeirra og gangverð á svarta markaðnum er um tuttugu fyrir hvert enskt pund. Hið opinbera gengi er sjö. Segið mér, þegar þér eruð búinn með þau, og þá læt ég yður hafa eins mikið og þér þurfið. Við getum gert upp, þegar ballið er búið. Þetta er drasl, hvort sem er. Allt frá því, að Krösus, fyrsti milljónamæringurinn, fann upp gullpeninga, hafa peningar ver- að falla í verði. Og myndunum á peningunum hefur hrakað jafn hratt og verðmætinu. Fyrst voru gugamyndir á peningunum. Þá myndir konunga. Svo forseta. Og nú er alls ekkert andlit. Sjá- ið þetta“. Kerim kastaði pening unum til Bonds. ,.í dag er þetta aðeins pappír með mynd af op- inberri byggingu og undirskrift gjaldkera. Drasl. Undrið er, að maður skuli enn geta keypt eitt hvað fyrir þá. Jæja. Hvað ann- að? Sígarettur? Ég reyki aðeins BRÖAR- eftir lan Fleming ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 8. júní 1962

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.