Alþýðublaðið - 23.06.1962, Qupperneq 2
G>
Ritstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Aðstoðarritstjóri:
Björgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími
14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentcmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu
8—10. — Áskriftargjald kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgef-
andi: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ásgeir Jóhannesson.
AÐST ÖÐUGJALDIÐ
ALÞINGI samþykkti sl. vetur ný lög um tekju-
stofna sveitarfélaga. í þeim lögum var m. a. gert
ráð fyrir því, að bæjar- og sveitarstjórnir gætu lagt
ó ativinnurekendur svonefnd aðstöðugjöld, er kom
ið gætu í stað veltuútsvaranna, sem jafnframt voru
lögð niður.
Veltuútsvörin gáfu sveitarfélögunum 85 milljón
ir kr. árið 1961 eða ca. 18% af heildarútsvörunum.
Var því augljóst, að ekki væri unnt að fella þau nið
<ur án þess, að sveitarfélögin fengju nýjan tekju-
stofn í staðinn. Eins og nafnið bendir til voru veltu
útsvörin lögð á veltu fyrirtækja en aðstöðugjaldið
verður lagt á samanlögð útgjöld fyrirtækjanna.
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur nú ákveðið
gjaldskrá fyrir aðstöðugjaldið í Reykjavík. Hefur
það verið ákveðið hlutfallslega jafnmikið af útgjöld
um fyrirtækjanna og veltuútsvarið var áður af
tveltunni. En með því að útgjöld fyrirtækjanna eru
nokkru lægri en veltan mun aðstöðugjaldið gefa
nokkru minni tekjur en veltuútsvarið gerði. Borg-
arfulltrúi Alþýðuflokksins tók það skýrt fram í
umræðum um mál þetta, að álagning hins nýja að
: stöðugjalds mætti ekki verða til þess að útsvör al-
mennings yrðu hækkuð. Kvaðst hann vænta, að
'borgarsjóður geti fengið auknar tekjur í útsvörum :
fyri'rtækja sem svaraði þeim tekjumissi er borgin ;
yrði fyrir vegna þess að aðstöðugjaldið verður
lægra en veltuútsvarið var. Má búast við að svo
verði, þar eð hið nýja aðstöðugjald mun gera fram
töl fyrirtækja réttari og örfa til sparnaðar. Munu
skattskyldar tekjur fyrirtækjanna því væntanlega
verða hærri og tekjuútsvör þeirra þá einnig. Ur
þessu fæst skorið eftir fyrsta árið. En verði útkom
an sú, að hið nýja fyrirkomulag verði til-þess að
borgarsjóður fái ekki nægilegar tekjur og borgar-
stjórn telji' sig verða að ná inn rneiri útsvarstekj-
um af almenningi, telur Alþýðuflokkurinn að
hækka verði fremur aðstöðugjöldin strax eftir ár.
I
OPNUM í DAG
nýja glæsilega fata-
verzlun að Laugaveg 95
RUDOLF H.F. FATAVERZLUN
HANNES
Á HORNINU
'k Gegn reykingum.
★ Skortur á forustu.
★ Skorað á landlækni.
★ yirkileikinn
reyndirnar.
og stað-
Tilboð í djúpbát
Tilboð óskast í smíði á nýjum djúpbát úr stáli.
Útboðslýsing og teikning fæst afhent gegn
1000 kr. skilatryggingu á skrifstofu Skipa-
skoðunar ríkisins i Reykjavík. Tilboð séu kom
in í hendur framkvæmdastjóra félagsins,
Matthíasar Bjarnasonar, ísafirði, fyrir l. sept
ember 1962.
ísafirði, 19. júní 1962.
H.f. Djúpbáturinn^ísafirði.
iftarsíminn er 7490?
23. júní 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
VAXANDI AHUGI virðist vera á
því að gera tilraun til að stemma
stigu við reykingum. Það er víst,
að þessi áhugi stafar af þeirri vís-
indalegu niðurstöðu, að sígarettu-
reykingar séu undirrót lungna-
krabba, sem nú fer í TÖxt í nær
öllum löndum og einnig hér á ís-
landi. Á þriðjudaginn birti ég bréf
þar sem bréfritari stakk upp á
breyttum umgengnisvenjum sem
tilraun til að draga úr reykingum.
Nú birti ég annað bréf þar sem
skorað er á landlækni að gangast
fyrir slysavarnastarfi að þessu
leyti:
VEGFARANDISKRIFAR: „Einn
mesti bölvaldur mannkynsins nú á
dögum, er krabbameinið, sem herj-
ar alltaf fastar og fastar á. Sér-
stök tegund meinsins er hinn svo-
nefndi lungnakrabbi, sem vex hröð
um skrefum hjá öllum hinum svo-
nefndu menningarþjóðum. Um þáð
verður ekki lengur deilt, að sígar-
ettureykingarnar eru valdar að
þessari tegund krabbameinsins,
þótt eflaust hjálpi þar fleira til,
svo sem óhollt loftslag i iðnaðar-
borgurri o. m. fl.
ÝMSAR NÁGRANNAÞJÓÐIR
OKKAR hafa af þessu miklar á-
hyggjur sem og allur hinn mennt-
aði heimur. Heilbrigðisyfirvöldin
í ýmsum löndum hyggjast gera ráð-
stafanir til áð draga úr sigarettu-
nautninni, og fá aðstoð ýmsra
góðra lækna í'þessari baráttu.
EN ÞÁ SKULUM VIÐ bregða
okkur heim til gamla Fróns og at-
huga ástandið-hér. Sagan, sem ger-
ist méö öðrum þjóðum. gerist hér
einnig, þ. e. að ' lungnakrabbinn
eykst hröðum skrefum með þjóð-
inni, hefur margfaldast í réttu
hlutfalli við aukningu sígarettu-
reykinga. Hver er afstaða heilbrigð
isyfirvaldanna? Ég spyr: Hverjar
eru aðgerðir okkar ágæta landlækn
is, sem á sínum tíma barðist hetju-
legri baráttu móti berklaveikinni,
sem öllum landslýð mun kunnugt?
ÉG VIL BEINA þeirri ósk til
hans að fá nú lækna og heilbrigð-
m
i!llí!!l!illll!!!!llll!ll!lll!!!llll!illí!!ll!!!!ll!l
isyfirvöldin til virkra starfa og
berjast á móti sígarettureykingum
með öllum hugsanlegum aðgerð-
um. Fyrst og fremst með sterkum
áróðri í blöðum og útvarpi. Sjá um
flutning fræðsluerinda í útvarp um
skaðsemi tóbaksins. Það eru ýmsar
leiðir til að minnka sígarettuneyzl-
una, aðeins ef þeir, sem skylda ber
til að taka að sér sterka forystu til
raunhæfra átaka á móti þessum
mikla bölvaldi, sem nú þjáir mik-
inn hluta heimsins Heilbrigðisyfir-
völdin íslenzku mega ekki vera hér
aðgerðarlaus, þau verða að hefjast
handa. Það hvílir mikil ábyrgð á
þeim og því mega þau ekki gl.eyma.
Skrifstofur vorar
og afgreiðsla að Laugavegi 114, verða lokaðar
mánudaginn 25. júní vegna skemmtiferðar
starfsfólks.
Tryggingastofnun ríkisins.
HÚSBYGGENDUR -
HÚSEIGENDUR
Miðstöðvarlagnir — Geislahitunarlagnir — Vatnslagnir
— Breytingar fyrir hitaveitulagnir o.fl.
T Æ K N I H. F. Súðavog 9 — Símar 33599 - 38250.
LANDSSAMBAND
HESTAMANNAFÉLAGA
TILKYNNIR:
Skráning á kappreiðahrossum sem þátt taka í landskapp-
reiðum í Skóga-hólum við Þingvelli 14. og 15. júlí n.k. fer
fram í skrifstofu Fáks, sími 18978, Klapparstíg 25, Reykja-
vík. og hjá Þorkeli Bjarnasyni, Laugarvatni, dagana 25.
júní til 3. júlí. Skráð verða kappreiðahross í skeiði, 250 m.,
stökki 300 m. og 800 m.
Framkvæmdanefndin.