Alþýðublaðið - 23.06.1962, Page 5
bezta vörnin
UNNIÐ er af kappi að því að
reyna aö grafazt fyrir um tauga-
veikibróöursýkilinn, sem borizt
hefur til Rcykjavíkur og talsvert
margir hafa sýkzt af. Samkvaemt
fréttum frá skrifstofu borgarlækn-
is í gær, hefur enn ekki tekizt
að upplýsa, hvar sýkillinn er, og
ekkert er vitaö um það, hvenær
rannsóknirnar, sem nú standa
yfir bera árangur.
Enn er aðeins um fá dreifð tilfelli
að ræða í Reykjavík, en nokkrir
sjúklinganna hafa verið fluttir
á borgarspítalann, aðrir hafa leg
ið heima, en veikin leggst mjög
misjafnlega á fólk. Sumir fá háan
hita með veikinni, aðrir lítinn sem
engan hita, en sjúkdómseinkenn-
in eru niðurgangur, uppsala og
velgja. * -1
Vegna þess, að ekki hefur tek-
izt að finna sýkilinn, er ekki unnt
að vara fólk við neinu sérstöku
til að forðast veikina. Það eina
sem unnt er að segja með vissu,
er að bezta ráðið gegn þessum vá-
gesti er að gæta ýtrasta hrein-
lætis bæði í meðferð matar og
eins að þvo sér vandlega um
hendur eftir að menn hafa not-
að salerni, en vitað er, að veik-
in getur smitazt á þann veg, að
farið er sóðalega með slíkt.
Geta skal þess, að sjóða vel
þann mat, sem á annað borð er
soðinn, en sýkillinn drepst við
suðu.
Borgarlæknir biður blaðið að
'taka það fram, að fólk, sem haft
hefur framangreind einkenni fyr-
ir nokkru, má ekki vinna við mat
eða framleiðslu án þess að áður
hafi verið gengið úr skugga um
að það sé ekki' með sýkina.
í' KVÖLD verður haldin Jóns-
messtuhátíð aö Árbæ. Safniö verö
ur opin á venjulegum tíma frá
kl. 2 — 6 síödegis, en kl. 8,00 í
kvöld hefst Jónsmessuvaka. Þá
veröur safniö opnað aftur og
veittar kaffiveitingar í Dillons-
húsi. Frá klukkan 9 — 10 leikur
Iúðrasveitin Svanur á palii, sem
komið hefur veriö fyrir á túninu
og dansaðir veröa gömlu dans-
arnir til klukkan 12 á miðnætti
eða lengur, ef veðrið verður gott.
Hlaðinn hefur verið bálköstur á
túninu, og hugmyndin er að dansa
í kringum bálið í kvöld. Lárus
Sigurbjörnsson safnvörður, sagði
í viðtali við Alþýðublaðið í gær,
að hann vonaðist til, að sem flest-
um gæfist kostur á að sjá kvöld-
fegurðina á Árbæ í góðu veðri í
kvöld — en sérstakar ferðir verða
farnar þangað uppeftir kl. 8-9 í
kvöld og aftur í bæinn um kl. 11
og 12, og loks fér Lögbergsvagn-
inn þar hjá um 1-leytið í nótt.
Kveikt verður í bálkestinum
kl. 11 í kvöld, en um miðnættið
nær hátíðleiki Jónsmessukvölds-
Þessa mynd tókum við í gær og sýnir hún lítinn hluta af hinu
mikla bókasafni Þorsteins Þorsteinssonar, fyrrv. sýslumanns. Ríkinu
hefur nú verið boðið safnið til kaups.
Hvað verður um
safn Þorsteins ?
FULLTRUAR erfingja Þor-
steins Þorsteinssonar, fyrrverandi
sýslumanns, hafa nú boðiö ríkinu
hiö mikla bókasafn Þorsteins til
kaups fyrir 4,5 milljónir króna,
eða aöra þá upphæö, sem um
semst.
Margvíslegar sögusagnir hafa
gengið manna á meðal um það,
að selja ætti safnið úr landi og
þá ýmist til Rússlands, Banda-
ríkjanna eða Evrópu.
Það mun vera ósk erfingja Þor
steins, að safnið verði áfram hér
á landi, en tvístrist ekki út um
heim.
Ekkert hefur enn heyrzt um,
hverju þessu tilboði verður svar-
að af hálfu ríkisins.
Tveir fornbóksalar hér í bæn-
um munu hafa gert tilboð í safn-
ið, en ekki hafa boðið nógu hátt.
Ýmsir bókamenn hafa látið þau
orð falla, að safnið væri eklii
eins mikils virði og ætlað var í
fyrstu. í því eru að vísu mjög
margar fágætar bækur, m. a. heil
legasti Passiusálmaflokkur sem
til er. Hins vegar séu margar
bækurnar illa farnar og ekki séu
þær allar fágætar.
Hreinlæti er
Strauk frá
Alsír - „um
Gullfoss'
Kaupmannahöfn.
Danskur strokumaður
úr frönsku útlendingaher-
sveitinni í Alsír er kominn
heill á húfi til Danmerkur
— með Gullfossi.
Maöurinn heitir Helge
Albrechtsen.
Ilann komst frá Alsír sem
laumufarþegi meö danska
skipinu Else Skou og liafnaði
í Skotlandi.
Þar tók hann sér far með
Gullfossi til Kaupmanna-
hafnar.
Álar veiðast
í Skagafirði
Sauðárltróki, 22. júní.
FYRIR nokkru síöan var hol-
lenzkur maður liér á ferð. Erindi
hans var að kynna mönnum ála-
gildrur og álaveiðar. Marteinn
Friðriksson, framkvæmdastjóri á
Sauðárkróki fékk nokkrar gildrur
í tilraunaskyni. Ilann lagði þær í
Áshildarholtsvatn í landi Sjávar-
borgar. Hefur hann vitjað tvisvar
um þær og veitt 7 ála.
Talið er, að veiðin §.é bezt, þeg-
ar nótt fer að dimma. Þessi til-
raun sýnir það, að áll er hér í
Skagafirði, en hve mikið magn er
tim að ræða mun reynslan leiða
í ijós.
Allinn verður sendur til
vinnzlu suður í verksmiðju SÍS í
Hafnarfirði.
M.B.
MESSU-
ý A MORGUN er Jónsmessa
ý en nóttin fyrir Jónsmessu er
ý ein merkasta nótt ársins. Þá-
ý gerast ýmis konar undur og þá
ýins hámarki.
ý er unnt að óska sér dýrmætra
ý óska, ef rétt er að fariö. Ýms-
ý ir velta sér upp úr dögginni á
ý Jónsmessunótt, — en .þá verða
ý þeir heilir af öllum meinum.
ý Margt er það fleira, sem bezt
ý er að gera á Jónsmessunótt.
^ ÞaÖ er t. d. unnt að seiða til
^ sín ástir þeirra, sem maður
ý hefur augastað á meö því aö
^ tína rétt grös og Ieggja undir
^ koddann hennar eða hans og
í þetta hafa margir gert í góðri
trú og kannski með einhverj-
um árangri. Á þessari nóttu
fljóta upp ýmsir dýrmætir
steinar og fleira er þaö, sem
gerist á. þessari heillandi nótt.
Þetta segir m. a. um Jóns-
messunótt í íslenzkum þjóð-
háttum Jónasar frá Hrafna-
gili.
Álónsmessa (24w júní) var
lengi mikill merkisdagur á
Iandi hér og talin heilög, þang
að til hún var numin úr helgi
dagatölu með konungsbréfi
26. okt. 1770. Einkum var afar
mikil trú á Jónsmessunóttinni.
Þá flutu uppi náttúrusteinar
eða komu upp, ef þeir voru til
á jöröu eöa í brunnum, óg
verður þá aö vera viö til aö
ná þeim : þá hljóp kvikasilfur
saman: þá veröur og að taka
lásagras og mjaöjurt og þjófa
rót, ef þau grös eiga að duga
til þess, sem átti að' hafa þau
til,- opna lása og sjá þjófa: þá
er döggin svo heilnæm, aö
manni batna allir sjúkdómar,
ef menn velta sér í hennl alls
berir. Þá er gott að sitja úti
á krossgötum. . . .
Ef votviðri er á Jónsmessu,
veröa óþurrkar um siáttimr,
sbr. vísuna :
vott,
kvíða,
gott
að þurrka .heyin víða.
★
(Náttúrusteinar voru fullir
kynngi). Helzt trúöu menn aö
þá væri að finna á þrem stöð-
um á landi hér: í Drápuhlíðar-
fjalli í Snæfellsnessýslu,
á Kofra viö Álftafjörö í ísa-
fjarðarsýslu og í Tindastóli í
Skagafirði. í fjöllum þessum
eru tjarnir eða brunnar, og
fljóta steinarnir þar upp á
Jónsmessunótt og bregöa sér
á leik, en ekki kvað' vera
vandalaust að ná þeim. Þar
eru bæöi lausnarsteinar, óska-
steinar, huliðshjálmsteinar,
lífsteinar og fleiri. Svo segir
í gömlum fræðum.aö menn skuli
fara að finna brunninn í Tinda
stóli í Skagafirði, og er sú
leiðbeining ætluð Sæmundi
fróða:
„ðlaöur skal ganga í Gler-
hallarvíkurliorn og þaðan 600
faðma tólfræð: þá er maður
kominn á fjallshrygginn. Síð-
an skal ganga 400 faöma tólf-
ræö: þá er komið á einstigi,
sem er 25 faðma Iangt. Þetta
einstigi skal fara, þegar t’yrst
jaðrar á sólu Jónsmessu skír-
ara morgun. Þá finnur maður
brunninn. En þess ber að gæta
aö vera kominn frá brunnin-
um, áöur cn sól er fullrunn-
in upp, því aö annars halda
steinarnir manni föstum.”
★
•Tón Árnason telnr aftur ó-
fært þangað nema meö gand-
reið. . . .
★
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
V
s
Þaö er merkileg nótt i nótt. ^
ÞaÖ er vissara aö vaka og v
reyna að höndla hamingjuna- y
En, ef aö það gleymist í nótt, f
má þó hugga sig viö þaö, ail y
annað tækifæri kemur aö ári. C
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 23. júnf ,1962 £