Alþýðublaðið - 21.07.1962, Side 5
1700
mála
kast
Blaðiff átti tal við síldarleit
ina á Sigiufirði í gærkveldi
og fékk þær fréttir að Víðir
II. Garði hefði í dag fengið
1700 mál í einu kasti 40 míl
ur út af Rifstanga.
Var þetti mjóg faileg síld
og ætlaði Víðir með hana til
Ólafsfjarðar. Frétzt hafði af
nokkrum skipum, sem voru
að kasta á svipuðum sloðúm
og Víðir fékk siidina í dag.
Ægir varð var viff síld við
Kolbeinsey í nótt. en síldin
þar stendur fremur djúpl
35-40 mílur aust-norð-aust
ur af Langanesi veru margir
bátar í vaðandi síid í gær
kveldi og voru að byrja að
kasta. Veður var all gott á
þessum slóðum í gærkveldi.
Straumur báta hefur verið
til Siglufjarðar mcð bræðslu
síld. af austurmiðunum í dag
og verið er að landa með öll
um krönum.
UMMMMMMMMMMMMMW
DEILAN ER 1
UM BARINN
FLEST veitingahús bæjarins
voru lokuð í gær vegna verkfalls
veitingaþjóna. Snýst deila þessi
um skipulag veitingasölu í vínstúk
unum, og var ekki um annað rætt,
þegar deiluaðilar og sáttasemjarar
komu saman á fund í fyrrinótt.
Þjónarnir hafa veitt gistihúsum
jundanþágu, svo að þau geti tryggt
gestum sínum máltíðir og íetða-
menn verða ekki óþægilega fyrir
barðinu á deilunni. Þá'var opið í
gær á þeim stöðum, seiu nota að
mestu eða .öllu leyti kvenfólk íil
framreiðslustarfa.
Samtök veitingaþjóna liafa lagt
fram allmargar kröfur eins og
hefur verið frá greint. Er þar meöal
annars krafizt hærri prósentu á
tilgreindum helgidögum og fleiri
kjarabóta. Svo virðist 'eftir gangi
málsins, sem starfshættir á vín-
börum bæjarins séu aðalatriði
málsins og deilan snúist fyrst og
fremst um það.
Vínstúkurnar eða barirnir eru
nýleg fyrirbrigði í veitingalífi bæj
arins, og hafa því ýmsar redur
verið að mótast um rekstur þeirra,
en um aðrar er deilt Munu veiti^ga
þjónar vilja kaupa vörur. sem
þarna eru seldar, af íyrirtækjunum
en eigendur vilja hins vegar að
settir séu peningákassar í'rá hús
unum á barinn og þeir noiaðir
Um hádegi í gær kom íil npkk
urra átaka í Nausti við Vesíurgbtu
Þar eins og viðar höfðu verið verð
ir frá samtökum veitingamanna lim
morguninn. Um hádegið íengu
tveir menn að borða í sal staðarins
og gekk framkvæmdastjóri sjálfur
um beina. Vildu fulltrúar veitinga
þjóna stöðva þessa afgreiðslu,; en
eigandinn veitti mótspyrnu. tdldi
þessa afgreiðslu ekki brot á verk
fallinu, og kallaði til lögreglu.
Greínargerb
frá þjónum
Ymsar breytingar fara nú
fram á varðskipinu Þór. Tími
er senn kominn til að skipið
fari í svokallaða 12 ára klöss
un, og á að vinna hana í á
föngum.
Afturmastrið hefur verið
fjarlægt og síðar á að fjar
lægja tvo björgunarbáta af
fjórum á bátadekki til þcss
að þyrla geti lent þar. Radar
inn hefur verið' fluttar af brú
arþakinu og upp í frammastr
ið eins og þessi mynd sýnir
Með því að hafa radarinn
þarna eykst sjónsvið hans um
eina mílu miðað við það sem
áður var. Verður það væntan
lega til þess að auðveldara
verður að haía hendur í hári
landhelgísbrjóta, og einnig
mun það korua að góðu gagni
við leitir.
MWMHMHMWMUHmHW
94 skip með
.630 m&t
HUMARAFLI
í SÍÐASTA tölublaði Ægis er
yfirlit yfir humarveiðarnar árið
1961 og kemur þar fram, að aflinn
það ár, varð töluvert minni cn ár-
ið áður, þá var aflinn 2.081 Jest,
en í fyrra var hann ekki ncma
1490 lestir.
í Ægi segir ennfremur. að þessi
minnkandi afli sé nökkur mæli-
kvarði á misnotkun heimildar til
Framhald á 14. síðu.
Blaðinu barst í gær eftirfarandi
frétt frá Fiskifélagi íslands um
gang síldveiffanna sólarhringinn
næsta á undan:
■ Ágæt sildveiði var sl. sólarhring
fyrir Austfjörðum. Var vitað um
> afla 94 skipa með samtals 85.630
þús. mál og tunnur. Aðalveiðisvæð
ið var á svipuðum slóðum og í gær
en einnig fékkst góður afli á svæð
inu milli Dalatanga og Ninðfjarð-
arhorns 2-6 mílur undan landi og
í mynni Reyðarfjarðar. Veður var
gott. Ægir var á Kolbeinseyjar-
svæðinu.
Frá síldarleitinni á Siglufirði:
Straumnes 630 Snæfell 1200
Frá síldarleitinni á Raufarliöfn:
Fákur 1600, Pálína 1500, Garðar
700, Ingiber Ólafsson 800 Guð-
mundur Þórðarson 1500, Sæfaxi
NK 800, Skírnir 1200, Ólafur Magn
ússon EA 1350, Hannes lóðs 750,
Freyja GK 900, Mímir 900, Pétur
Sigurðsson 1300, Sæfari BA 900,
Þorbjörn 900, Sigrún AK 1100,
Baldur 800, Ársæll Sigurðsson II.
1000, Guðmundur Péturs 1450, Þor
lákur 900, Geir 750, Bjarmi 8Ö0,
Freyja ÍS 700, Jón Garðar 1100,
Víkingur II. 800, Steinunn 800,
Höfrungur II. 1500, Heimaskagi
800, Hrönn II. 850, Fram 800, Auð
unn 500, Ágúst Guðmundsson 700.
Húni 900, Jón á Stapa 1100, Eld-
borg 1250, Tálknfirðingur 700,
Akraborg 1500, Sunnutindur 1000,
Jón Guðmundss. 700, Faxaborg
1000, Heimir 650, Hrafn Sveinbjarn
arson 450, Friðbert Guðmundsson
500, Gnýfari 1000, Haraldur 1500,
Héðinn 1300, Anna SI 1250, Þór-
katla 1000, Bergvík 900, Gunnólfur
Framhald á 14. síðu.
iMtMMMMMMMMMtMMMiW
Lýst eftir
manni
Lögreglan á Siglufirði lýsti
I gærkvcldi eftir manni, Frið
rik Ásgrímssyni, skipverja á
Hávarði ÍS 160. Friðrik sást
síðast aðfaranótt mámidags
ins, en síðan hefur ekki til
hans spurts.
Friðrik Ásgrímsson er ung
ur maður, rúmlega tvitií
og er hann héðan úr Rcykja
vík.
SMMSMMMMMMMMMMMM*
jVEGNA deilu Félags framreiðslu-i
.manna við samband veitinga-|
jinanna vill félagið taka fram eftir
jfarandi:
j Samningum félagsins við veit-
ingamenn var sagt upp í lok apríl
jmánaðar og féllu þeir úr gildi 1,
■ júní sl. 20. júní sl. sendi Félag fram
ireiðslumanna Sambandi veitinga-
og gistihúsaeigenda uppkast að
nýju samningum og óskaði eftir að
samningaumleitanir yrðu hafnar
hið fyrsta. Þessu svöruðu veítinga-
menn engu. hirtu ekki um að ræða
samningana fyrr en eftir að þeim
barst verkfallstilkynning 11. þ.m.
Mánudaginn 16. þ.m. var svo hald
inn samningafundur, sem stóð í
tvær stundir og endaði án nokkurs
árangurs. þar sem veitingamenn
neituðu að ganga til samninga, Þá
vísaði Félag framreiðslumanna
deilunni til sáttasemjara 19. þ.m.
boðaði sáttasemjaiú til sáttafund-
ar og stóð sá fundur í 10 klst., en
árangur varð enginn. Veitingam.
vil.du ekki ræða samninga og höfn
uðu öllum tillögum Félags fram-
heiðslumanna til málamiðlunar.
Báru veitingamenn það helzt fyrir
sig að þeir hefðu „húsbóndavald"
á veitingahúsunum, sem þeir vildu
ekki að rýrt væri að neinu.
Þar sem sáttatilraunir fóru al-
gjörlega út um þúfur, vegna ein-
dæma stífni hinna miklu „hús-
bænda“ var áður boðuð vinnustöðv
un látin koma til framkvæmda að
morgni föstudags 20. þ.m. þ.e. i
dag
Veitingamenn hafa haldið því
fram að vinnustöðvunin hafi ekki
verið boðuð með nægilegum fyrir-
vara. Um þetta formsatriði nægir
að upplýsa, að 11. þ.m. kvittaði
framkvæmdastjóri Sambands veit
j inga- og gistihúsaeigenda fyrir íil-
I kynningu um vinnustöðvun. sem
komið gæti til framkvæmda 20.
júlí, eða eins óg' segir í bréfi Fé
lags framreiðslumanna „Vér leyf-
um oss hér með að tilkynna yður
að vér munum frá og með föstu-
deginum 20. júl. 1962 stöðva álla
vinnu meðlima félags vors hjá með
limum félags yðar.‘ Með bréfi dags
Framhald af 14. síðu.
/
Aíengissalan
jókst um 28.8%
fyrstu 6 mán.
ÁFENGISSALAN á landinu hefur
aukizt um 22.8% frá því í fyrra,
ef miðað er við fyrstu. 6 mánuði
ársins. Mánuðina apríl, maí ogr
júní var selt áfengi fyrir rúmlega
58 milljón krónur, en á sama tíma'
í fyrra fyrir 46 milljónir. ,
Heiidsala á þessu timabili skijPt-
ist þannig:
Selt í og frá: kr.
Reykjavík .. ., .. 48.216.S16
Akureyri 5.116.217
• ísafirði 1.887.Ó89
Siglufirði 1.404.197
Seyðisfirði 1.533.703
Samtals kr. 58.208.^22
Á sama tíma 1961 var salan ems
og hér segir: t
Selt i og frá kr- *
Reykjavík 38.499.718
Akureyri 3.984.^53
ísafirði 1.416.270
Siglufirði 1.191.897
Seyðisfirði 1.117.950
Samtals kr. 46.210.13$
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 21. júlí 1962 £