Alþýðublaðið - 15.08.1962, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 15.08.1962, Blaðsíða 2
Bitstjorar: Gísli J. Ástpórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Aðstoðarritstjóri: ■jörgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími 14 906. —- Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentoniðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu 8—10. — Askriftargjald kr. 55,00 á mánuði. 1 lausasölu kr. T.00 eint. Útgef- ? andi: Aiþýðuflokkurinn. - - Framkvæmdastjóri: Asgeir Jóhannessom i ' " ■ ■ Til tunglsins 1966 GEIMFLUG Rússanna tveggja í Vostok III og IV er mikið vísindaafrek. Virðist vísindalegur höf uðtilgangur þessa tvöfalda flugs vera að kanna, hvemig hafa megi samband milli tveggja geim- fara, svo og þol flugmanna og aðstæður til lífs á löngu flugi. Allt'beinist þetta í áttina að væntan- legu tunglskoti. Það er skoðun vísindamanna á vesturlöndum, að Rússar hafi nú fært tunglskot fjórum árum nær jsamtíðinni. Hafði verið búizt við, að um 1970 mundu fyrstu mönnuðu geimförin fara til tungls- ins, en nú telja menn það hugsanlegt um 1966. Framfarir vísindanna eru þannig mun hraðari en bjartsýnustu menn höfðu vonað. Geimvísindin taka stökk sín fyrst og fremst vegna kapphlaups milli ’stórveldanna. Sovétríkin tóku þar forustu með Sputnik og fyrsta mannaða geimfarinu. Bandaríkjamenn komu á eftir, en hafa þótt draga óðum á með geimskotum sínum og gervihnettinum Telestar. Nú hafa Rússar aftur auk ið bilið með því að vinna afrek, sem Bandaríkja menn höfðu ekki ætlað sér að reyna fyrr en eftir 2 ár. Mikið mætti gera á jörðu niðri við að fæða. klæða og hýsa hungraðar milljónir fyrir þær fjár- hæðir, sem varið er á skömmum tíma til geimrann sókna. Vonandi eiga þó vísindin eftir að skila öðr- um árangri á þessu sviði en áróðursefni fyrir aust ur eða vestur eða hernaðarlegu forskoti, að svo miklu leyti sem það kemur til skjalanna. Mánnkynið gleðst yfir þeim vísindasigrum, sem Rússar unnu um helgina, og bíður þess, hvað ger- ist næst — í austri eða vestri. Sérhæf vara DEILUR um síldarsöluna hefur lægt nokkuð, enda búið að segja og skrifa margt um málið. Von andi hafa landsmenn áttað sig á því meginatriði, að saltsíld er sérhæf vara, sem á sér takmarkaðan •hóp neytenda og þeim hópi fækkaði um 6 milljónir er Gyðingum var nær útrýmt á meginlandinu. Þetta ættu íslendingar að skilja, því þeir hafa til skamms tíma sjálfir borðað mjög lítið af síld og kunnátta í matreiðslu hennar er hér ennþá tak- ■mörkuð. Jafnvel 200 milljóna þjóð eins og Rússar urðu að selja öðrum 40 000 tunnur, sem þeir keyptu a| okkur í fyrra. Þessa daga stendur yfir fiskimálaráðstefnu í Nor egi, sótt af hópi íslendinga. Þar verður meðal ann- ars rætt um, hvemig auka megi neyzlu síldar og hagnýta hana betur. Þetta er kjarni málsins, að minnsta kosti þau árin, sem mikið veiðist af síld- ipni. Akureyri vann brezka sjóliða Á SUNNUDAG léku Akureyr- ingar við skipsverja af brezka. her- skipinu Malksholm og unnu Akur- eyringar með 10 mörkm gegn 2. Sá aíburSur skeði í þeim leik, er vítaspyrna var dæmd á Bret- ana að markvöröur Akureyringa Einar Helgason framkvæmdi spyrnuna og skoraði ágætt mark. Fannst áhorfendum þetta óvenju- legur atburður í knattspyrnuleik og ekki hvað sízt hinum brezku skipsverjum. Dómari í leiknum var af brezka herskipinu. J. S. Færeyingar Iéku við Akurnes- inga á laugardag. Fór lcikurinn fram á Akranesi og lauk með jafn- tefli 2:2. Er þetta bezti leikur færeyska landsliðsins í íslands- ferðinni til þessa. —o— Rússinn Bolotnikov setti heims- met í 10 km. hlaupi á rússneska meistaramótinu um helgina. Hann hljóp á 28:18.2 mín., sem er 6/10 úr sek. betri tími en gamla metið, sem hann átti sjálfur. keyranlegir kranar (Mobiie cranes og truck cranes). Lyftiafl frá 4 — 55 tonnum. • Benzín- eða disel-rafknúar vindur. Óbrigðullt öryggiskerfi, sem stöðvar allar hreyfingar kranans, verði stjórnanda hans eitthvað áfátt (Dauðsmannshnappur). Sjálfvirk tenging allra stjórntækja samtímis, eða stjórna má hverri hreyfingu sérstaklega. Yfir 100 slíkir kranar hafa þegar verið seldir í Danmörku. Tilboð óskast án skuldbindingu. Bréfaskipti á dönsku, norsku, sænsku, ensku og þýzku. SÆMILEG UFSAVEIÐI Ólafsfirði 14. ágúst. TVEIR vélbátar, Ármann og Ing ólfur, komu hingað í morgun með ufsa og voru með 20 tonn hvor. Sæmileg vertíð hefur verið hjá bátum þessum, en þeir hafa verið á ufsaveiðum síðan um miðjan júlí Þeir hafa verið á Grímseyjar-svæð inu og nú út af Mánáreyjum — RM V. L0WENER VESTERBROGADE 9 B - K0BENHAVN V. - DANMARK TELEGRAMADR.: STAAUL0WENER - TELEX: 5585 HANNES Á HORNINU ★ Afgreiðsla hjá Flugfé- lagi íslands. ★ Auðveldara að fá al- mennar upplýsingar. ★ Um skyldusparnað ungs fólks. ★ Athugasemdir um fram kvæmd laga. Flugfélag íslands er vinsælt fé- lag,“ segir Gramur í bréfi til mín, „en sjaldan slepp ég óskaddaður frá því að tala við það. Ég þarf nokkuð oft að hringja í félagið til þess að leita upplýsinga og alltaf verð ég að bíða lengi áður cn svar að er. Loks þegar ég lieyri rödd- ina verð ég að bíða enn til þess að ég fái samband við innanlands flug eða utanlandsflug, því að al- drei geta stúlkurnar gefið neinar upplýsingar. AF HVERJU geta símastúlkurn- ar ekki fengið lista um leið og þær mæta til vinnu að morgni þar sem er greint frá öllu áætluðu fiugi þann dag. Hins vegar ef maður þarf að spyrja um fleira, til dæmis að panta farseðil, þá er ekki nema eðlilegt að maður verði að leita til viðkomandi deildar hjá félaginu Allar almennar upplýsingar á að vera hægt að fá hjá stúlkunni, sem fyrst svarar í símann. Þetta skrifa ég þér af velvilja til Flugfélagsins en ekki af neinni löngun til að gagn rýna starfsháttu þess. Ég vill að að þarna sé breytt um til batnað ar.“ GAMLI SKRIFAR: „Það er ég viss um, að þú ert mér samdóma í því, að þegar maður hefur lifað í 25 ár, sé hann orðinn tuttugu og fimm ára. En þeir sem hrifsa skyldusparnað af börnum verka- manna segja, að halda eigi áfram að hrifsa eitt ár í viðbót. ÞAÐ VÆRI svo sem ekkert við því að segja, að ungt fólk og jafn vel eldra væri skyldað til að spara og geyma fé, ef það gengi jafnt yfir og geymslan væri örugg. En börn betri borgara fara í mennta- skóla og háskóla og þurfa ekkert að spara né hugsa um framtíðina. Föðurlandið sér fyrir þeim, vegna ættgöfgi. Og aumingja bændurnir og útgerðarmennirnir eru alltaf að tapa og græða á því milljónir og milljónatugi. Sama er um börnin þeirra, þau þurfa ekkert að spara né geyma. ENGINN HEFIR tryggingu fyrir því að fá byggingalán, þó hann sé skyldaður til sparnaðar. „Því í helvítinu hafðir þú ekki vit á að ganga í fiokkinn," sagði maðurinn, þegar pilturinn var að væla og biðja um lán. Og aumingja krónan Einu sinni var hún 100 aura virði, nú er hún einn eyrir. „Mikið líður þú fyrir Höskuld, gæzka,“ sagði maðurinn Þeir hafa orðið þjóðinni dýrir svindilbraskararnir, og bank arnir lélegir fjárgæzlustaðir. Það er nú rúmlega fertugs afmæli ó- sómans. EN HVERNIG væri að láta þá skila fénu heim, sem geyma það suður í Sviss og annars staðar er Framhaid á 14. síðu. Demparar Hljóðkútar Púströr og fleiri varahlutir í flestar gerðir bifreiða. Bílanaust hf. Höfðatún 2. — Sími 20185. 2 45. ágúst 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.