Alþýðublaðið - 15.08.1962, Blaðsíða 9

Alþýðublaðið - 15.08.1962, Blaðsíða 9
upp alla von um að leggja stund á músík, og ákvað að haldá áfram að stunda nám sitt við háskólann í Róm, en eftir hinn harmlega dauða föður síns yfirgaf hann há- skólann, og fór að vinna í banka, með laun sem varla hrukku til hnífs og skeiðar. Nokkrum árum eftir fall einræðisherrans ákvað stjórnin að skila verulegum hluta auðæva hans aftur til ættingjanna, og Romano hætti að vinna í bankanum og keypti plötufyrirtæki og byrjaði að framleiða fyrstu ítölsku plöturnar með bandarískum jazz. Enginn hinna 8 jazzáhuga- manna höfðu nokkru sinni lært músík, en þeir höfðu hlustað og lært af banda- rískum jazzplötum, og löng un Romanos til að stofna jazzhljómsveit var svo mik- il, að hann fékk vini sína til að hætta vinnu sinni gegn því að greiða þeim kaup í þau tvö ár, sem það tók þá að æfa fyrsta próg- rammið, sem aflaði þeim vinsælda. Síðan eru liðin 4 ár og nú er Ítalía bókstaf- lega sagt yfirfyllt af plötum ru oftast ilskemmti- Irei beðið iðalatriðið, Ég þori að spyrja vegna. Ég 'arið. Mér gja vinnu starmanns venjulegu em barns var fulit e lék á að menn iega vel ttorio var ,gnrýnandi| i cello, og aði einnig gnrýnand- ilötum og tno var 6 'tt frítíma hæginda- tinn amer- ni fjöl- lá blikuna ,inu fasist- ;af Roma- systkinum Romanos Mussolinis. Fyrir einu pg hálfu ári giftist Ro- mano systur Sophiu Loren, Maríu, og eiga þau nú von á fyrsta barninu. Hamingjan er að lokum komin til Ro- manos Mussolinis í líki fal- legrar konu, þekktrar jazz- hljómsveitar — og kannski því allra mikilvægasta — að vera álitinn ósköp venju- legur maður. SIGURÐUR Vilhjálmsson heitir maður. Hann er áhuga maður mikill um fótbolta. Eitt sinn var hann að ræða útlenda knattspyrnu við vini sina og bar á meðal annars á góma knattspyrnumann, sem ekki hafði viljað fara til ann- arra landa og leika þar með félögum, þrátt fyrir þó að milljónir væru í boði. Lét hann svo ummælt, að hann kysi heldur að leika fyr ir föðurlandið þótt hann fengi ekki milljónirnar. Þá varð Sigurði að orði: Er það nú asni, eins og hvað eitt helvítis föðurland sé á móti 10 milljónum. LISTAGAGNRÝNANDI: En hversu dásamlegt nútíma málverk. Hvílíkir litir, hvílík túlkun. Listamaður: Oh — þetta kom þegar ég var að strjúka úr burstanum mínum. 'ár SMJAÐRARI: Maður sem segir við þig það sem hann myndi ekki segja þér á bak. ■4r EF ÞÚ heldur að einvígi séu ekki lengur háð í landi þínu, þá hefur þú aldrei séð tvo bílstjóra, sem ætla að leggja bílnum sínum á sama stæði. EIGINMAflURINN: Ég lenti í miklu rifrildi við kon una mína út af því hvort við ættum að kaupa sjálfvirka uppþvottavél. — Nú, var það. Eiginmaðurinn: Já, hún hélt því fram að ég þyrfti þess ekki. •4r .Hún var að segja frá ham ingjusömu hjónabandi sínu, kona komin á efri ár: Mað- urinn minn elskar mig enn meira eftir því sem hann eld ist. — Hvað gerir hann? — Hann er fornleifafræð- ingur. Finnst ykkur hún ekki falleg |>essi litla dökka stúlka á mynd inni? Það er ótrúlegt en eigi að síður sannleikur, að hún er dönsk, — að vísu aðeins síðara ættina. Faðir hennar er dansk ur blaðamaður, sem fyrir hæfilega löngum tíma var á ferð í Jmaica, og hitti þar úndurfagra stúlku, sem ól honum þetta barn. Blaðamaðurinn brást þó ekki illur við, og neitaði að gangast við faðerninu eins og sumir gera í líkum tilfellum, heldur giftist hann stúlkunni sinni og er nú nýseztur að í Kaupmannahöfn með litlu þeldökku fjölskylduna sína. Litla stúlkan hefur fengið nafnið Anita, og hún vinnur af- dráttarlaust hylli allra sem henni kynnast. RÁÐSKONA og starfsstúlka óskast við heimavist miðskólans í Stykkia- hólmi, skólaárið 1962 — 1963. Umsóknir sendist til skólanefndar Stykkishólms fyrir 1. september n.k. Flakarar óskast, strax. FROST h.f. -- Sími 50165 London og París 11 daga ferð: 8.900 kr. Innifalið: ferðir, fæði og gistingar. Brottför: 4. september. Fararstjóri: Einar Pálsson, skóla- stjóri. Allar nánari upplýsingar á skrif- stofu okkar. F erðaskrif stof an LÖND & LEIÐIR Tjarnargötu 4. Sími 20800 - 20760 Vélskólinn / Reykjavík Umsóknir um upptöku í skólann þurfa að berast undirrit- uðum fyrir 5. sept. Inntökuskilyrði eru: í vélstjóradeild: Iðnskólapróf og 4 ára nám á vélaverkstæði. í rafvirkjadeild: Iðnskólapróf og 4 ára nám í raf- eða rafvélavirkjun. Umsóknareyðublöð fást hjá húsverði Sjómannaskólans og undirrituðum á Víðimel 65. GUNNAR BJARNASON, skólastjóri. Verkamenn Verkamenn óskast til vinnu við gatnagerð í Garðahreppi. Upplýsingar á vinnustað eða í síma 38008 eftir kl. 8 á kvöldin. VÉLTÆKNI H.F. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 15. ágúst 1962

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.