Alþýðublaðið - 15.08.1962, Page 5
EITT SINN OPEL
Gáfu Reykvikingum
700 tonn af sandi
VEGNA þess hversu mikið er
rætt um sjúkraflug: og þess ágæti,
hættir mönnum oft til að gleyma,
að hér á landi er annar aðlli, sem
oft tekur við, þegar flugvélum eða
bílum er ekki fær leiðin. Þessi
aðili er Landhelgisgæzlan.
Pétur Sigurðsson, forstjóri
Landlielgisgæzlimnar, hefur gefið
blaðinu þær upplýsingar, að fyrstu
sex mánuði þessa árs, hefðu skip
Landhelgisgæzlunnar farið sex
sinnum í sjúkraflutninga, og einu
sinni með lækni til sjúklings.
Vegalengdin, sem sigld hefur
verið í þessum ferðum er nálægt
1500 sjómílum. Pétur Sigurðsson.
sagði að til kasta Landhelgisgæzl-
unnar kæmi þegar ófært væri
bæði landleiðis og loftleiðis.
Einkum væru slíkir sjúkraflutn-.
ingar tíðir á vetrum eins og gefur
að skilja. I þessum sjö ferðum,
sem farnar hafa verið, fyrstu sex
mánuði þessa árs, hafa farþegar
alls verið 12, eru þá bæði taldir
læknar og sjúklingar.
Það eru einkum stærri skipin,
Óðinn, Þór, Albert og Ægir, Jscvn.
annast þessa flutninga, enda, eru
þau bezt til þess búin. í þeim
öllum eru sjúkrarúm og sérstákur
sjúkraklefi.
Pétur Sigurðsson sagði pnn-
fremur að ekki væri yfiijeitt
leitað til Landhelgisgæzluúnar
fyrr en allar leiðir væru þifaut-
reyndar, og annað væri ekki'um
að ræða. Ætíð væri brugðið eins
skjótt til lijálpar og mögulegt
AIÞÝÐUBLA9I0 - 15. ágúst 1962 §
NÝTT skip'hefur bætzt í skipa-
stól íslendinga. Er það sanddælu-
skipið Sandey, sem fyrir skömmu
kom hingað til lands. Skipið er
eign Björgun h.f. og mun aðalverk
efni þess verða að dæla sandi upp
úr botni Faxaflóa til notkunar í
Sementverksmiðjunni. Eigendur
skipsins hafa gefið Reykvikingum
700 tonn af skeljasandi, sem skipið
losaoi í Nauthólsvík á laugardags-
morguninn.
Skipið var byggt í Hollandi árið
1957 fyrir þýzka aðila og af þeim
keypti Björgun h.f. skipið. Skipíð
er 975 brúttó lestir að stærð. Aðal
vél þess er sú sama og var í því
þegar það var byggt. Fyrir framan
sandlestina hefur verið byggt nýtt
vélarrúm og þar er sanddælan stað ,
sett ásamt 1050 hestafla Mannheim
vél, sem knýr hana. Sandinum er
síðan dælt inn í lestina og þar sezt
hann til, en sjórinn streymir út
um göt aftan íil á lestinni. Skipið
tekur fimm húndruð rúmmetra
af sandi í hverri ferð, eða um 700
smálestir.
Sl. laugardagsmorgun kom skip
ið með fullfermi inn á móts við
fjöruna í Nauthólsvík. Vegna þess
hve grunnt er þarna komst skipið
ekki eins nálægt með sandinn og
eigendurnir höfðu vonað. Sandin
um verður hins vegar ýtt upp í
fjöruna um næstu stórstraums-
fjöru og batna þá baðskilyrði til
muna í Nauthólsvík. Eigendur
skipsins færa Reykvíkingum sand
inn að gjöf.
Skipið hefur verið ráðið til að
dæla- sandi fyrir Sementsverk-
smiðjuna næstu sex ár. í ár á það
að dæla 120 þúsund rúmmetrum
af sandi, og hefur þegar dælt um
20 þúsund rúmmetrum. Sá sandur
sem skipið hefur dælt, mun vera
talinn betri en sá sem danska skip
ið Sandsu dældi. Minna mun vera
af grjóti í honum og kalkinnihald
hans meira.
Skipstjóri á Sandey er Hreinn
Hreinsson og fyrsti vélstjóri Bjarni
Jónsson. Framkvæmdastjóri Björg
unar h.f. er Kristinn Guðbrands-
son.
Finnskur kór
væntanlegur
í lok þessa mánaffar er væntan-
legur liingað til lands karlakórinn
„Muntra Musikanter“ frá Hels-
ingfors, einn allra fremsti og
víðfrægasti kór á hforðurlöndmn.
Munu margir fagna því að fá nú
loks færi á að heyra hér þennan
nafnkunna hóp „glaðra söngva-
sveina", sem í meira en 80 ár
hefir varpað sérstökum frægðar-
ljóma á finnskt tónlistarlíf og
borið hróður finnskrar sönglistar
víða um lönd.
Kórinn fór fyrstu söngför sína
til útlanda árið 1882, fyrstur
finnskra kóra. Síðan hefir hann
farið fleiri slíkar ferðir en nokk-
ur annar finnskur kór, einkum um
Norðurlönd. Má furðulegt telja, að
hann skuli ekki fyrr hafa lagt
leið sína hingað til lands, en sú
hugmynd skaut fyrst rótum, þeg-
ar karlakórinn „Fóstbræður" kom
til Finnlands í söngför sinni á s. 1.
hausti.
Stjórnandi „Muntra Musíkan-
ter“ er tónskáldið Erik Bergmann,
og hefir hann stýrt kórnum síðan
1951. Hann er meðal frægustu
núlifandi tónskálda Finna, mjög
vel menntaður tónlistarmaður og
aðhyllist í verkum sínum nýtízku-
legan stíl, en þó áheyrilegan og
persónulegan í senn. Hafa verk
hans hlotið óskorað lof hinna
ströngustu gagnrýnenda, og marg-
víslega viðurkenningu hefir hann
hlotið fyrir þau heima og erlendis. 1
Söngskrá „Muntra Musikanter" .
í íslandsferðinni ber því vitni, að
um hana hefir f jallað menntaður ]
og smekkvís tónlistarmaður, og er
hún næsta ólík því, sem algengast
er um verkefnaval karlakóra. Hún
hefst á nokkrum lögum eftir 17.
aldar tónskáld og endar á lögum
eftir söngstjórann, sem mjög gam-
an verður að fá að heyra. Önnur
verkefni eru m. a. eftir Schumann,
Stravinsky, Sibelius og Palmgren
Eitt íslenzkt lag er á efnisskránni,
„Gimbillinn mælti“, þjóðlag í út-
setningu Ragnars Björnssonar.
Söngmenn í „Muntra Musikan-
ter“ eru háskólamenn eingöngu,
sem flestir hafa áður fengið kór-
þjálfun í finnska háskólakórnum.
„Akademiska Sángföreningen",
sem að því léyti má.telja einskonar
„forskóla" þessa kórs. Söngmenn-
irnir, sem hingað koma, eru 67
að tölu, og eru í þeim hópi ýmsir
atkvæðamenn í menningar-.
stjórnmála- og atvinnulífi Finn-
lands.
Einsöngvari með kórnum er
er tenórinn Kurt Klockars, sem
um árabil hefir verið einsöngvari
með „Muntra Musikanter“ og
finnska útvai-pskórnum.
„Muntra Musikanter" koma
hingað á vegum karlakórsins
„Fóstbræðra". Þeir dveljast hér á
iandi aðeins fáa daga, og verður
því ekki unnt að endurtaka sam-
söng kórsins, sem haldinn verður
í samkomuhúsi Háskólans þriðju-
daginn 28. ágúst. Að loknum þeim.
samsöng fer kórinn til Akureyrar
í boði bæjarstjórnarinnar þar, í
tilefni af aldarafmæli bæjarins.
Á Akureyri syngur kórinn fimmtu-
daginn 30. ágúst. t
Óþurrkar á
Ólafsfirði
Ólafsfirði, 14. ágúst.
ÓÞURRKAR miklir hafa verið
að undanförnu. í gær létti til cg
var þá unnið í heyskap. Það stóð
þó stutt því að nú er farið að
rigna aftur.
Hitinn komst niður í 0 stig cg
jörð var héluð í gærmorgun. Sá á
kartöflugrösum. ólafsfirðingrr
hafa lítið orðið varir við sumar í
ár. — R.M.
Fyrsta gatan
á Sauðárkróki
malbikuð
Sauðárkróki, 14. ágúst.
BYRJAÐ var að malbika Skag
firðingabraut, sem er ein af aðal
götum bæjarins, í gær.
Þetta er fyrsta gatan hér, sem
hér er malbikuð. Leifur Hannesson
verkfræðingur hefur yfirumsjón
með verkinu. Hugmyndin er að
malbika einnig Aðalgötu, en ekki
er víst hvort það verður gert í ár.
M.B.
SAMBAND ISL. SAMVINNUFÉL.
Véladeild
ALLTAF
OPEL