Alþýðublaðið - 15.08.1962, Síða 16

Alþýðublaðið - 15.08.1962, Síða 16
«WWWWWW%%VW%WWWiWWV>tWWV WWWWWWWWjWVWWWMWIWMMWW Eins og i gamla daga Þessi sjón er orðin sjald gæf nú á tímum tækninnar er allir bændur landsins hafa eignast dráttarvélar. En að Ásláksstöðum á Vatnsley.su strönd mátti sjá þessa sjón sl. sunnudag. Það er verið að slá og í stað dráttarvélar eru notaðir tveir klárar. Ljósm. St. Nik. Jakob Jakobsson segir: BETRI HORFUR Á VESTUR SVÆÐI, EN TAUÐ VAR Blaðið átti í gærkveldi tal við j Jakob Jakobsson, fiskifræðing um borð í Ægi. Ægir var þá stáddur «t af Húnaflóa. Sagði Jakob, að | wwvwwwwwwwww 700 1 latínu í. sumarhefti tímaritsins „The Icelandic Canadian“, sem gefið er út í Winnipeg í Canada er þess getið að Guðmundur Eiríksson, hafi féngið 100 stig í latínu á prófi við skóia sinn. Guð mundur er sonur séra Eiríks Brynjólfssonar og Guðrúnar Guðmundsdóttur konu hans. Séra Eiríkur var prestur að Útskálum i Garði áður en hann fluttist vestur um haf með fjölskyldu sína. í tímaritinu segir, að það sé ekki óalgengt að menn fái 100, eða það hæsta sem gef- 'ið er í stærðfræði éða skyld um greinum, hins vegar heyr , ir það til algjörrar undan- tekninga aö menn fái það í máium. Þetta próf þreyttu 1500-1600 nemendur og var Guðmundur sá eini sem hiaut 100 stig. Guðmundur er að- eins 15, ára gamall. ... þá um kvöldið hefði flugvél séð síid vaða við Kolbeinsey og voru allmargir bátar á leið þangað þegar blaðið átti tal við Jakob. Margir munu hafa verið byrjaðir að kasta fyrir austan og var veiði þar góð. Jakob tjáði blaðinu að þeir á Ægi væru eiginlega að búast við síldargöngu með hluta af íslenzku sumargotssíldinni, sem þeir væru að vonast eftir að kæmi á þeasar slóðir. Höfðu þeir þegar rekizt á nokkrar torfur í Reykjafjarðarál en þær stóöu allar mjög djúpt. Taidi Jakob veiðihorfur vera góð ar og benti m.a,. því til sönnunar að síðasta söltunarsíldin við Kol- beinsey hefði veiðst 12. júlí í fyrra, en nú væri enn verið að veiða söltunarhæfa síld þar. Sagði Jakob, að útlitið á vestursvæðinu væri mun betra en álitið hefði verið til þessa. Smásíldin er nú að mestu horfin af austursvæðinu og er útlit þar einnig gott. Fréttaritarar blaðsins símuðu eftirfarandi í gær: Siglufirði í gær: Fimmtán skip liafa komið liing að í dag með samtals 9 þúsund tunnur síldar. Síldin fór öll í salt enda prýðisgóð til söltunar, og Iítið úrkast úr henni. Hæsta söltun arstöðin hér á Siglufirði er nú Hafliði h.f. með tæpar 11 þúsund tunnur. Hæst á landinu mun hins vegar vera stöð Ólafs Óskarssonar á Raufarhöfn mcð um 15 þúsund tunnur. — J.M. HÚSAVÍK í gær. SMÁRI kom hingað í morgun með 300 tunnur, sem fóru I salt. í fyrradag kom Auðunn með 300 tunnur, sem einnig fóru í salt. Hér hefur nú verið saltað í um 10 þúsund tunnur alls, en um 7 þús- und mál hafa farið í bræðslu. E. M. J. RAUFARHÖFN í gær. Hvorki hefur síld borizt hingað í dag né í gær. Bræðslu er haldið áfram af fullum krafti og mun vera eftir síld til viku bræðslu, berist ekki meira. Nokkur skip Framh. á 3. síðu Síldarsjóöari Gísla kominn til Siglufjarðar Siglufirði í gær: Eins og kunnugt er af fréttum teiknaði Gísli Halldórsson verk fræðingur, í fyrra, nýja tegund af síldarsjóðara og fékk hann nokk urn siyrk til þess að-láta smíða tækið og síðan átti að reyna það á Akranesi. Þegar til átti að taka var það ekki hægt. Nú hcfur síldarsjóðar- inn verið fluttur hingaö til Siglu- fjarðar og er mikill áhugi fyrir því meðai forráðamanna S.R. að liann verði reyndur hér, enda telja verksmiðjurnar sér skylt að fylgj þst með öllum |nýjungum, sem fram koma varðandi vinnslu síld- ar. — J.M. Þrír togarar með 820 tonn TVEIR togarar lönduðu, í Reykjavík í fyrrad. og von var á þriðja togaranum í morgun. Fleiri togarar eru væntanlegir næstu daga. og að sögn Togaraafgreiðsl- unnar er meira en nóg að gera. „Skagfirðingur" aflar sæmilega Sauðárkróki, 14. ágúst. SKAGFIRÐINGUR, sem er 250 tonna togbátur og gerður út héð an, hefur aflað sæmilega. Ha»n liefur verið að veiðum fyrir Norð uriandi og landað hér afla sínum, aðallega karfa. Einn bátur héðan er á síldveið um. Það er Málmey, og hefur hann fiskað vel en fór seint á síldveið arnar. Tregur afli hefur verið hjá bátum með lóð og færi. — M.B. í fyrradag var landað úr Þorkeli mána og Ask. Þorkell máni var með 360 tonn og Askur með 160 tonn. Þorkell máni fékk afla sinn við Vestur-Grænland, en Askur var á heimamiðum. Það var Haukur sem kom inn í gærmorgun með 300 tonn sem hann fékk við austurströnd Grænlands. Togararnir eru ýmist á veiðum við Grænland eða á heimamiðum. Sildarflutningarnir til Reykja- víkur að austan hefur stöðvazt í bili, enda þrær orðnar tómar fyrir austan. í bili er óljóst hvort þeim verður haldið áfram og fer það eftir ýmsum ástæðum, að sögn togaraafgreiðslunnar. Geir er í Reykjavík, en hin skipin, sem hafa verið í þessutn flutningum, bíða fyrir austan. Geir hefur beðið eftir löndun í nokkra daga, og átti að landa úr honum í morgun. SLYS VIÐ SÚÐAVOG ÞAÐ slys varð um átta leytið í gærkveldi að múrsteinsveggur féll yfir mann, sem var að vinna við að brjóta vegginn niður. Slys þetta varð við Súðavog skammt frá Glerverksmiðjunni. Maðurinn Jóhann Bessason, mun hafa slasast töluvert, því hann var fluttur á Slysavarðstofuna og það an á Landspítalann og var þar enn undir læknishcndi, er blaðið fór í preritun um miðnætti í gær. GUÐNÝ Á. Björnsdóttir, fulltrúi Keflvíkinga í fegurð- arsamkeppninni í vor er farin til Tyrklands að taka þátt í hinni árlegu fegurð- arsamkeppni í Istambul. Guðný fór til London og heldur þaðan til Barcelona, með fyrstu ferð þar stígur hún á skipsfjöl um borð í flaggskipið í flota Onassis, lystiskipið Arkadía, og siglir með því um Miðjarðarhafið með viðkomu í flestum glæsi legustu höfnurn leiðarinnar. Guðni Þórðarson, forstjóri ferðaskrifstofunnar Sunnu, skipulagði ferðalag Guðnýj- ar. Á skipinu verða einnig keppinautar Guðnýjar 17 talsins. WVV/.>.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.