Alþýðublaðið - 18.08.1962, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 18.08.1962, Blaðsíða 2
& ®ltstjOi«r: Gísli J. Astpórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Aðstoðarritstjóri: lijörgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími 14 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentcmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu ♦—10. — Askriftargjald kr. 55,00 á mánuðl. 1 lausasölu kr. r.OO eint. Útgef- andi: Alþýðuflokkurinn. -- Framkvæmdastjóri: Ásgpir Jóhannesson, HAGSMUNIR OKKAR UMMÆLI EMILS Jónssonar við norsk blöð um ísland og Efnahagsbandalag Evrópu hafa orðið l>jóðviljanum tilefni til enn einnar áróðursgreinar gegn nokkrum tengslum íslands ivið bandalagið. Iteynir blaðið eins og venjulega að rangfæra og mis tulka og læða inn þeirri hugmynd, að ríkisstjórnin sé búin að ákveða þátttöku í bandalaginu. Sannleikurinn er sá, að það er mikilsvert fyrir ís lendinga að vemda markaði sína á meginlandi Ev- rópu, sem taka um helming alls útflutnings okkar. Þjóðviljinn vill gjarna eyðileggja þessa markaði. Hins vegar munu íslendingar ekki gangast undir ýmsar þær kvaðir, sem fylgja fullri aðild, varðandi landhelgi og flutninga á vinnuafli og- fjármagni. Þess vegna bíður sú ákvörðun, hvers konar tengsl, ef nokkur, er hægt að skapa, sem samræmast hags munum íslands. Kommúnistar þurfa ekki að bíða eftir upplýsing um um þetta mál. Þeir taka afstöðu eftir línu komm únistaríkjanna, en ekki hagsmunum Islands. Þeir ýilja loka Vestur-Evrópu fyrir íslenzkum viðskipt um, svo að þjóðin verði þeim mun háðari viðskipt- um við kommúnstaríkin og tengist þeim meira. í þessu samhandi heldur Þjóðviljinn stöðugt fram, að Efnahagsbandalagið vilji innlima Island og önnur ríki. Þetta er herfilegur misskilningur. Ríkin sex í efnahagsbandalaginu mundu helzt kjósa að bæta engum þátttakenda við. Það eru hin ríkin, sem standa utan við bandalagið, sem sækjast eftir að komast á einn eða annan hátt í það eða í tengsl við það. Þetta á við Noreg, Svíþjóð, írland og öll önnur ríki á þessu svæði. Þess vegna er alrangt, að Efnahagsbandalagið sé að seilast eftir okkur. Það eru íslendingar sjálfir, eins og aðrar þjóðir, sem vilja vernda mikilvæga hagsmuni sína með því að skapa tengsl við bandalagið. Þegar lokið er samningum við Breta, Dani, Norðmenn og fleiri, og skipulag fisksölunnar í álfunni hefur verið á- Ekveðið, mun koma í ljós, bvaða kosta íslendingar eiga völ. Þá munu ábyrgir íslendingar marka sína eigin stefnu, og sízt af öllu hlusta á þá, sem láta önn ur stórveldi segja sér fyrir verkum. Hver sá, sem skilyrðislaust segir á þessu stigi málsins, að ísland skuli engin tengsl hafa við Efna hagsbandalagið, er vísvitandi að kalla yfir þjóðiria stórfellt tjón. Hann er líka að draga verulega úr anöguleikum okkar til að koma upp iðnaði til út- flutnings á komandi áratugum. Ábyrgir menn taka ekki slíka afstöðu umsvifalaust. Þess vegna ber akkur að halda fast á hagsmunum íslands og kanna leiðir til að koma málum okkar í sem bezt form. Það getur gerzt með verzlunarsamningi eða með aukaaðild, en hún getur verið 1 prósent eða 99 prósent af fullri aðild. Hvernig þetta verður ákveð um við, þegar þar að kemur. MINNINGARORÐ: Oddsdóttir Brautarholti, Reykjavík í dag verður jarðsungin írá Dómkirkjunni í Reykjavík Sig- ríður Oddsdóttir — Sigríður i Brautarholti — eins og hún var gjarnast kölluð af vinum sínum. Hún andaðist í Landakotsspítala laugardaginn 11. ágúst sl. eftir skamma legu þar, þremur dögum fyrir 79. afraælisdag r,inn. Sigríður fæddist I Pálshúsum í Reykjavík 14. ágúst 1883 og- voru foreldrar . hennar Oddur Jónsson, formaður og kona hans Guðrún Árnadóttir, Guðnasonar úr Selvogi. Oddur fórst í fiski róðri vestur á Sviði árið 1902. Sigríður var elzt barnanna. Hin voru, þau er upp komust: Borg- hildur, búsett í Reykjavík, Ást- ráður, látinn 13. júlí' 1961, Sigur jón, bóndi á Rútsstöðum í Svína- vatnshreppi, Guðmundur R. for stjóri Alþýðubrauðgerðarinnar i Reykjavík, Theodóra, búsett á Siglufirði og Oddur Ááúst Odds- son, sjómaður í Reykjavík. Fárra mánaða gömui fluttist Sigríður með íoreldrum sínum að Brautarholti á Bráðræðis- holti, en þann bæ byggði faðir hennar. Þar ólst hún upp og þar var heimili hennar næstum til æviloka. Árið 1903 giftist Sigríð ur Jónasi- Helgasyni frá Litlu- Giljá í Vatnsdal. Jónas stundaði sjómennsku og verkamannavinnu á yngri árum, en gerðist síðar starfsmaður hjá Verzlun Jes Zimsen og var innheimtumaður hjá því fyrirtæki tií æviloka. Hann andaðist 6. febrúar 1948. Þeim jónasi og Sigríði varð fimm barng auðið og eru þau öll á lífi Oddur, forstjóri Efnalaugarinnar Glæsis, kvæntur Elísabetu Jóns dóttur, Ingibjörg gift Guðmundi Péturssyni, símritara, Guðrún gift Tryggva Péturssyni, deildar stjóra, Sigríður, gift Sigurði Hall dórssyni verzlunarmanni, og Gyða. í fardögum 1961 ílutti Sig ríðúr úr bænum, sem hún hafði hennar, Sigurðar Halldórssonar, að Hjarðarhaga 27: Sigríður lifði mestu breytingar tíma, sem orðið hafa í sögu þjóð- arinnar. í bernsku og á fyrstu hjúskaparárum hennar þekktist naumast nema eitt boðorð öllum æðri: Vinn þú meðan dagur er, nóttin kemur þá enginn getur unnið, og ekki er hægt að minn- ast Sigríðar án þess að upp rifjist atorka þeirra hjóna við að berj- ast áfram, börnum sínum til bjarg ráða og þroska. Og liver, sem leit Sigríði á efri árum hennar, tiginmannlega í fasi og fríða sýn um, hlaut að undrast, hve skír málmur kom úr þeirri deiglu. Að eðlisfari var Sigríður hlé dræg kona og frábitin öllu tildri og hégóma, en dagfar hennar var slikt, að nu sakna fieiri en börn in hennar móður í stað. „Við daglega umhyggju alls, fyrir óskir, löngun og þörf hún beitir sér eins og bezt er unnt og býr undir framtíðarstörf. Hún vinnur sín verk í kyrrð, hún vinnur þau löngum duld. Við hana eru allir að endi dags — allir í þakkarskuld." Tr. P. alið' svo til allan aldur sinn í, til Skothríð Berlín i BERLINi 17. ágúst (NTB-Reuter) Austur-þýzk lögregla hóf í dag skothríð á tvo menn, sem reyndu að klifra yfir múrinn í Berlín til vesturhluta borgarinnar. Annav maðurinn komst yfir múrinn, en hinn varð fyrir skoti og féll til jarðar austanmegin. Þar lá hann í 80 mínútur áður en sjúkrabifreið kom og ók honum burtu. í fyrstu hrópaði særði maðurinn á hjálp, en seinna féll hann í ómeg i'n og lögreglan í Vestur-Berlín tel ur, að hafi gefið upp öndina áður en honum var ekið í burtu. Seinna var staðfest, að hann hefði látizt á sjúkrahúsi. Flóttamennirnir voru 18 ára gamlir. Hlutlausir vilja barsn GENF, 17. ágúst (NTB-Reuter) þluthuis rík,i á afvopnunarráð- stefnunni lögðu í dag hart að kjarn orkuveldunum að koma á samningi um bann við nokkrum tilraunum með kjarnorkuvopn. Fulltrúl Bandaríkjanna, Artbur Dean, sagði á blaðamannafundi, að Banda ríkjamenn beittu sér enn fyrir samningi um bann við öllum til- raunum. Sendimaður Brazilíu, Araujo Castro, lagði tii á fundinum í dag, að ráðstefnan einbeitti sér að því að koma á banni við tilraunum í andrúmsloftinu og geimnum. 11 B r L0 s IWEN ELUP ER í: , L w Ungverjaland fyrir SÞ \ WASHINGTON, 17. ágúst, | (NTB-AFP). BANDARÍKIN hafa farið þess á leit, að Ungverjalandsmálið verði tekið fyrir á Allsherjar- þinginu, sem kemur saman í næsta1 mánuði. í greinargerð segir Stevenson, | fulltrúi Bandaríkjanna hjá SÞ, að sovézk og ungversk yfirvöld hafi enn ekki gert viðunandi aðgerðir, er gera mundi SÞ kleift að leysa Ungverjalandsmálið. Ung- verjalandsmálið, er enn knýjandi vandamál og varðar grundvallar- atriði stofnskrár SÞ segir í grein- argerðinni. U Thant heldur til Moskvu í næstu viku og Ungverjaland verð- ur sennilega ekki meðal Austur- Evrópuríkja er hann hyggst heim-í sækja í leiðinni, enda þótt honum | hafi verið boðið að koma til I Búdapest. tveggja rúllna „Vibrations" — valfarar með dieselhreyflum. Drif og „vibrations“-útbúnaður á báðurn rúllum. Framleiddir í 3 stræðum: BW 65 — BW 75 — BW 90. Rúllubreiddir: 65 cm, 75 cm og 90 cm. Afgreiðsla af Iager. ! Tilboð óskast án skuldbindingu. Bréfaskipti á dönsku, norsku, sænsku, ensku og þýzku. V. L0WENER VESTERBROGADE 9B - K0BENHAVN V. - DANMARK TELEGRAMAÐR.: STAALL0WEN ER - TELEX: 5S8S 2? 18- ágúst 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.