Alþýðublaðið - 18.08.1962, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 18.08.1962, Blaðsíða 4
Ur heimi unga inst Myndirnar hér á síðunni eru frá sambandsráðsfundin um í Bifröst. Á efri inyndimv sjást allir þátttakendur fund- arins, að 3 undanteknum. Á myndina vantar Guðmund Árnason, Siglufirði, Hrein Erlendsson, Dalsmynni og "Óttar Yngvason, Reykjavík. Á neðri myndinni sjást formenn og fulltrúar nokkurra FUJ- félaga ásamt formanni SUJ. Á þeirri mynd eru talið frá vinstri: Guðmundur Árnason fyrrv. forinaður FUJ á Siglu firði, Gestur J. Ragnarsson, Norðfiröi, Hörður Arnþórsson form. FUJ á Siglufirði, Hreinn Erlendsson varaform, FUJ í Árnessýslu, Þórir Sæmunds- son formaður FUJ í Ilafnar firði, Gísli Bragi Hjartarson, form. FUJ á Akureyri, Björg- vin Guðmundsson form. SUJ, Guðjón Finnbogason form. FUJ á Akranesi, Karl Steinar Guönason form. FUJ í Kefla vík og Eggert Sigurlásson form. FUJ í Vestmannaeyjum i| félaga SAMBANDSEÁÐ SUJ hélt fund að Bifröst um síðustu helgi. Sóttu fundinn 27 ungir jafnaðarmenn eða álíka marg- ir og eiga sæti í sambandsráði. Þessir sóttu fúndinn: FRÁ REYKJAVÍK: Björgvin Guðmundsson, Sigurður Guðmundsson, Unnar Stcfánsson, Óttar Yngvason. FRÁ HAFNARFIRÐI: Þórir Sæmundsson, örður Zóphaníasson, Albert Magnússon. FRÁ AKUREYRI: Gísli Bragi Iljartarson, Hrafn Bragason, Sigurjón Bragason, Þór Ingólfsson. FRÁ AUSTFJÖRÐUM: Gestur J. Ragnarsson, Norð- firði; Hilmar Hálfdánarson, Egils- stöðum. FRÁ ÁRNESSÝSLU: Hreinn Erlendsson, Dalsmynni; Guðleifur Sigurjónsson, Hvera- gerði. FRÁ SIGLUFIRÐI: Hörður Arnþórsson, Guðmundur Árnason. FRÁ AKRANESI: Guðjón Finnbogason, Leifur Ásgrímsson, Karl Asgrímsson, , Arnór Ólafsson, Guðmundur Vésteinsson. FRÁ VESTMANNAEYJUM: Eggert Sigurlásson. FRÁ KEFLAVÍK: Iíarl St. Guðnason. FRÁ NJARBVÍKUM: Ólafur Thordersen. FRÁ SAUÐÁRKRÓKI: Birgir Dýrfjörð. FRÁ MOSFELLSSVEIT: Árni Petersen. Fundurinn hófst kl. 5.30 á laugardag. Formaður SUJ, Björgvin Guðmundsson, setti fundinn og flutti framsögu- ræðu um starfsemi SUJ og starf félaganna. Skýrði formað- ur frá helztu verkefnum sambandsstjórnar. svo sem út- gáfu Áfanga, ráðstefnum, er haidnar hafa verið, útbreiðslu- starfsemi og undirbúningi 19. þings SUJ. Er form. hafði lokið máli sínu hófust frjálsar umræður, er urðu mjög fjör- ugar. Sú hugmynd kom fram að hefja þyrfti strax í haust mikla herferð um allt land til þess að stórauka starfsemi ung- hreyfingarinnar og um leið Alþýðuflokksins. Var rætt um ýmsar leiðir í þessu skyni og m. a. var samþykkt að stefna að því að ráða fastan starfs- mann og erindreka til þess að sinna æskulýðsmálum flokks ins. Þá var samþykkt að næsta ráðstefna SUJ skyldi fjalla um félagsmál og kosningastjórn. Umræður stóðu til kl. 8 á laugardagskvöld. En þá var frestað til sunnudagsmorguns. Hófst fundur að nýju kl. 10.30 á sunnudagsmorgun og var þó haldið áfram umræðum um starfsemi unghreyfingarinnar fram að hádegi. Kl. 2 e. h. hófst fundur að Framh. á 12. síðr 4 ‘ 18- ágúst 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.