Alþýðublaðið - 18.08.1962, Page 16
íslenzku flugstjórnarmennirnir öfluðu 30 milljóna:
FLUCÞJÓNUSTA
NNUM
ÍSLENZKA flug-umferðarstjórn-
inin á Keykjavíkurflugvclli, hefur
á undanförnum árum átt sífellt
veigameira hlutverki að gegna í
fUigstjórnarmálum, bæði í Evrópu;
og fyrir flugumferð á Atlantshafi. ‘
A s. 1. ári greiddu erlend ríki
30 milljónir islenzkra króna fyrir
íslenzku flugþjónustuna.
í janúar s. 1. var svo komið að
flugþjónustan hér hafði sprengt
af sér kerfi, sem almennt er notað
fyrir flugstjómir í Evrópu. Flug-
GRECO-ballettinn
Á mánudagskvöld kemur hinn
fceimsfrægi Greeoballett til Reykja
víkur með leiguflugvél Flugfélags
íslands. Dansflokkurinn, 26 manns
lcéarar'- á vegum Þjóðleikhússins.
'Fyrsta sýning Greco-ballettsins
verður á þriðjudagskvöld og hefst
(jniðasala kl. 1.15 í dag. Selt verð
'Wr á þrjár sýningar.
Eins og áður hefur verið sagt
frá í blöðum, er hér um að ræða
einn þekktasta og vinsælasta
epánska ballettflokk, er nú starfar
og hefur hann sýnt í flestum stór
fjorgnr--Vestur-Evrópu og Amer-
fku.
stjórnarmennimir fundu þá unp
nýja aðferð við svokallaðar upp-
færslur, sem eru staðarákvarðanir
og annað, sem flugvélar á þeirra
svæði gefa upp. „Sparar" það
62.8% í uppfærslum. Fram-
kvæmdastjóm flugöryggisþjón-
ustu Norðurlanda, sem hér voru
á fundi fyrir viku síðan, þótti
mikið til um, þessa nýju aðferð.
Undanfarna daga hefur flugþjón-
ustan hér tekið að sér flugstjórn,
sem flugstjórnarmenn í Syðra-
Straumfirði hafa séð um. Er um
að ræða flugumferð, sem fer yfir
suðurodda Grænlands í yfir 20
þús. fetum. Hefur þetta mikla
hagkvæmni í för með sér, þar eð
íslenzku flugstjómarmennirnir
þurfa nú ekki að samræma flug-
umferð við flugstjórnina í Straum-
firði eins og áður hefur verið. :
íslenzka fldgstjórnarsvæðið er
með þeim stærstu í heiminum, og
geta íslendingar í sumum tilfellum
þurft að taka við flugstjórn frá
öllum flugumferðarstöðvum í
Evrópu. Þjónusta þeirra eykst
með hverju árinu sem líður.
Vinnuskilyrði íslenzku flug-
stjórnarmannanna eru með þeim
beztu sem þekkjast, þ. e. þegar
hinn nýi flugturn og tæki verða
Kennarar á
ísafiröi fá
staöaruppbót
fullnýtt. Þá má geta þess að
þessi mikla þjónusta hcfði ekki
verið möguleg ef nýi flugturninn
hefði ekki komið til.
Nýr flugliðs-
yfirmaður
Skipt hefur verið um yfirmann
flugsveitanna í varnarliðinu. Hefui
August E. Weil offursti tekið við
af Oscar B. Steely offursta. Weil
hefur gegnt margvíslegum störfum
í flughernum, en þó aðallega ver
ið orrustuflugmaður í Evrópu á
stríðsárunum og í Kóreustyrjöld-
inni. Hann er 42 ára gamall.
Sökum alvarlegs kennaraskorts
vlð Barnaskóla ísafjarðar og Gagn-
fræðaskólann á ísafirði samþykkti
bæjarstjórn ísafjarðar 14. þ.m.,,
samhljóða að greiða öllum kennur
l»m téðra skóla staðaruppbót næsta
«kólaár. Aukagreiðslur þessar eru
fer. 750.00 til hvers kennara á
etarfsmánuð, það er í 9 mánuði,
eða til hvers kennara kr. 6750.00
yfir- skólaárið. — Enn eru nokkrar
«töður lausar við ísfirzku skól-
ana.
Samþykkt bæjarstjórnarinnar í
■•>essu- efni er byggð á samhljóða
ósk fræðsluráðsins á ísafirði, en
é fundi þess 13. þ. m. var sam-
þykkt svohljóðandi tillaga með at
fcvæðum allra fræðsluráðsmanna:
„Þar sem barnaskólinn hefur
Undanfarið búið við svo alvarlegan
kennaraskort, að ekki hefur tekizt
— þrátt fyrir mikla aukavinnu
kennaranna, — að halda uppi lög
boðinni fræðslu samkv. námsskrá
og þar sem enn hefir engin um-
sókn borizt um auglýstar kennara
stöður við skólann, svo og með til
vísun til þess að allar líkur benda
til að ennþá alvarlegra vandamál
í þessum c-ínuná sé aö skapast í,
Gagnfræðaskólnnum verði ekkert
aðhafst í málinu samþykkir fræðslu
ráðið að beina þeirri ákveðnu ósk
til bæjarstjórnar ísafjarðar að sam
þykkt verði að bæjarsjóður greiði
kennurum téðra skóla staðarupp
bót á laun skólaárið 1962-1963,,
sem hér segir:
a) skólastjóra barnaskólans kr.
1000,00 pr. starfsmánuð.
b) kennurum skólanna kr. 750.00
pr: starfsmánuð.
Greiðslur þessar miðast við fullt
kennslustarf. Þeir kennarar, sem
ekki gegna fullu starfi fái staðar
uppbætur í hlutfalli við starf sitt.
í sambandi við ofanritaða sam-
þykkt vill fræðsluráðið minna á,
að á sl. sumri barst engin umsókn
um stöðu skólastjóra Gagnfræða'-
skólans fyrr en bæjarstjórn sam-
þykkti að greiða skólastjóranum
launauppbætur, en þá bárust fimm
umsóknir onda þótt umsóknarfrest
urinn væri þá aðeins fáeinir dag-
ar.“
Ennfremur samþykkti fræðsluráð
ísafjarðar samhljóða eftirfarandi
tillögu á fundi sínum 13. ágúst sl.:
„I tilefni af hinum alvarlega
kennaraskorti beinir fræðslui áð
eraiiih. á li. síöu
Vilja kðupa
100 þúsund
tunnur
í VIÐTALI, sem forstjóri A.-
þýzka verzlunarráðsins hér á landi
og fulltrúi kaupstefnunnar í Leip
zig áttu með blaðamönnum í gær
kom fram að Austur-Þjóðverjar
hafa nú í hyggju að gera samning
við íslendinga um kaup á 4000
þúsund tonnum af frystri Suður-
landssíld en það er um 40 þúsraid
tunnur.
Á þessu ári liafa þeir þegar
keypt álíka magn, en hin væntan
legu kaup byggjast að nokkru á því
hvort íslendingar vilji kaupa ið«i
aðarvarning eða annað af A.-Þjóð
verjum. Þá munu hafa borizt hing
að óskir um enn frekari kaup á
frystri síld, en þar mun fyrrnefnd
atriði einnig ráða livort af þeim
Kaupum verður.
MP
43. árg - Laugardagur 18. ágúst 1962 - 186. tbl.
Islenzk deild á
sýningu í Nígeríu
SÍÐAST í októbcrmánuði verður
opnuð alþjóðleg vörusýning í
Lagos í Nígeríu. í frétt, sem blað-
inu barst í gær frá Noregi segir
að Norðmenn muni hafa þar
stóra sýningardeild fyrir skreið-
arframleiðslu sína.
Af þessu tilefni sneri blaðið sér
til Samlags skreið'arframleiðendí
og fékk þar staðfest að íslcnding
ar muni einnig taka þátt í þess-
ari vörusýningu og sýna þar skreið
| og aðrar vörur. En Nígería kaup-
ir um 90% af skreiðarframleiðslu
okkar. Það er íslenzka vörusýning-
arnefndin, sem liefur veg og vanda
af þátttöku íslands í þessari sýn
ingu.
Norðmenn selja á ári hverju
skreið til Nígeríu fyrir 75—80
milljónir norskra króna. Nígeria
er þeirra stærsti viðskiptavinur á
þessu sviði.
Sýningardeild norsku skreiðar-
framleiðendanna í Lagos verður
130 fermetrar að stærð, íslenzka
deildin verður allmiklu minni.
Alls munu 42 þjóðir taka þátt í
■ þessari sýningu, sem verður opn-
uð 27. október og stendur til 18.
nóvember.
Skreið er afar vinsæll matur í
Nígeriu. Einkum mun hún notu®
sem einskonar krydd til að gefa
ýmsum réttum fyllra bragð, segir
í fréttinni, sem blaðinu barst frá
Noregi.
Fundu 2000 flösk-
ur af bjór og
100 kvenbuxur
TOLLGÆZLAN hefur nú lokið
leit sinni í farþegaskipinu Heklu,
og fundust 84 „karton“ (2016 flösk
ur) af bjór, fimm flöskur af á-
fengi, 600 vindlingar, 1 kassi af
sælgæti og 100 kvenbuxur síðbux-
ur. Allur þessi smyglvarningur var
í eigu skipverja.
Leit þessi hefur tekið nokkurn
tíma, þar eð tollgæzian þurfti að
bera saman við farmskrána ýmean
varning, sem var fluttur í land.
Ekkert fannst í lestum, en smygl-
góssið fannst víðs vegar um skipið
Ökumaður á bifhjóli slasast:
KASTAÐIST
FIMM METRA
UNGUR MAÐUR, Bent Bjarna-
son að nafni slasaðist nokkuð
alvarlega um hádegisbilið í gær
er hann varð fyrir bifreið á mót-
um Álfhólsvegar og Bröttubrekku
í Kópavogi. Bent var á mótor-
hjóli af Vespu-gerð, og er þetta
þriðja slysið á skömmum tíma,
sem veröur á bifhjólaökumönnum.
Bent var á leið upp Bröttu-
brekku, er hann kom upp á
Álfhólsveg varð hann fyrir bif-
reið, sem var á vesturleið. Varð
áreksturinn nokkuð harður, og
kastaðist Bent um fimm metra
vegalengd upp að girðingu, sem
þarna er.
Er lögreglan kom á staðinn var
hann meðvitundarlítill, en kom til
meðvitundar á Slysavarðstofunni.
Meiðsli Ifans voru ókunn í gær-
kvöldi, en hann viðbeinsbrotnaði
og talið var að hann hefði skadd-
ast eitthvað á höfði. Bent var
ekki með hjálm. Honum leið vel
eftir atvikum í gærkvöldi.
Annað slys varð um klukkan
fimm í gæy í Kópavogi. Átta árej
gamall drengur, Karl Magnússon,
Skólagerði 30 varð fyrir bifreið
á Kársnesbrautinni. Hann var á
reiðhjóli, og mun hafa fengið
slæmt högg á magann. Hann var
fluttur á Slysavarðstofuna.
STÁLU 200
KRÓNUM
Brotizt var inn hjá fyrirtækinu
Á. Einarsson & Funk í Höfðatúni
2 aðfaranótt sl. fimmtudags. Höfðu
þjófarnir komist inn um glugga á
bakhlið hússins. Þeir ollu engum
skemmdum, en höfðu um 200 kr.
upp úr krafsinu.