Alþýðublaðið - 21.08.1962, Qupperneq 7
TYRK3R og Persar eru mjög
uggandi um, a3 uppreisn Kúrda
í Norður-írak breiðist út xil landa
þeirra. Samkvæmt góðum heirnild
um íóru nýlega leyniviðræður
milli Kúrda og stjórnarvalda í
írak út um þúfur, en uppreisn
Kúrda hefur staðið i tæp tvö ár
og ekkert bendir til þess, að þeir
muni láta i minni pokann í bráð.
Mjög óróasamt er um þessar
mundii- •' þessum heimshluta —
það er Norður-írak, Austur-Tyrk
landi og Norður-íran, en Kúrdar
búa á þessu landssvæði og berj
ast fyrir því að héruð þeirra.verði
sameinuð í eitt, sjálfstætt nki.
Kúrdistan.
um Sýrlands til norðurhérað-
anna, en skömmu áður hafði Nass
er forseti Egyptalands haft í hót
unum við Sýrlendinga. Talið er,
að nokkrar deildir írakshers í
norðurhéruðunum hafi svikizt
undan merkjum og gengið í liö
með uppreisnarmönnum.
Liðsforingjar hafa gagnrýnt op
inberlega aðgerðir Kassems hers
höfðingja einvalda íraks, gegn
uppreisnarmönnum. Óttazt er, að
uppreisnin muni bráðlega hafa
siæm áhrif á fimm ára áætlun
Kassems en fjármagnið, sem þau
til áætlunarinnar, hyggst Kassem
fá írá olíufélögunum.
★ „ÓRÓAHORN"
„Óróahorn" þetta hefur verið
í fréttunum síðustu daga, enda
þótt fréttir af uppreisn Kúrda
séu af skornum skammti. Heldur
hefur verið hijótt um óánægju
lýúrda ; Austur-Tyrklandi; en þó
er vitað, að stigamenn af Kúrda-
stofni hafi vaðið þar uppi að und
anförnu.
Nokkrir helztu atburðir frá
þessu „óróahorni" síðustu daga
hafa verið þessir:
★ Tyrkneskar orrustuþotur
gerðu árás á MIG-þotur frá írak
á miðv.daginn. Að sögn tyrk-
neska utnríkisráðuneytisins
höfðu írösku þoturnar gert árás
á þorp eitt í Tyrklandi.
★ Tveir Tyrkir íéllu á miðviku-
daginn þegar otrustuþotur frá
írak gerðu árás á landamæra-
virki. Tyrkir hafa sent íraks-
stjórn mótmæli, en íraksstjórn
hefur lofað að greiða skaðabætur
og refsa „sökudólgunum".
★ Nýlega skiptust rússneskir og
tyrkneskir landamæraverðir á
skotum við brú eina yfir ána Sarp
skammt frá Svartahafi. Enginr.
Tyrki féll.
★ Loks náðu ættbálkamenn af
Kúrdastofni varðstöð herlögregiu
manna nálægt Sulamaya í Norður
írak á sitt vald snemma í þessum
mánuði. Kúrdarnir tóku bæinn
með snöggu áhlaupi um hádegis
bil, þegar flestir höfðu lagzt tii
livíldar. Þeir myrtu liðsforingja
úr írösku öryggisþjónustunni, en
hlífðu óbreyttum hermönnum og
undirforingjum og auk þess evr-
ópskum mönnum, sem stundað
hafa störf þarna.
* IRAKSHER
ÓÁNÆGÐUR.
Kúrdar virðast ráða lögum og
lofum í fjallahéruðunum í Norð
ur-írak, en þar eru helztu olíu-
miðstöðvar íraks, Kirkuk og Mos
ul. Sífelldar loftárásir stjórnar-
sinna og mikill liðssafnaður
stjórnarinnar hafa ekki bugað þá
eða dregið úr þeim kjarkinn.
Það var fyrr í mánuðinum að
Kassem hershöfðingi í írak sendi
mikinn her manna frá landamær
* LEYNIVIDRÆÐUR
Fréttir frá Beirút, sem að vísu
eru óstaðfestar, herma, að Ahmed
Barazani hafi nýlega haldið íi1.
Bagdad á fund Kassems. Ahmed
Barazani er bróðir uppreisnarfor-
ingja Kúrda, Mullah Mustapha
Hann vildi ræða við Kassem um
friðsamlega lausn deilu hans og
Kúrda, en viðræðurnar fóru út
um þúfur. Kassem hershöfðingi
vildi ekki fallast á kröfur Baraz
anis um sjálfstjórn til handa
Kúrdum innan írakska ríkisins.
Kúrdar eru um 9 millj. íalsins
Þar af búa u.þ.b. 2 milljónir í
Austur-Tyrklandi, u.þ.b. 3 millj.
í íran, 2,5 milljónir í írak (þar
eru þeir 15% íbúanna), enn aðrir
búa handan landamæra Sovét-
rikjanna, í Adzerbaidjan.
Barátta Kúrda fyrir sjálfstæði
á sér langa sögu. Hún hófst árið
1914 þegar þeir bjuggu við stjórn
Tyrkja. Þeir sendu nefnd til friö
arráðstefnunnar í . lok heims-
styrjaldarinnar 1914-18 og bundu
miklar vonir við loforð Wilsons
Bandaríkjaforseta um, að þjóðir
sem ekki væru af tyrkneskum
uppruna, fen’gju möguleika íil
sjálfstæðis.
★ KURDISTAN
Samkvæmt Sévres-sáttmálan-
um var ákveðið, að arabisk ríki
yrði sett á fót í Sýrlandi og írak
og einnig, að Armenía og Kúrd-
istan yrðu sjálfstæð ríki.
Sévres-samningurinn var þó al
drei staðfestur, og í Lausanne-
samningnum frá 1923 var ekki
minnzt einu orði á Armeníu eða_
Kúrdistan. Um árabil börðust
Kúrdar gegn inniimuninni í írak,
og í Tyrklandi gerðu þeir einnig
blóðugar uppreisnir. Svo gerðist
það árið 1944, að stofnað var
„Kúrdalýðveldið Mahabad" í
Persíu með stuðningi Rússa.
Kúrdar í írak hafa verið viður-
kennt þjóðarbrot og notið ýmissa
sérréttinda. Mál þeirra hefur ver
ið kennt í skólum og notað í
dómssölum. Sjálfur Kassem hers
höfðingi er að einhverju leyti af
T ITK KE Y i
MIp \ vh
jfl' ....
ZfiíAM yAs.Mosul.
m
K'
Ȓ
i
Kortið sýnir hvar Kúrdar búa
(áuðkennt með punktum).
Kúrdaættum. Það var ekki sízt
vegna stuðnings Kúrda að honum
tókst að brjótast til valda. Tveir
eða þrír Kúrdar hafa ætíð átt
sæti í stjórn hans.
★ RÚSSAR RÓA UNDIR
Kúrdar hata ísrael og Gyðinga
ekki síður en Múhameðstrúar-
menn, en þeir leggja líka mikla
fæð á al-arabísku hreyfinguna.
Þetta atriði hefur mikla þýðingu
í stjórnmálum Mið-Austurlanda,
ekki sízt nú á síðari árum.
Rússar hafa áreiðanlega gert
sér grein íyrir þessu atriði. Kúrd
um fannst eðlilegt að leita stuðn
ings hjá Rússum fyrir heims-
styrjöldina 1914-18.
Kúrda-höfðinginn Mulla Must-
apha al Barazani er foringi sjálf-
stæðisstríðs Kúrda nú eins og
svo oft áður. „Rauði Mullah“ cr
hann kallaður. Hann gerði +
fyrst uppteisn gegn vald-
höfum íraks 1931 og aftur 1943,
en þá vann hann mikinn sigur á
herjum íraksmanna.
.. •■“ '
★ „RAUDI MULLAII“
I SOVÉT.
Þriðju uppreisnartilraunina
gerði „Rauði Mullah" árið 1945
og hlaut þá opinberan stuðning
Rússa. Þegar þessi uppreisn var
bæld niður íiúði hann iil Sovét
l'íkjanna.
í nokkur ár var hljótt um hann
en einn góðan veðurdag birtist
mynd af honum í blaði í einkenn
isbúningi rússnesks hershöfð-
ingja.
Eftir morðið á Feisal konungi
og byltingu Kassems hersþöíð
ingja snéri Barazani heim aftur
eftir 12 ára útlegð. Honuin var
afhent skrauthýsi hins myrta
forsætisráðherra, Nuri Said, til
eignar. Kassem reyndi eftir beztu
getu að gera Kúrdana ánægða
og koma á lögum og reglu í lani
inu.
★ VERKFÖLL OG
ÓEIRÐIR
Það hefur ekki íekizt. Senn?-
lega hafa eins margir menn fallið
í hinum stöðugu vopnaviðskipt
um og í Alsírstríðinu að þvi er
fregnir herma. Stöðug verkföíl
og ólga á Mosul-olíusvæðinu eiga
rót sína að rekja til undirróðurs
og æsingastarfsemi Kúrda. í Mo.s
ul hefur verið stöðugt neyðará-
stand síðastliðin ár.
Draumurinn um Kúrdistan ræt
ist sennilega aldrei enda -þóít
mörg þúsund Kúrda vilji láta líf
sitt í sölurnar fyrir hann. En á-
standið í Mið-Austurlöndunum
verður ekki tryggt eða öruggt
um langt. skeið vegna Kúrdastríffs-
ins í írak.
Nei, sjáiff þiff nú kennarann.
Þaff er ekki furffa þó aff krakka
angarnir séu suniir hálf skelkað
ir. Þaff myndu fleiri verffá, ef
fíll ætti að gegna hlutverki áénn
arans. En skyldu þau hljóta þetr*
kennslu í dýrafræði lijá kenn-
ara sínum?
i'41 vt • o uy T j?