Alþýðublaðið - 27.09.1962, Page 3
BARCELONA, 26. septeniber
Að minnsta kosti 246 manns hafa
farizt ogr 355 manns er saknað í
miklum flóðum í Barcelónahcraði
í dagr. Óttazt er, að enn fleiri liafi
farizt. Orsök flóðanna var mikið
skýfall og á mörgrum stöðum hafa
ár flætt yfir bokka sína.
í gærkvöldi var óttazt að flóð
yrðu þar eð vatnsyfirboröið hafði
hækkað í ám ogr var kirk.iuklukkum
hringt aðfaranctt miðvikudags.
Harðast hefur iðnaðavsva;ðið
Sabadell orðið úti í flóðunum, en
það er um 50 km. frá Barcelona.
Rocha látinn
Rio de Janeiro:
Fyrrverandi forsætisráðherra
Brazilíu, Francisco Brochado da
Rocha, lézt í Rio de Janeiro á mið
vikudag. Banamein hans var lieila-
blóðfall. Da Rocha var forsætisráð-
herra Brazilíu frá 10. júlí til 13.
sept. þessa árs.
Bæði járnbrautasamgöngur og
fjarskiptasamband hafa roínað á
svæðinu. Einnig hafa gereyðilagzt
margar verksmiðjur á þessu svæði
Fimm starfsmeun einnar verk-
smiðju munu hafa grafizt inni.
Um 100 manns hafa íarizt á Saba
dell-svæðinu, en óttazt er að end-
anlegar tölur verði enn hærri.
í bæ einum nálægt Barcelona
er óttazt að allt að 250 hafi farizt.
í bæ þessum er 300 manns saknað.
Bærinn Tarassa og hinn þekkti
baðstaður La Barcelona hal'a einn
ig orðið hart úti, og á Mallorca
varð einnig mikið skýfati í morg-
un. Kjallarar meira en hundrað
húsa í bænum Palma íylltusl af
vatni.
Samgöngur í lofti á Barcelona-
svæðinu hafa algerlega lagzt niður
Brýr á- vegum og járnbrautabrýi
hafa sópazt burtu á möigum stöð
um. Barcelona sjálf slapp ekki við
flóðin.
Enn liggur ekki fyrir nákvæmt
yfirlit um, hve margir hafa farizt
í flóðum þessum. Margar fjölskyld
ur hafa farizt, t.d. fórst niu manna
fjölskylda á einum stað.
í Palma á Mallorca sópaðizt bif
reið með flóðbylgjunni á haf út.
Skemmtiferðamenn horfðu á flóð
in á svölum hótela sinna. Á Mail
orca er sagt, að þetta séu verstu
flóð, sem sögur fara af.
Ben Bella
t
forsætis-
ráðherra
Daglegaátöká
landamærum
Algreirsborg, 26. sept.
(NTB-Reuter).
Mohammed Ben Bella var I
kvöld kjörinn fyrsti forsætisráð-
herra hins sjálfstæða Alsír ríkis.
Tillagan um að kjósa hann I emb-
ættið var borin fram á órólegum
þingfundi, þar sem í dag var rætt
klukkutímum saman um ýmis ein-
stök vandamál varðandi stjórnar-
skrána.
PEKING 26. september (NTB-
Reuter) Indverskir hermenn gerðu
nýtt áhlaup í dag á kínverska her
stöð vestur af Che Jao-brua, scgir
kínverska fréttastofan Nýja Kína.
Einn kínverskur hermaður féll og
annar særðist.
Að sögn fréttastofunnar munu
indversku hermennimir hafa skot
oð 700 skotum og fjórum sprcngi
kúlum.
Á þriðjudag kom einnig til á-
taka á landamærasvæðinu. í átök
um á mánudag féllu þrír kínversk
ir landamæraverðir og tveir liðs-
foringjar særðust.
Að sögn mdversks formælanda
í Nýju Delhi í dag hófu kínversk
ar hersveitir skothríð á indverska
varðstöð við norðaustur landamær
in daginn áður. Indverjar svöruðu
skothríðinni, sem stóð í tíu mínút
ur, en ekki er vitað hvort nokkur
hafi orðið fyrir skoti.
Kínverjar hófu skothríð á varð
stöðina, sem tilheyrði indverska
landamæravirkinu Vab L’hola, þar
sem skorizt hefur í odda síðan
Kínverjar sóttu inn í svæði þetta
fyrir hálfum mánuði. Kínversku
hersveitirnar eru tæpa 500 metra
frá aðalvarðstöðinni, sem til þessa
liefur ekki skipt sér af vopnavið-
skiptunum við Kínverja. Virkið er
3 km.. frá landamærum Kína og
Indlands.
Indverski formælandinn tók
fram að indversku hersveitirnar
hefðu fyrirskipanir um að reka
Kínverjana á flótta. Um 200 til
300 kínverskir hermenn munu
vera í indverskri grund.
FRÉTTIR í
STUTTU MÁLI
TOGARINN Geir var væntan-
legur til Reykjavíkur í morgun.
Geir er með um 160 tonn af fiski
af heimamiðum. Askur fór á veið-
ar kl. 5 í gærdag.
NÁMSSTJÓRAFÉLAG íslands
hélt aðalfund sinn 28. ágúst sl.
Fráfarandi stjórn skipuðu: Jónas
B. Jónsson, form., Aðalsteinn Ei-
ríksson og Halldóra Eggertsdóttir.
í stjórn voru kjörnir: Þórleifur
Bjarnason, Arnheiður Jónsdóttir
og Magnús Gíslason. Aðalmál fund
arins voru skipulags- og kjaramál.
Helzti andstæðingur Ben Bella,
Belkaoem Krim varaforsætisráð-
herra, lagði til, að þingið kysi for-
sætisráðh. og viðurkenndi stjórn
hans í annarri atkvæðagreiðslu.
Fylgismaður Ben Bella hafði fyrst
lagt til, að þjóðþingið viðurkenndi
Ben Bella og siðan skyldi hann
kynna þinginu stjóm sína.
Síglingar
til Noregs
ÞAR sem viðskipti milli Norð-
manna og íslendinga hafa aukizt í
seinni tíð, hefur Eimskipafélagið
ákveðið að láta þrjú af skipum
sínum hlaða í Kristianssand í
mánuðunum fram til áramóta; m.
s. Tungufoss um 8. ókt., ms. Fjall-
foss um 8. nóvember og ms. Gull-
foss um 5. desember.
Ákvörðun hefur ekki verið tekin
ennþá um það, hvernig siglingun-
um verður hagað eftir áramótin,
en fastlega má gera ráð fyrir því
ef svo verður, sem nú horfir, að
framvegis hafi skip félagsins við-
komu í norskum höfnum.
Gætur hafðar á ;
Rússahöfn á Kúbu
WASHINGTON og MOSKVA
26. september, (NTB-Reuter) Vara
utanrikisráðherra Bandarikjanna,
George Ball, sagði í dag, að fyrir
huguð bygging rússneskra fiskimið
stöðvar á Kúbu þjónaði pólitísk-
um til gangi. Þetta væri dæmi pm
tilraunir Sovétríkjanna til að fá
Kúbumenn til þess að þjóna leyni
legum hagsmunum sínum.
Að sögn rússnesku TASS-frétta
stofunnar eiga 130 fisktbátar að
geta notað höfnina. Samk.væmt
samningnum eiga Rússar að útvega
tæknifræðinga. Einnig iiafa samn
ingsaðilar orðið ásáttir um að ráð
færa sig hvorir við annan í fisk-
veiðimálum. Höfð verður sam-
vinna um fiskirannsóknir.
Samkvæmt blaðafregnum ótt.ast
formæíendur utanríki.sráðuncytis-
ins, að höfnin verði noti'ð í hern
aðarlegum tilgangi. Hatt er eftir
góðum heimildum að nafðar verði
nánar gætur á því hvort höfnin
verður notuð í hernaðarleguni til
gangi.
Mál þetta verður tekið til með
ferðar á vettvangi samtaka Amer-
ikuríkja.
Að sögn formælenda brezka ut-
anríkisráðuneytisins hafur brezka
stjórnin ekki í hyggju að setja
hafnbann á Kúbu. Stjórnin hefur
hvatt brezka skipaeigendur til þess
að flytja ekki vörur til Kúbu er
geti eflt hernaðargetu landsins, en
hún getur ekki bannaö brezkum
skipum að flytja vöru frá komm
únistaríkjum til Kúbu, sagði tals
maðurinn.
Rússar fljúga
á loftleiðinni
til Berlínar
Berlín, 26. sept. 1
(NTB-Reuter).
Rússnesk orrustuflugvél flaug
nálægt V-þýzkri áætlunarflugvél á
loftleiðinni til V-Berlínar í dag.
Orrustuflugvélin beygði snögglega
til vinstri og flaug aðeins 140 m.
frá áætlunarflugvélinni.
Þetta er haft eftir bandarískum
heimildum í Berlín í dag. *
Undanfarna daga hafa fleiri plík-
ir atburðir gerzt á loftleiðinni og
hafa þeir orðið tilefni til mótmæla-
orðsendinga, sem Vesturveldin
hafa sent fulltrúa Rússa í Berlín.
Atburðurinn í dag gerðist kl.
14,16, um 80 km. suðvestur af Ber-
lín. Flugvélin var á leið til Ber-
línar. Bandaríkjamenn hafa þegar
borið fram mótmæli vegna þessa
atburðar.
Stóraukinn inn-
flutningur hjól-
barða frá Japan
ÞÓTT leiðin frá Japan til ís-
lands sé löng, er nú svo komið,
að mikið af vörum er flutt hing-
að til lands frá Japan, og er verð
þeirra yfirleitt lægra, en á sam-
bærilegum vörum annars staðar
frá, þótt flutningskostnaður sé
mikill. Talið er, að um 80% allra
neta, sem flutt eru til landsins
komi frá Japan. Mikið magn er
einnig flutt hingað af hjólbörð-
um frá Japan.
Þegar innflutningur hjólbarða
var gefinn frjáls, hafði það þau á-
hrif, að verð hjólbarða lækkaði
um 35-40 af hundraði. Sú verð-
lækkun stafaði fyrst og fremst af
því hve japönsku hjólbarðarnir
voru ódýrir, en ekki vegna þess,
að heimsmarkaðsverðið hefði
breytzt. Fyrstu sex mánuði
þessa árs voru fluttar inn 75,1
smálest af hjólbörðum frá Jap-
an, 54,2 frá Svíþjóð, 42,6 frá USA
og 39,1 frá Sovét.
Samtals voru þessa sex mánuði
fluttar inn 351,7 lestir af hjól-
börðum í allt.
í júlí og ágúst voru fluttar inn
70,9 lestir af hjólbörðum frá Ja-
pan.
Fyrir bifreiðaeigendur hefur
þessi lækkun á hjólbarðaverðinu
ekki haft svo lítinn sparnað í för
með sér. Nú munu hjólbarðar fyr-
ir smærri bíla vera á svipuðu
verði, sama frá hvaða landi þeir
eru, en hins vegar eru hjólbarðar
undir stærri bíla enn ódýrastir frá
Japan.
FUJ í Hafnarfiröi
Framh. af 16. síðu
skipuð: Sigurður Stefánsábn, Gunn
ur Gunnarsdóttir og Páll Ólason.
í skýrslu fráfarandi formanns
kom fram að starfsemi fé'.agfins
hafði verið mikil og fjólþætt á ár
inu. Velta félagsins hafði rúmlega
tvöfaldast, mörg og fjóisótt tóm-
istumda- og skemmtikvöid vérið
haldin, dansleikir, bæjamiálafund
ir o.fl. auk hinnar venjulegu j fé-
lagsstarfsemi. Þá helt félagið
reglulega úti blaði á árinu, Rödd
æskunnar, sem var 8 síður ^ að
stærð hverju sinni.
Mikill áhugi ríkti á fundirfum
um starfsemi félagsins. Kjörnir
voru 22 fulltrúar á 19. sambands
þing SUJ, sem haldið verðúé í
Hafnarfirði að þessu sinni. ,
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 27. sept. 1962.3