Alþýðublaðið - 05.10.1962, Page 4
ÞIÐ þekkið liana, þykjumst við vita: Kvikmyndaleikkonan Susan Hayward, sem giftist
brerkum verzlunarmanni og byrjaði að búa á íriandi og sagðist vera sezt í helgan stein.
Þetta gerðist eftir að liún hafði reynt að stytta sér aldur; og var þá víst búin að fá nóg af
kvikmyndunum og frægðinni. En nú hefur hún hlýtt kallinu aftur. Hún er búin að ráða sig
í aðalhlutverkið í nýrri brezkri mynd. Og er myndin hér til hliðar tekin þcgar hún er kom-
in til London og er að gera þar innkaup á markaðstorgi.
Þeir fara 1 ætla kommar
aftur
hafa öðlazt reynzlu í fyrri geim
ferð og kynnzt þyngdaileysi í
geimnum þannig að hann geti at-
hugað og skiiið fleira í næstu ferð
sinni.
í grein blaðsins er lýst „geim-
fíiraflugvelli“ Rússa í útjaðri
Moskvu. í hvert sinn er geimferð
er fyrirhuguð eru margir geim-
farar þjálfaðir. Einn af forstjórum
geimrannsóknarstöðvar þe sar seg
ir í viðtali við blaðið, að of snemmt
sé að hugsa um komandi
ferðir. Fyrst verði að Ijúka við vís
indaskýrslu í sambandi við geim-
ferðir Nikolajev og Popovich.
Margar mikilvægar upplýsingar
hefðu fengizt þar.
MOSKVA, 3. október (NTB-Reu
ter) Málgagn sovézku .stjórnarinnar
Izvestija, segir í gær, að sennilega
verði næsta geimfar, sem Rúisar
senda út í geiminn, mannað annað
hvort Juri Gagarin, Gherman Ti-
tov, Andrian Nikolajev eða Pavel
Popovich.
Blaðið segir, að geimfari sá. er
fari í næstu geimferð Rússa, verði
Sjálfkjarið
UM SÍÐUSTU helgi rann út fram-
boðsfrestur í kosningu
fulltrúa Verkamanpafélagsins Hlíf
ar í Hafnarfirði á 28. þing A. S. í.
Eigi kom fram nema einn listi,
og er hann frá uppstillingarnefnd
og trúnaðarráði Hlífar, og urðu
þeir, er þann lista skipa sjálf-
kjörnir.
HUN STÓÐST EKKI MÁTIÐ
m KLJUFA
Björgvin
Guðmundsson
skrifar um
VERKA-
LÝÐS-
MÁL
KOSNINGUM fulltrúa á Al-
þýðusambandsþing lýkur um
helgina. Standa nú fyrir dyr-
um tvær stórorrustur, full-
trúakjör í Dagsbrún og Sjó-
mannasambandi íslabds.
Kommúnistar hafa rekið mik
inn áróður gegn lista lýðræðis
sinna í Sjómannasambandinu
og reynt að læða því inn hjá
sjómönnum, að frambjóðendur
lista stjórnar Sjómannasam-
þandsins hefðu verið fylgjandi
gerðardómnum enda þótt það
sé alrangt. Forustumenn Sjó-
mannasambandsins voru alger-
lega andvígir gerðardómnum
eins og fram hefur komið í Al-
þýðublaðinu hvað eftir annað.
Jón Sigurðsson, formaður Sjó-
mannasambands íslands skil
aði séráliti í dómnum og lagði
til, að lögfest yrðu kjör, sem
voru nákvæmlega eins og þau
kjör er samninganefnd sjó-
manna hélt fram í samningavið
ræðunum um kjör síldveiðisjó-
manna. Ef álit Jóns hefði hlot-
'ið meirihluta í dómnum hefðu
sjómenn haft sitt fram, Það er
því vissulega nokkuð langt
gengið af kommúnistum að
halda því fram, að forustumenn
Sjómannasambandsins hafi ver-
ið fylgjandi niðurstöðu gerðar-
dómsins.
Kommúnistar treystu sér
ekki til þess að bjóða fram
í Sjómannasambandinu 1960
við fulltrúakjörið á þing ASÍ.
Listi stjórnar sambandsins varð
þá sjálfkjörinn. Svo miklar
hrakfarir fóru kommúnistar við
stjórnarkjör í Sjómannafélagi
Reykjavíkur sl. vetur, að telja
má víst, að þeir hefðu ekki boð
ið fram í sjómannasambandinu
nú, ef þeir hefðu ekki séð sér
þann leik á borði, að reyna að
blekkja sjómenn í gerðardóms-
málinu. Gekk kommúnistum að
vísu nokkuð illa að koma fram
lista, þar eð nokkrir menn á
lista þeirra reyndust ólöglegir,
er kjörstjórn fór að athuga list
ann. Ef stranglega hefði verið
tekið á málinu, hefði kjörstjórn
átt að dæma lista kommúnista
ólöglegan en fulltrúar lýðræð-
issinna í kjörstjórninni töldu
rétt að gefa kommúnistum kost
á að leiðrétta lista sinn, þar eð
þeir töldu æskilegt, að kosning
færi fram. Fulltrúi Alþýðu-
sambandsins í kjörstjórninni,
Benedikt Davíðsson, lamdi stöð
ugt höfðinu við stein í kjör-
stjórninni og lézt ekki sjá það,
að nokkrir af fulltrúum komm-
únista á listanum væri ólögleg-
ir. Reyndi hann að draga störf
kjörstjórnar á langinn og mun
hann hafa haft fyrirmæli
kommúnista um að gera það,
þar eð kommúnistar munu hafa
gert sér vonir um að fresta
yrði kosningunni í Sjómanna-
sambandinu, þar til um aðra
helgi. Mun kommúnistum lítast
illa á það, að þurfa að vinna
við kosningar í tveim samtök-
um i einu um sömu helgina, þ.
e. í Dagsbrún og Sjómanna-
sambandinu. Ef meirihluti kjör-
stjórnar hefði lýst lista komm-
únista í Sjómannasambandinu
ógildan og ágreiningur kjör-
stjórnar farið fyrir Alþýðu-
sambandið. má telja víst, að mið
stjórn ASÍ hefði fyrirskipað
kosningu í Sjómannasamband-
inu síðar og það hefðu komm-
únistar helzt kosið. En sam-
kvæmt auglýsingu Alþýðu-
sambandsins um fulltrúakjörið
á því að ljúka um þessa helgi
og eftir því hefur Sjómanna-
sambandið viljað fara.
Kommúnistar í Dagsbrún ótt-
ast það nú mjög, að lýðræðis-
sinnar sýni mikla fylgisaukn-
ingu við fulltrúakjörið í félag-
inu. Þess vegna voru þeir mjög
tregir til þess að láta allsherj-
aratkvæðagreiðslu fara fram,
enda kjósa þeir það helzt, að
allar kosningar í Dagsbrún
fari fram á fámennum félags-
fundum. Því fleiri, sem kjósa
í Dagsbrún, því meiri mögu-
leikar eru á því, að ná félaginu
úr höndum kommúnista.
Ekki hafa neinar stórar
breytingar átt sér stað í Al-
þýðusambandskosningunum það
sem af er. í Bifreiðastjórafélag-
inu Frama komu nú fram 3 list-
ar, 1 frá kommúnistum, einn
frá Framsóknarmönnum og 1
frá lýðræðissinnum. Framsókn-
armenn í Frama mega eiga
það, að þeir hafa verið mjög
tregir til þess að hlýða skip-
un flokksforustunnar um að
hafa samstarf við kommúnista.
Hins vegar hafa þeir ekki haft
manndóm í sér til þess nú, að
stíga skrefið til fulls og hafa
.samstarf við aðra lýðræðis.-
sinna. Úrslitin í félaginu urðu
þau, að listi lýðræðissinna
lilaut flest atkvæði og alla full-
trúana kjörna, að áliti meiri-
hluta kjörstjórnar., en við full-
trúakjörið 1960 vann listi fram
sóknarmanna og kommúnista.
Það hefur verið einkennandi
fyrir fulltrúakjörið, sem nú er
senn á enda, að kommúnistar
hafa jafnvel gengið lengra í yf-
irgangi og gerræðisfullum
vinnubrögðum en oft áður. —
Þannig bendir nú allt til þess,
að kommúnistar hafi fullan hug
á því, að bola fulltrúum Hins
íslenzka prentarafélags út _af
Albýðusambandsþingi. HÍP
viðhafði nákvæmlega sömu
kosningaaðferð og áður við full
trúakjörið, þ. e. lét fara fram
óbundna kosningu á vinnustöð-
um, en miðstjórn ASÍ fyrirskip-
aði, að fara skyldi fram alls-
herjaratkvæðagreiðsla samkv.
reglum ASÍ. Barst sú fyrir-
skipun eftir að einhverjir
kommúnistar í félaginu höfðu
kært fyrirhueaðar kosningar
í HÍP til ASÍ. Kommúnistar
hafa ekki áður gert athuga-
semd við kosningatilhöeun í
Prentarafélaginu. og bendir at-
gangur þeirra bar nú til þess
að þeir séu að færa sig unn á
skaftið í yfirgangi í verkaiýðs-
hreyfingunni. Þá kærðu kom-
múnistar einnig fulltrúakiörið
í Múrarafélaginu. en miðst.ióm
ASÍ vísaði beirri kæru frá; og
er það mesta furða.
Búast má nú við því, að senn
berist úrskurður félagsdóms um
það, hvort ASÍ beri að veita
Landssambandi ísl. verzlunar-
manna upptöku í ASÍ eða ekki.
Má miög sennilegt teljast, að
sá úrskurður verði á þá lund,
að LIV eigi rétt á inngöngu í
ASÍ. Hins vegar hafa menn
litla trú á því, að kommúnist-
ar sætti sig við bann úrskurð.
Sennilegra er, að Framsóknar-
menn á þingi ASÍ vilji fara
eftir úrskurðinum, ef hann yrði
jákvæður verzlunarmönrpim.
Virðist allt benda til þess, að
þing Alþýðusambandsins verði
hið sögulegasta. Telja má víst,
að kommúnistar revni eins og
áður að hindra aðild verzlun-
armanna að Albvðusamband-
inu, og ef þeir hyggjast einn-
ig bola frá þinginu réttkjörn-
um fulltrúum verkalvðsfélaga,
er lotið hafa forustu lýðræðis-
sinna, stefna þeir vísvitandi að
því að kljúfa Alþýðusamband-
ið.
4 5. október 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ