Alþýðublaðið - 30.10.1962, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 30.10.1962, Blaðsíða 2
aitstjórar: Gisll J. Astþórsson (áb) og Benedikt Gröndal,—Aðstoöarritstjóri Björgvin Guðmuudsson. — Fréttaritstjóri: Sigvaldi Hjálmarsson. — Simar: 14 900 — 14 902 — 14 903. fi uglýsingasími: 14 906 — Aösetur: Alþýöuhúsið. — Prenlsmioía A'þýöublaðsins, Hverfisgötu 8-10 — Áskriftargjald tr. 05.00 i mánuði. 1 lausasöiu kr. 4.00 eint. Útgefandi: Alþýðuflokkurinn - Fram- kvæmdastjóri; Ásgeir Jóhannesson. RÚSSAR HÖRFA KRUSTJOV, íorsætisráðherra Sovétríkjanna, tilkynnti á sunnudag, að stjórn hans mundi láta taka niður og flytja burt undir eftirliti Sameinuðu þjóðanna þær herbækistöðvar á Kúbu, sem Banda ríkin telja árásarstöðvar gegn sér. Virðist sjálft Kúbumálið þannig ætla að leysast á friðsamlegan hátt, hver sem eftirleikur þess kann að reynast annars staðar. Sovétríkin reyndu fyrst herstöðvaskipti, þann ig að Bandaríkin drægju til baka stöðvar í Tyrk- landi á móti Kúbu. Þetta fékk þó ekki undirtektir, ■enda er það eins og þjófur brytist inn í hús og heimt aði svo greiðslu fyrir að fara út. Það jafnvægi, sem -heimsfriður hefur byggzt á undanfarin ár, varð að- eins tryggt með því að eldflaugastöðvamar yrðu dregnar frá Kúbu og annað væri óbreytt. Kjami þessara alvarlegu mála hefur verið styrkleikapróf milli Krústjovs og Kennedys. Er tal ið, að Rússinn haf i, síðan Kennedy tók við embætti, -reynt að gera sér grein fyrir, hversu harður hann væri í horn að taka, og í beinu framhaldi af því, hve langt Sovétríkjunum væri óhætt að ganga, án þess að setja af stað 'kjamorkustríð. Þegar Kennedy fylgdi ekki eftir innrásinni í Kúbu á sínum tíma, mun Krústjov hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að hann mundi ekki grípa ti:l alvarlegra aðgerða, held- ur hörfa undan frekari sókn Rússa. Ráðamenn Bandaríkjanna hafa undanfarna mánuði óttazt, að Krústjov hefði rangt mat á Kenne dy. Þetta vanmat Rússa töldu þeir stórhættu- legt, þar sem þeir gætu í trausti þess hafið aðgerðir, sem neyddu Bandaríkin til alvarlegra ga'gnráðstaf ana. Flutningur Rússa á eldflaugum og kjarnorku- stöðvum til Kúbu verður aðeins skýrður á þennan hátt. Rússar virðast nú hafa skilið, að þeir gengu feti of langt á Kúbu, og ef þeir héldu fast við árás arstöðvar sínar þar, mundu Bandaríkjamenn senni lega ráðast á Kúbu og eyðileggja stöðvarnar. Virð- ist sennilegt. að Krústjov telji sig verða að ihörfa til að bjarga Castro, og sé það skýringin á undan- haldi hans um helgina. Krústjov gerði hörmuleg mistök með því að senda eldflaugar til Kúbu. Þeirri ógnun gat Banda ríkjastjórn ekki látið ósvarað, og á þeim grund- velli hlutu aðgerðir Kennedys víðtækan stuðning á Vesturlöndum. Krústjov er nú reynslunni ríkari ©g fer vonandi gætilega. Honum mun ekki haldast uppi að skera hinn frjálsa heim niður eins og spæi- pylsu og éta sneið fyrir sneið, eins og ætlun komm únipta hefur verið. Þó er lofsvert, að Krústjov skyldi hörfa, áður en verra hófst af frumhlaupi fians. HANNES Á HORNINU að þctta hafi þegar skánað nokk- uð og sé ekki nú eins nöturlega andstyggilegt og það var í fyrra vetur, þegar öskur og óhljóð virt- ust vinsælusl. ÉG GERI EKKERT með þá af- sökun útvarpsins, að ekkert fé sé fyrir hendi til flutnings slíks þált- ar. Svo miklu fé eyðir útvarpið f tónlist, að þess yrði ekici mikið vart, þótt þessum þætti væri bætt við. Enda hægurinn hjá að fella niður eitthvað annað og óþarfara, jafnvel stytta hljómlistarflutning- inn eitthvað. Það er engin nauð- syn að hafa þetta gargandi allan daginn á öllum vinnustöðvum, svo aldrei heyrist mannsins mái, nema með því að hrópa og kalla”. KIPAU Hekla fer vestur um land í hringferð 1. nóv. 1962. Vörumóttaka í dag til Patreksfjarðar, Sveinseyrar, Bíldudals, Þingeyrar, Flateyrar, Suðureyrar, ísafjarðar, Siglu- fjarðar, Dalvíkur, Akureyrar, Húsavíkur og Raufarhafnar. Farseðlar seldir á miðvikudag. Herjólfiir fer til Vestmannaeyja og Horná fjarðar 31. þ. m. Vörumóttaka f dag til Homafjarðar. Farðseðlar seldir á miðvikudag. ENSKA Löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi Eiður Guðnason, k Vetrardagskráin hafin. k Boðskapurinn forvitni- legur. ★ Bréf um dægurlög og músík. •k Lög unga fólksins. VETRARDAGSKRÁIN er hafin í útvarpinu og boðskapurinn um efni hennar er forvitnilegur. Svo er eftir að sjá hvemig úr rætist og framkvæmdin tekst. Það er gott að við eigum að fá skemmtiþætti, framhaldssögu, framhaldsleikrit og góðar kvöldvökur. Það virðist eiga að leggja mikla rækt við þjóð sagnalestur og valdir kunnir menn til þess að lesa þær. ÉG HEF aldrei skilið hvers kon- ar daður þetta er við marg lesnar þjóðsögur, sem allir kunna, og ég sé ekki, þó að ég sé allur af vilja gerður, hvers vegna verið er að velja sérvalda menn til að lesa þær. Aðalatriðið er það, að það sem lesið er, sé lesið, en það breytir ekkert efni þjóðsögunnar hvort Þórbergur Þórðarson les hana eða einhver annar vel máli farinn leikari. PÉTUR PÉTURSSON varð að bíða með að hefja hinn ágæta þátt sinn á sunnudagskvöld af því að ekki tókst að ljúka hámúsik- inni á réttum tíma. Enn einu sinni er ofríki Tónlistardeildar- innar lótið sprengja dagskrána fyrir dagskrárstjóminni •— og þar með svíkja hlustendurna. — Þessu mótmæli ég enn einu sinni. ÉG IILUSTADI ekki alls fyrir löngu á lög unga fólksins og fannst hann sæmilegur að öðru leyti en því, að þar örlaði hvergi á ís- lenzkri tónlist. Þarna komu kveðj- ur frá íslenzku æskufólki, sem dvaldist erlendis um lengri eða skemmri tíma. En ekki virtist hug- urinn hvarfla heim til tslands eða átthagana, því siður, að þar icenndi saknaðar eða viðkvæmni, heldur virtist hann uppfullur af útlend- um dægurlögum. VIÐ ERUM ORÐNIR svo nukl- ir heimsborgarar, svo ameriskir eða framandlegir í hugsunarliælti. Ekki vantar þó að við eigum tals- vert af islenzkum dans- og dægur- lögum svo er SKV fyrir að þakka og ýmsum öðrum, mörg þeirra eru smekkleg og með skemmtilegum textum. Skil ég ekki í, að það sak- aði, þó endrum og eins heyrðist eitthvað af þeim í rikisútvarpinu. Æskilegast væri eins og Freymóð- ur Jóhannesson stingur upp á í Alþbl., að sérstakir þættir flyttu vikulega íslenzk dægur- og dans- lög eða það bezta úr þeim. JÓHANNES SKRIFAR. Fyrir nokkru birtist í ríkisútvarpinu þáttur, er nefnist Sálumessa. Sum- ir misskildu þetta og fannst hér á j óviðeigandi hátt blandað saman i mjög ólíkri efnismeðferð í tónum og Ijóðum, og var það afsakanlegt. Eg tek undir ósk, sem fram kom i Alþbl. að þátturinn verði endur- fluttur. ÞÁ MUNDU FLEIRI hlusta og fleiri skynja það regindjúp, sem er milli hinna einstöku liða, þótt fjallað sé á vissan hátt um sama j efni. Og ég trúi ekki öðru en val unga fólksins á óskalögum mundi skána. Eg er meira að segja á því <zt mumnm a hina nýju skilmála fyrir heimilisíryggingu, sem eru fullkomnari en áður var. Iðgjöldin eru þau sömu. aini íllstttfggLng- Sjóvá \ tryggir öryggi heimilisins \ & n rtcmm j ^VÁT^GINGARFÉLAG ÍSLANDS HF. Í v!j U JjL\ INGÓLFSSTRÆTI 5 - SlMI 11700 ,j UMBOÐSMENN UM LAND ALLT. V.R. segir upp samningum Verzlunarmannafélag Reykja víkur hefur nú sagt upp samn ingum. Var það samþykkt á fundi trúnaðarmannaráðs fé lagsins, sem haldinn var fyr- ir nokkru. Var samningunum sagt upp með mánaðar ryrir- vara, og mun þá kcvna til vinnustöðvunar 25 nóvember verði ekki samið fyrir þann tíma. 2 30. október 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.