Alþýðublaðið - 15.11.1962, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 15.11.1962, Blaðsíða 4
=======g==gg====agaarass^wgBpyaeB^^agB^^ .ui nn.nqwmnwwp..mmmmwmpil^mii ihpw. . ÞAÐ kann aS vlrðast nokkuð seint að ræða bandarísku þingr- kosningrarnar nú, meira en viku eftir að þær fóru fram, en þó er þar enn rnargt óljóst, svo að ekki er úr vegi að staidra aðeins við og athuga úrslitin. Þess er þá fyrst að geta, að kosningarnar hljóta að teljast mjög mikill sigur fyrir Kennedy forseta bæði fyrir stefnu hans í Kúbumálinu og stefnu hans í innanríkismálum. Sigurinn er að vísu mestur í þingkosningun- um, en að því er varðar ríkis- stjórakosningarnar verður dá- lítið annað uppi á teningnum. Báðir flokkar hafa að vísu sama fjölda ríkisstjóra eftir kosning- arnar, en nokkur skipti urðu. Við skulum þá líta á úrslitin í hverjum kosningum fyrir sig. Öldungadeildin: Demókratar hafa, þegar þetta er ritað fengið 68 menn kjörna á móti 32 mönnum repúblíkana. Hafa demókratar þar bætt við sig fjórum sætum (höfðu 64), en repúblíkanar tapað jafn- mörgum (höfðu 36) Demókratar unnu sæti í Ind- iana, þar sem repúblíkaninn Capehart náði ekki endurkjöri, heldur tapaði fyrir ungum frjáls lyndum demókrata, Birch Bayh, sem er aðeins 34 ára gamall. Þessi úrslit virðast benda til, að a.m.k. þarna hafi Kúbumálið ekki liaft sérlega mikil áhrif, því að Capehart var mánuðum saman búinn að heimta harðvít ugar aðgerðir gegn Kúbu, helzt innrás, en það bjargaði honum ekki. í Wisconsin tapaði hinn aldni repúblíkani Alexandcr Wiley 78 ára gamall og aldursforseti í utanríkismála- og dómsmála- (nefndum öldungadeildarinnar, fyrir Gaylord Nelson, fyrrum ríkisstjóra demókrata. í Suður-Dakota sigraði Ge- orge McGovern, sem áður stjórn aði „Matvæli fyrir friðinn“ á- ætluninni öldungardeildarþing- mann repúblíkana Joseph Bott- um. Munurinn, þegar siðast frétt ist, var ekki nema 273 atkvæði, og hefur Bottum heimtað upp- talningu. Þarna er því enn um vafasæti að ræða, sem kann að hafa áhrif á það hvernig dcildin vcrður saman sett næsta þingtímabil. Þá vann Ribicoff, fyrrverandi heilbrigðis-, menntamála- og velferðarmálaráðherra Kenne- dys, sæti fyrir demókrata í Connecticut, þar sem liann var áður ríkisstjóri. Daniel Brewst- er vann sæti fyrir demókrata í Maryland. En mesti sigur i senatskosn- ingunum hefur sennilega verið sigur demókratans Tliomas Mc Intyre, sem vann sæti I New Hampsliire og sezt nú í það sæti, sem hinn látni forvígis- maður repúblíkanaflokksins, Styies Bridges, hafði áður. Þetia eru staðirnir, þar sem demókratar unnu-ný sæti, en á móti koma tvö sæti, sem þeir misstu. Demókratinn Carroll tapaði fyrir yfirlýstum íhalds- repúblíkana, Peter Dominik, i Colorado, og í Wyoming tapaði Hickey fyrir Milward Simpson, sem áður hefur verið ríkisstjóri þar í ríki. Svo mikið hefur verið skrifað um sigur Edwards, litla bróður forsetans, í Massachussetts, að ástæðulaust er að segja meira um hann, en.hann vann með svo miklum yfirburðum, að hann dró Endicott Peabody með sér, svo að hann sigraði fyrrverandi ríkisstjóra, repúblíkanann John Volpe, í ríkisstjórakosningunni. Óþarft er líka að geta þess, að ýmsir þekktir stjórnmálamenn úr báðum flokkum náðu endur- kjöri, svo sem demókratinn Ful- bright og repúblíkaninn Dirk- sen. Fulltrúadeildin: Hversu svo sem farið hefur með öldungadeildina í hinum svokölluðu „off-year“ eða milli- kosningum, þ.e. kosningum þeg ar forseti er ekki koslnn, þá hefur það verið venja um árabil að flokkur forsetans tapaði sætum í fulltrúadeildinni í þeim kosningum. Eina undan- tekningin mun vera kosningarn ar 1934 undir forystu Roosevelts Að mcðaltali mun stjórnarflokk urinn hafa tapað í þeim kosn- ingum 39 sætum. Fyrir kosning arnar í siðustu viku var almcnnt talið, áð demókratar mundu tapa allt frá 5 og upp í 10 sæt- um í fulltrúadeildinni. Reyndin hefur hins vegar orðið sú, að þeir hafa ekki tapað nema tveim sætum, hafa nú 259 sæti á móti 261 á fyrra þingi, en repúblik- anar hafa nú liins vegar 176 á móti 174. Á einum stað er eftir að kjósa, þar eð frambjóðandi demókrata lézt á meðan á kosn ingabaráttunni stóð. Mönnum kemur yfirleitt sam an um, að enn sé mjög erfitt að' gera sér grein fyrir hvernig hið nýja þing muni reynast Kenne- dy í þeim höfuðmálum, sem hann átti í slíkum erfiðleikum með á síðasta þingi. Þó viröist Ijóst, að frjálslyndu þingmönn um Iiafi fjölgað mjög verulega, hvort sem það nægir til að koma veigamikilli löggjöf, eins og lög um um læknishjálp handa öldr- uðu fóiki, gegnum þingið eða ekki. Þó má búast við, að sjálf úrslit kosninganna nú muni hafa veruleg áhrif á afgreiðslu þeirra mála, því að vilji fólksins hefur komið í ljós og það koma kosn ingar eftir þessar. Virðist ekki ólíklcgt, að Kennedy standi heldur betur í þinginu nú eu áður, þrátt fyrir hið óverulega tap á tveim sætum. — í öld- ungadeildinni er þetta ekkert vandamál, því að hún var og er enn hin fr jálslyndari deild þingsins. Ríkisstjórakosningar: Eins og fyrr segir koma báð- ir flokkarnir með jafnmarga ríkisstjóra út úr þessum kosn- ingum og þeir höfðu áður. Hinu er þó ekki að leyna, að repú- blíkanar unnu þrjú mjög veiga- mikil ríki, Michigan, Pennsyl- vaniu og Ohio, sem öll voru áður í höndum demókrata. Þetta eru öll þéttbýl ríki og ríkisstjór inn þar ræður fyrir mörgum bitl ingum, sem alltaf hafa þótt væn legir til að afla kjörfylgis. Er því ekki óhugsanlegt, að þessir sigrar repúblíkana eigi eftir að segja til sín í kosningunum 1964. Þá unnu þeir líka ríkis- stjóraembættið í Oklahoma, í fyrsta sinn siðan það ríki var tekið í sambandiö 1907. Demókratar unnu líka sína sigra í ríkisstjórakosningunum, sem ekki komu síður á óvart. Má þar nefna fyrsta sigur demó- krata í Vermont, ennfremur sigurinn í New Hampshire, sem einnig hefur alltaf verið eitt höfuðvígi repúblíkana, og síð- ast og ekki sízt sigurinn í Iowa, þar sem demókratinn Hughes var kjörinn ríkisstjóri í einu af liinum svokölluðu „korn-ríkj- um“ scm yfirleitt hafa alltaf verið repúblíkönsk. Annars beindist athygli manna að ríkisstjórakosningun • um aðallega vegna þeirrar vís- bendingar, sem þær kynnu að gefa um væntanlegt forseta- framboð repúblíkana gegn Kennedy 1964. Höfðu menn aðal lega augastað á Nixon í Kali- forníu og Rockcfeller í New York. Nixon virðist nú vera end anlcga dauður pólitískt og tók því ekki sérlega vel. Kvaddi blaðamenn með því að segja, að nú hefðu þeir ekki lengur Nixon til að sparka í og þetta væri sinn síðasti blaðamanna- fundur. Rockefeller sigraði hins vegar í New York, en með miklu minni mun, en talið hafði verið fyrir kosningarnar. Ber að hafa þar í huga, að demókratar áttu lengi vel í erfiðleikum meðTað álcveða andstæðing hans og buðu síðan fram, seint og síðar meir, til- tölulega lítið þekktan matnn, sem þar að auki reyndist ekki sérlega litskrúðugur stjórnmála maður. Mundi ég telja, að mögu leikar Rockefellers á útncfn- ingu í framboð gegn Kennedy hafi ekki aukizt við frammistöð una nú. Tveir repúblíkanar komu hins vegar út úr ríkisstjórakosning- unum með mikinn sigur, þeir Romney í Michigan og Scranton í Pennsylvaníu. Þeir áttu að visu við tiltölulega litlausa demókrata að etja, en sigur þeirra var samt öruggur, og mundi ég ekki telja ólíklegt að annar hvor þeirra, og þá helzt Romney, hefði hvað mesta möguleika á framboðinu, sem reyndar virðist algjörlega von- laust, eins og málin standa nú. Það kann að vera nokkur skýr ing á tapi demókrata í Michigan að ríkið hefur átt við hin mestu fjármálaörðugleika að stríða, sem ekki hafa batnað við það, ð hinn demókratíski ríkisstjóri lvefur þurft að berjast við repú- blíkanskan meirihluta á ríkis- þinginu í nokkur ár og litlu komið fram af þeim málum, sem hann hefur talið vænleg til lausnar á vandamálunum. Romney er hins vegar alþekkt ur dugnaðarforkur og langt frá því að vera eins illa liðinn af verkamönnum í bílasmiðjunum og smnir viija vera láta. Það er því ekki alls kostar rétt að segja, að verkamenn hafi staðið gegn lionum, þó að félag þeirra hafi að sjálfsögðu mælt með demókratanum eins og venju- lega. Ýmislegt: Ýmislegt annað mætti tína til úr kosningum þessum. Til dæm is er hætt við, að suðurríkja- demókratar verði liugsandi yfir því hve naumlega demókratinn Lester Hill náði kosningu til öldungadeildarinnar í Alabama. Þar var repúblíkaninn James Martin á undan í talningunni alla nóttina, og það var ekki fyrr en undir lokin á talning- unni, að Hili marði það inn. Má telja víst, að Kennedy verði kennt um þetta vegna afskipta sinna af kynþáttamálunum I suðurríkjunum síðustu misseri. Annars voru fimm svertingj ar kjörnir á þing nú í stað fjög- urra á síðasta þingi, og víða hlutu þeir' kosningu til opin- berra starfa I ríkunum. Loks má geta þess, að repú- blíkaninn Walter Judd, sem flúttt aðalræðuna á flokksþingi repúblíkana 1960, féll í kosn- ingu til fulltrúadeildarinnar í Minnesota fyrir Donald Fraser demókrata, sem af öllu hjarta styður heilbrigðismálastcfnu Framhald é 14. síðu. Furer i Berg IVAR ORGLAND. DIKT. FONNA FORLAG 1962. Um það leyti, sem grösin fara fyrir alvöru að sölna á haustin, hefst tími bókmennt- anna og nær hámarkinu rétt fyrir jólin. Bækurnar eru þegar farnar að streyma á markaðinn. Mér var rétt í þessu að berast í hendur ný ljóðabók eftir Ivar Orgland, sem Is- lendingum er að góðu kunn- ur frá dvöl hans hér á landi.. Þetta er fimmta ljóðabók. Ivars Orgland frumsamin og heitir Furer iBerg. Að- ur hafa komið út eftir hann:. Lilje og sverd, 1950, Mjöd og malurt, 1959, Atlantider, 1960, Eld og marmor, 1961. Auk þess hefur hann sent frá sér á þessu tímabili fjórar bækur með þýðingum á ljóð- um eftir íslenzk skáld, en þau eru Davíð Stefánsson, Stefán frá Hvítadal, Tómas Guðmundsson og Steinn Stein arr. Það má því með sanni segja, að Ivar Orgland hefur ekki setið auðum höndum í bókmenntalegum efnum þessi árin. Furer i Berg er fimm arka bók í meðalstóru broti, gefin út af Fonna Forlag eins og flestar fyrri bækur skálds- ins, og er útgáfan öll hin smekklegasta. Bókin skiptist í fimm kafla, en alls eru ljóð- in 45 talsins, og komið vfðá við í efnisvali. Hér er ekki ætlunin að skrifa neinn rit- dóm> um bókina, heldur að- eins að vekja athygli á út- komu hennar og hvetja alla unnendur fagurra ljóða til að eignast hana og lesa. Það eru alltaf góð tíðindi, þegar Ivar Orgland sendir frá sér nýja ljóðabók. Eg get þó ekki stillt mig um að birta hér eitt smá- kvæði úr bókinni til gamans, en í því notar skáldið stuðla og höfuðstafi auk endaríms, samkvæmt gamalli íslenzkri Framhald á 14. síðu. 4 15. nóv. 1962 - ALÞÝÐUBLAÐI.Ð IVAR ORGLAND

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.