Alþýðublaðið - 16.11.1962, Page 3
MIKOJAN SEM-
VIÐ CASTRO
Havana, 15. nóv.
(NTB—AFP)
ÞAÐ er haft eftir áreið'anleerum
hcimildum í Havana að þeim Mi-
koyjan fyrsta varaforsætisráð-
herra Sovétríkjanna og: Fidel Ca-
stro forsætisráðherra Kúbu hafi
tekizt að komast að samkomulagi
um Kúbumálið.
Því er einnig haldið fram að
Mikoyjan hafi fengið Castro til
að falla frá kröfum um að Banda-
ríkjamenn flytji tafarlaust her-
lið sitt frá Guantanamo áður en
stjórn Kúbu hugleiði hvort hún
samþykki að alþjóðlegt eftirlit
verði haft með niðurrifi eldflauga
stöðvanna á Kúbu.
Þesi krafa Castro mun því ekki
lengur standa í veginum fyrir þvi,
að samningar um lausn geti byrj-
að að bera einhvern árangur.
Talið er samt, að Mikoyjan hafi
lofað Castro því að Sovétríkin
muni styðja kröfur hans um brott-
flutning Bandarísks herliðs frá
Guantanamo, þegar vandamálin í
sambandi við brottflutning eld-
flauganna eru til lykta leidd.
Kúba mun þá að öllum líkind-
um krefjast brottfarar Banda-
ríkjamanna frá Guantanamo á
grundvelli alþjóðalaga
Talið er að Mikoyjan sem er
viðurkenndur mjög snjall og lip-
ur samningamaður, hafi í viðræð-
nm sínum við Castro sýnt mikla
þolinmæði og diplómatíska leikni
að fá Castro til að fallast á sjón-
armið Sovétstjórnarinnar, þar eð
Castro er talinn flestum stjórn-
málamönnum þrárri.
Forsætisráðherra Breta sagði í
dag að hafnbann Bandarlkja-
stjórnar hefði ekki bitnað á neinu
brezku skipi.
Einn þingmanna Verkamanna-
flokksins í neðri deild hafði mót-
mælt því að Bandaríkin fengju að
friðhelgi skipa á úthöfum og að
þau stöðvuðu einnig skip banda-
manna sinna. Bað hann forsætis-
ráðherrann að koma í veg fyrir að
slíkt kæmi fyrir. Macmillan svar-
aði eins og áður sagt að engin
brezk skip hefðu verið stöðvuð
enn.
Fjallvegir lokaðir
á Vesturlandi
svarar
Nehru
Chou En Lai
New Delhi, 15. nóv.
(NTB—Reuter)
i Nehru forsætisráðherra Indlands
! svaraði í dag bréfi Chon En Lai
forsætisráðherra Kína en Chou
En Lai hafði þar lagt til að gert
yrði vopnahlé og viðræður hafn-
ar um landamæradeilur ríkjanna.
Ekki er vitað um efni svars þess
sem Nehru gaf Chou En Lai, en!
fullvíst er talið samt sem áður að
hann hafi neitað að eiga nokkra |
samninga við kínversku ráðamenn
ina fyrr en allt kínverskt herlið
hefur hörfað aftur til þeirra
stöðva, er þeir höfðu á valdi sínu
þegar styrjöldin byrjaði hinn átt-
unda september sl.
Chou en Lai lagði til í tilboði
sínu sem barst stjórn Indlands
hinn 4. nóvember sl. að bæði ind-
verski og kínverski herinn hörf-
uðu til baka frá þeim stöðvum sem
þeir höfðu þá um nokkra kfló-
metra en siðan yrði samið vopna-
hlé og setzt að samningaborðinu.
Seinast í gærkvöldi lét Nehru
þau orð falla um þetta tilboð að
ef Indverjar ætluðu sér að fara
að ganga að þeim þýddi það að
samþykkt væri að kínverski her-
inn innlimaði indverskt land og
indverskt fólk i kínverska alþýðu-
lýðveldið.
VEGAGEKÐ Rihisins hefur
látið búa einn af vegheflum
sínum ýtutönn að framan, og
hefur hún reynzt mesta þarfa-
þing við að ryðja snjó af veg-
um. Tönnin hefur verið reynd
undanfarið, m. a. var þessi hef-
ill sendur til að ryðja Hellis-
heiði eftir að hún tepptist um
daginn og reyndist þá með af-
brigðum vel.
Hefillinn er sænskur, af gerð
inni Bolinder Munktell. Var
tönnin einnig fengin frá Sví-
þjóð. . Vegagerðin fær innan
skamms aðra slíka tönn frá
Noregi og verður sú með skáa
og hafa menn ástæðu til að
það muni reynast enn betur
við snjóruðning.
Hér á myndinni sést Ragnar
Olsen, hefilstjóri, hreinsa hef-
ilinn með gufuprautu. Ljósm.
Búnar.
ÐBERMUDA: í nótt kom upp eld-
ur í 7000 lesta flutningaskipi sem
statt var nálægt Bermuda. Farmur
skipsins var dynamit, brenni-
steinn og fleiri sprengjuefni. Á-
höfnin barðist við eldinn í alla
nótt í stórsjó og versta veðri unz
augljóst var að ekki var hægt að
koma í veg fyrir sprengingu. ÖIl-
um skipum á þessu svæði var gert
aðvart.
Tónskáldasjóður
Rikisíjtvarpsins
Á VEGUM útvarpsins er álit-
legur sjóður, Tónskáldasjóður
Ríkisútvarpsins, sem ætlað er að
greiða á ýmsan hátt fyrir íslenzk-
um tónskáldum og verkum þeirra.
Úr þessum sjóði hefur verið aug-
lýst til umsóknar 20 þúsund kr.
fjárveiting og er ætluð islenzku
tónskáidi innan 35 ára aldurs. —
Umsóknarfrestur er til 1. desem-
ber næstk. I umsókninni skal höf-
undur gera grein fyrir því, hvers
háttar verk hann býður og hve-
nær því verður væntanlega lokið.
Ríkisútvarpið áskilur sér rétt til
frumflutnings.
Kúbu-málið
alvarlegast
WASHINGTON, 15. nóvember,
(NTB-Reuter).
Adenauer og Kennedy. kom sam-
an um að fyrsta alþjóðadeilumálið,
sem útkljá þyrfti nú, væri Kúbu-
deilan. ,
• Adenauer, sem kom til Washing
ton á þriðjndaginn, átti viðræður
við Kennedy tvisvar á miðvikudag.
Hann lýsti því yfir, að viðræðurn-
ar hefðu verið mjög árangursríkar
Utanríkismálaráðuneyti Banda-
ríkjanna kunngerði í dag að um-
ræðurnar hefðu aðallega snúizt
um deilumál austurs og vesturs.
Fyrirætlanir Sovétríkjanna í Ber-
lín og Kúbudeilunni. Auk þess
ræddu þeir málefni er vörðuðu
Þýzkaland, NATO og árás Kín-
verja á Indverja.
Báðir lýstu þeir því yfir að
loknum viðræðunum að fyrst
þyrfti að leysa Kúbudeiluna, áður
en leiðtogar vesturveldanna gætu
af alefli, snúið sér að öðrum vanda-
málum, sem úrlausnar þyrftu.
Á fundinum með Rusk, voru,
auk þeirra Adenauers, viðstaddir
Gerhard Schröder, utanríkisráð-
herra Vestur-Þýzkalands og marg-
ir helztu ráðamenn rikjanna á
sviði utanrikismála.
Það, sem um var rætt á þeim
fundi, voru fyrst og fremst mál,
er varða NATO og auk þess mál,
er varða Efnahagsbandalagið. Að
fundinum Ioknum gekk Adcnauer
til bifreiðar sinnar og neitaði að
svara spurningum blaðamanna,
sem vildu fá að vita efni umræðn-
anna.
Salinger, blaðafulltrúi Kenne-
dys sagði, að Adenauer og Kenne-
j dy mvndu gefa út sameiginlega
j yfirlvsingu að seinasta fundi þeirra
loknum.
Adenauer mun í kvöld eiga síð-
asta fund sinn með Kennedy.
Hnnn f.. flugleiðis til Þýzkalands
á morgun.
HEIMTA ÞEIR AÐ
STRAUSS VlKI?
STJÓRNARKREPPA
YFIRVOFANDI
Bonn, 15. nóv.
★ Spiegelmálið ætlar að verða
alvarlegt fyrir vestur-þýzk stjórn-
mál. Eftir seinustu fréttum hafa
Frjálsir Demókratar f hyggju að
heimta að Strauss hermála- og
varnarmálaráðherra verði látinn
vflcja.
ór Frjálsir Demókratar munu
halda þing í; Niirnberg á mánu-
dag og mun þar verða ákveðið
hvort til stjórnarslita skuli koma
vegna þessa máls sem vakið hef-
ur heiftarlegar deilur í Vestur-
Þýzkalandi.
★ Jafnaðarmenn hafa þegar lýst
því yfir að þeir yilji að Strauss
segi af sér og talið er að þeir
munu koma með tillögu þess efnis
innan skamms í vestur-Þýzka þing
inu. Talið er fullvíst að frjálsir
Demókratar muni samþykkja slika
tillögu og er þá allt útlit fyrir að
þar með sé stjómar samstarf
| þeirra við flokk Adenauers búið
| að vera.
★ Mikil ólga varð í Vestnr-
þvzka þinginu í dag er Strauss
viðurkenndi að hann hefði átt
hátt í handtnku ritstióra Spiegels
og konu hans sem há voru stödd
á Snáni. Talið, var að spænska lög-
reirTau hefði þar brugðið óvenju
skiótt við, en þau hjónin voru
handtekin í rúminu.
★ Adenauer kanslari sem verið
hefur í heimsókn i Bandaríkjun-
um er væntanlegur til Bonn ann-
að kvöld og mun hann þá ræða við
Erich Mende um síðustu viðburði
Spiegel-málsins og er talið al
kanslarinn muni nú fyrir alla
muni reyna að koma í veg fyrir
stjórnarkreppu hvað sem það
kostar.
Umferðarvika
á Akranesi
. Akranesi í gær.
UMFERÐARVIKA var sett hér
kl. 10:30 í barnaskólanum í morg-
un af bæjarfógeta. Viðstaddir voru
lögregluþjónar bæjarins, ásamt
fulltrúa og Jóni Oddgeiri Jóns-
syni umferðarfulltrúa, öllum kenn
.urum og skólastjóra.
Tilefni vikunnár er umferðar-
aukning á Akranesi undanfarin ár
með stóraukinni bifreiðaeign bæj-
arbúa. Þá hafa verið gerðar mjög
miklar gatnaframkvæmdir hin síð-
ustu misseri og nú síðast í haust
hefur verið komið upp umferðar
merkjum, eins og þau eiga a'ö
vera, og umferð hafin um allar
nýjar götur og aðalgötur bæjar
ins.
Ætlunin er að auka stórlega um-
ferðareftirlit og umferðarleiðbein-
ingu fyrir almenning. Og í öðru
lagi að stuðla að serstakri umferð-
arfræðslu í skólum bæjarins.
Lögreglan væntir þess, að með
góðu samstarfi við bæjarbúa muni
vera hægt að auka umferðar-
menninguna á Akranesi, og er öl’-
um ljóst, hvílíka þýðingu það hef-
ur fyrir öryggi borgaranna.
Ýmsir aðilar hafa stutt þetta
mál auk bæjarins. Vátryggingarfé-
lagið h. f. hefur t. d. gefið ágæt
umferðatæki, segultöflu til af-
nota í skólum bæjarins. Sjóvá-
tryggingaíélag íslands mun kosta
þrjár kvikmyndasýningar meðan
vikan stendur. Almennar trygg-
ingar h. f. og Samvinnutryggingar
h. f. hafa veitt margvíslega að-
stoð um önnur atriði.
tíærinn hefur látið gefa út mjög
vandaða umferðarbók, sem verður
borin í hvert hús í bænum. H. S. V.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 16. nóv. 1962
QlöA-dU'iúlJA - :<v. í