Alþýðublaðið - 16.11.1962, Page 9

Alþýðublaðið - 16.11.1962, Page 9
Á efstu myndinni til vinstri er mynd af Skógaskóla, skólabygging- unni eins og Guðjón Samúelsson húsameistari teiknaði hana. Lengra er'u svo nemendabústaðirnir og kennaraíbúðirnar. Á myndinni fyrir ofan eru nemendur í handknattleik, drengir og stúlkur jafnt. Mynd- in fyrir neðan: Dans er talsvert stundaður í skólanum, en þó er hann ekki svo almennur og æskilegt væri. Eru menn með ráðagerðir á prjónunum að fá danskennara til skólans. ÞAÐ var dálítið undarlegt að hafa lært hjá þessum manni og eiga síðan að fara einn góðan veðurdag að tala við hann fyrir dagblað. Enda var það eins og í mannkynssögutímum í gamla daga, að heilinn tæmd ist um leið og ég settist and- spænis honum, og ætlaði að spyrja viturlegra spurninga. En eftir tal um gott veður og fræga menn, þá kom minnið aftur yfir oss og vér spyrjum: „Hvert er álit þitt, Jón, á heimavistarskólum fyrir nem- ■ endur á þessu aldursstigi?“ „Þeir eru tvimælalaust mjög þroskandl fyrir unglingana á þessum aldri, og ef vel tekst til lang-„effektivustu“ skólar, sem völ er á hér á landi. í heima- vist ala unglingarnir hvort ann að upp að miklu leyti. Hér £ Skógaskóla tel ég að nokkurn veginn hafi tekist að skapa skóla eftir því formi, sem heima vistar-héraðsskólum er ætlað. Hér er góð aðstaða fyrir nám og íþróttir, en hvort tveggja eru grundvallaratriði. Nemend ur hafa góða aðstöðu til lestr- ar, og ekki síðri til íþróttaiðk ana. Ég vil taka það fram, að mér finnst skólalífið hafa batn að til muna síðan sundlaugin kom. Þar eiga unglingarnir fasta tíma og geta sprett spori, — því fyrir fólk á um aldri er mjög nauðsynlegt og ekki nema sjálfsagt að hrista úr klaufunum öðru hverju. Einu hef ég tekið eftir í þessi rúm 8 ár sem ég hef verið skóla stjóri þessa skóla. Unglingarn ir, sem koma í skólann, eru stöðugt yngri að hefja fram- haldsskólagöngu sína. Ég veit ekki, hvort þetta er þróun í rétta átt, né hvort hún er skóla eins og Skógaskóla hagkvæm. Tólf-þrettán ára unglingar eru vart nægilega harðnaðir til að geta orðið eðlilegir og virkir í skólafélagi sér þrem og fjór- um árum eldri nemenda. Þetta hefur komið í ljós hjá okkur, þegar fyrstu bekkingar hafa ekki verið komnir af félagslegu þroskastigi barnaskólanemenda, og orðið eins og álfar út úr hól meðal sér eldri og harnaðri fé- laga. Svo snertir annað þetta sama mál. Unglingarnir, eru, ef þeir byrja svo ungir í héraðsskóla, vart færir um að Ijúka ströngu landsprófi á svo stuttum tima, sem þar er krafizt. Þeir eru ekki nægilega úthaldsgóðir fyr- ir svo þreytandi og erfitt nám. En á þessu verður víst ekki' ráðin bót, því foreldrar virðast stefna að því að koma börnum sínum í gegn um skólanám sem allra yngstum. „Hvernig finnst þér að hafa á annað huridrað nemendur í skóla, sem upphaflega var gerð- ur fyrir 50—60?“ „Það sem ég vildi taka fram í sambandi við þetta mál er það, að taka verður tillit til þess á sviði kennslumála ekki síður en annarra, að tímarnir hafa breytzt og kröfur manna aukizt. Aðeins eru tvær kennaraíbúð ir í skólanum eins og hann var byggður í upphafi. Lágmark er að sex menn kenni í skóla þar sem kenndar eru svo margar námsgreinar eins og hér, og þá vantar húsnæði fyrir fjóra. Úr þessu fékkst bætt þegar við- byggingin var byggð, þá voru reistar tvaér ibúðir fyrir kenn- ara ■ með f jölskyldur. Þá eru eftir tveir kennarar og þeir hafa alltaf verið á hrakhólum méð húsnæði. Annar þeirra ér búinn að kenna lengi við skól- anri og er orðinn fjölskyldumað ur. Hann hefur litla aðstöðu til að lifa eins og maður í hans stöðu ætti að geta leyft sér. Hinn er svo heppinn að búa hjá foreldrum sínum hérna á bæn- um. Skólinn er ofhlaðinn af nem endum, við verðum að hafa fimm nemendur í herbergi þar Jón R. Hjálmarsson. sem eíga að vera fjórir. Þessu til úrbóta höfum við sótt um Ieyfi til að byggja nýja heima- vist, þar sem yrði samastaður fyrir 30 nemendur og tvær kennaraíbúðir að auki. Þegar það hefur fengist, þá er skól inn vel settur með húsnæði, bæði fyrir starfslið og nemend ur. Og ég vona að það verði sem fyrst. Fræðslumálastjórn og þeir aðilar, sem veita þessu máli efnahagslega forstöðu hafa sýnt velvild og skilning. „Nú eru ýmis vandamál, ,sem rísa upp í sambúð unglinga á þessum aldri. Hvað gerið þið ef einn nemandi er öðrum frem- ur hafður útundan?" „Við reymnn eftir fremsta megni að hindra að slíkt geti átt sér stað. Fyrst með góðlát- legum bendingum, og síðan með því að tala alvarlega við þá aðíla, sem eiga sökina, ef hitt dugar ekki.“ „Hvert er þitt persónulega á- lit á flangsi meðal nemenda þinna, Jón?“ „Mín reynsla er sú, að það er erfitt að skipta sér af flangsi, en það er ennþá erfiðara að skipta sér ekki af því. Ég hef tekið þann kostinn að banna al veg allt flangs í skólanum, af því að ég held að það hafi ekki heppilegar afleiðingar.“ „En þessir rómantísku mömmukossar á dansæfingum, ert þú á móti þeim?“ Jón hlær. „Persónulega hef ég ekkert á móti slíkri rómantík, því að rómantíkin er ágæt fyrir ungl inga ekki síður en fullorðið' fólk. Én ástæðan fyrir því að ég vil ekki leyfa slikt hérna i skólanum, er einfaldlega sú, að þá vill þetta færast í Vöxt, eiga sér stað í tíma og í ótíma, og það er verra að kveða það nið- ur þegar í óefni er komið. Við höfum reynslu fyrir því,~hvem ig þetta er ekki, en ei fyrir hinu, og það er bezt að hætta sér ekki út á hálan ís. Sem sagt, rómantíkin er ágæt, en þegár 14—15 ára unglingar ætla sér að fremja hluti, sem þau kalla ást, þá er of Iangt gengið. ~ „En svo að við leiðum riú tal ið að þér sjálfum, hvernig finnst þér að vera skólastjóri I svona skóla?“ „Mér hefur fundist það ágætt. Það er erfitt og taugaþreytandi og maður verður að helga því næstum alla starfskrafa sína, en um leið er það ákaflega þroskandi starf. Það kennir manni umburðarlyndi. Að vísu verður oft að vera harður og ein þykkur, en án þess er ekki hægt að halda stjórn á þessum stóra hóp lífsglaðra unglinga. „Hvaða mun finnur þú á æsk unni nú og eins og hún var á þínunt ungdómsárum?“ „Hann er sá, að mér finnst krakkarnir vera betri núna, bet ur gerð. Þau eru ófeimnari, frjálsmannlegri og yfirleitt bet ur uppalin en áður var. Það er minna um að krakkar séu tck- in fyrir nú til dags en í „gamla- daga““. „Þú fórst til Parísar í sum ar í boði NATO. Hvernig þótti þér sú ferð?“ „Ég hef komið til 19 landa, áður en til Frakklands, en mér varð ferðin hrcin upplifun, full komin opinberun, svo fróðleg var hún og skemmtileg. Ég gæti . skilgreint París sem risastórt sögulegt safn, enda er borgin höfuöból sagnfræðinnar, þeirr- ar greinar, sem ég hef lagt mesta stund á um dagana.“ „Varst þú ekki gripinn stríðsótta eins og svo margir, sem hafa verið í stríðinu, þeg- ar hafnbannið var sett á Kúbu fyrir stuttu“. „Nei, ég fann ekki til þess. Þó sigldi ég í stríðinu og sá skipin skotin niður í kringúm mig, og átti á hættu aö okkar skip yrði næsta fómarlarnbið. Stríðshræddur? Neit Á þessum tunglskinsnóttum úti á hafinu skildi ég fyrst eilífðina!“ ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 16. nóv. 1962 §

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.