Alþýðublaðið - 04.01.1963, Blaðsíða 10
T. Engan
Eins og skýrt er frá á síð-
unni í dagr hafa rússneskir í-
þróttamenn hlotið Iangflest
verðlaun á þeim heimsmeist-
aramótum, sem fram hafa
farið á nýliðnu ári. Hér er
einn heimsmeistari af nor-
rænu bergi brotinn, norski
skíðastökkvarinn, Toralf Eng
an.
WWWWWWWlWWtWWMWW
.<
Jqhnny Weissmijller „Tarzarí' segir frá:
„Johnny7 þú syndir
ekki beint“
EG VAR aðeins fimmtán ára
gamall, er sundkennari íþróttafé-
lags Illinois, William Bachrach, fór
að veita mér sérstaka athygli, og
er ég hafði þjálfað stutta stund
undir handleiðslu hans, gaf hann
ráð, sem ég hef jafnan fylgt síð-
an, jafnt á láði sem legi.
Dag eftir dag var þjálfað og
æft. Bach athugaði nákvæmlega
sundtök og andardrátt, viðbrögð
mín og snúninga. Hann kenndi mér
að halda skrokknum vel uppi —
að synda ofan á vatninu, en ekki
í gegn um það. Og smám saman
fór,. árangurinn af erfiði voru að
koma í ljós. Mér tókst að synda
100 yds vegalengd á 52 sek. með
frjálsri aðferð. En við þjálfun
Þórólfur
skoraði
I fyrrakvöld lék St. Mirren
gegn Raith Rovers og fór leikur-
inn fram á heimavelli St. Mirren.
Úrslit urðu þau að R.Rovers sigr-
aði með 2 mörkum gegn 1. Þetta
er fyrsti sigur félagsins í 19 leikj-
um. Þess skal getið, að Þórólfur
skoraði mark St. Mirren.
mína var þó sá galli, að ég æfði
alltaf í sömu sundlauginni.
Félagið átti sérlega góða sund-
laug. Henni var gkipt í brautir,
með breiðum, svörtum strikum í
botninum, sem sundmönnunum
var auðvelt að „stýra“ eftir. Mér
varð ekki ljóst í fyrstu, að ég
hafði ósjálfrátt gert mig háðan
þessum brautum. Mér var ekkl
hægt um vik að halda réttri stefnu
án þeirra.
Bach var þetta heldur ekki ljóst
í fyrstu, eða þar til að hann „tók
tíma minn“ í sundlaug, sem ekki
var skipt í brautir. En þar var
ég einum fimmta úr sekúndu
seinni sömu vegalengd en í hinni
lauginni, er ég var vanur að synda
í. Bach lét mig synda laugina á
enda, hvað eftir annað og fylgdist
nákvæmlega með mér. Síðan þaut
hann upp og hrópaði: „Johnny, þú
syndir ekki beint. Þig ber af leið,
ýmist til hægri eða vinstri. Þú ert
bókstaflega víxlaður á sundinu.
Það er vegna þess, að þú hefur
ekki svörtu strikin til að stýra
eftir.“
Hann þreif af sér hattinn og
kastaði honum á viðbragðspallinn
og skipaði mér síðan að fara að
hinum enda laugarinnar. Svo sagði
hann: „Jæja, lagsmaður, nú er
hatturinn takmark þitt. Dragðu
upp í huga þínum beina línu milli
þín og hans, og syntu svo eftir
þessari ímynduðu línu. Fylgdu
(MMMMMtMMMHMMMMUUMHMMMMMWMMMUIMMMM
Völsblaðið
komið út
Valsblaðið, jólablað er ný-
komið út mjög vandað að
efni og útliti. Blaðið er slls
40 síður, prýtt fjölda mynda
og í því eru margar fróðlegar
og skemmtilegar greinar (ein
þeirra eftir sundkappann
Johnny Weissmiiller sem
síðar varð Tarzan kvikmynd-
anna, birtist hér á síðunni í
dag, en greinina þýddi Einar
Björnsson, einn af ritstjór-
um Valsblaðsins og knatt-
spyrnugagnrýnandi Alþýðu-
blaðsins). Annað efni blaðs-
ins er jólahugleiðing sr.
Braga Friðrikssonar, úi
skýrslum iþróttadeilda Vals,
rætt er við Sigrfði Sigu*ðar-
dóttur, hina kunnu hand,-
knattleikskonu Vals, og einn
ig er viðtal við Albert Guð-
mundsson um för hans til
Ítalíu í haust, þar sem hann
Iék með sínu gamla félagi
Milan. Grein um di Stefano
og ýmislegt fleira. Blaðið er
Val til sóma, en ritstjórar
þess eru Frímann Helgason,
Einar Iijörnsson, SigurpáH
Jónsson, Jón Ormar Jónsson
og Gunnar Vagnsson.
MHtMMMMMtMIHtMMttMtUMMtMMMtMMtMMMMMMM
eigin stefnu, þá muntu hratt og ör-
ugglega ná settu marki."
Þessi ráðlegging átti sinn meg-
inþátt í, að tryggja mér fimm sigra
á tveim Olympíuleikjum, auk
þess sem ég á sundferli mínum.
bar sigur úr býtum í 52 meistara-
keppnum í Bandaríkjunum og
,,setti“ 67 heimsmet. Frá þeirri
stundu, að minn góði þjálfari gaf
mér þetta ráð, hefur það verið
mitt leiðarljós. Eg hef aldrei síð-
an látið neina afmarkaða eða fyr-
irfram ákveðna línu móta stefnu
mína. Eg hef sjálfur ákveðið stefn-
una og stýrt beint að marki.
Skömmu fyrir keppnina í Ol-
ympíuleikunum árið 1928, fékk ég
skyndilega sinadrátt í hægri fót-
inn. Eg varð dauðhræddur um að
þjálfarinn myndi harðlega neita að
ég tæki þátt í keppninni. í tvo
daga reyndi ég af öllum mætti að
dylja þetta, m. a. með því að rétta
ekki úr fætinum. En mér versnaði
aðeins. Skyndilega ýkrð mér ljóst,
að ég hafði tekið ranga stefnu,
að ekki dygði að.leyna annmark-
anum eða gallanum, aðeins til þess
að fá að vera með, heldur hitt,
að fá þetta Iagfært, svo ég gæti
sigrað. Eg skýrði síðan þjálfaran-
um hvað væri að. Var ég þegar
skoðaður nákvæmlega og að því
búnu „tekinn til meðhöndlunar"
svo að dugði. Er á hólminn kom,
var ég ekki aðeins fær um aö
taka þátt í keppninni, heldur gjör-
sigraði ég alla keppinauta mína.
Hefði ég ekki áttað mig í tíma, er
enginn vafi á því, að allt hefði
mistekizt fyrir mér. Hér sannað-
ist, frekar en nokkru sinni hollráð
Bach, um að hafa augun opin á
markinu, en ckki aðeins leiðinni
að því.
Það voru spennandi trmar, sem
fóru í hönd, er að því kom að
kvikmynda skyldi Trazan-sögum-
ar, og mér var falið „titil-hlut-
verkið." Kvikmyndamennirnir
voru ekki í neinum vafa um, að
mér myndi engin skotaskuld verða
úr því að skila hlutverkinu að því
er tfl _ hins likarajlega jatkjörfis
tæki. Hins vegar voru þeir all-efa-
gjamir um hæfileika mína, sem
„kvikmyndaleikara". Eg fékk skip
un um að hverfa að nokkra að leik
listamámi og það gerði ég. Kenn-
urum mínum kom saman um, að
breyta þyrfti sundstíl mínum, syo
að hann yrði glæsilegri á kvik-
myndatjaldinu. Eg reyndi að
fylgja „nýskipan" þeirra í reynslu
kvikmyndinni, en það tókst vægast
sagt hörmulega. Árangurinn varð
sá, að á tjaldinu birtist sundmaður
Framh. á 12. síða
ussar voru
angbeztir
Hið þekkta ungverska íþróttablað
„Nepsport" hefur birt yfirlit um
$rangur þjóða é heimsmeistara-
mötum í ýmsum íþróttagreinum
ápið 1P62, en alls voru haldin 19
heimsmeistaramót á árinu.
1 Samkvæmt yfirlitinu eru Rúss
ár langflestir, hér er um hir.ar ó-
linlegustu greinar að ræða, en
sijr.áin lítur út sern hér segir:
í 1) Sovétríkin, 57 gull, 43 silfur,
óg 25 bronz, alls 125 verðlaunapen
inga.
i ** 2) Bandaríkin, 19 gull, 6 silfur,
17 bronz alls 42 peningar.
3) Japan, 9 guil 6 silftir, 7
bijonz alls 22 peningar.
4) ,; fJngverjaland, 7 gull, 7 silfur.
5 brp'hz alls 19 peningar.
w
70 lönd í
knaftspyrnu
OL 1964
Zurich, 3. jan. (KTB-AFP).
, Alls hafa 70 lönd tilkynnt þátt-
töku í knattspyrnukeppni Olymp-
íuleikanna í Tokio, sem fara fram
í október næsta ár, 1964. í lok
þessa mánaðar verður dregið í
riðla undankeppninnar í Kairó og
4 lönd verða í hverjum riðli. (Eins
og kutmugt er verður ísland með i
þessari keppni.
5) Svíþjóð 7 gull, 7 silfur, 1
brónz alls 15 pemngar.
Bretar cru í 11. sæti á listanum
með 3 gull, 4 siliur.l bronz eða
alls 8 peninga.
tttttttwtitttwwmtttttttw
Engan sigraði '
meÖ yfirburðum
Um áramótin var háð mikil
stökkkcppni í Oberstdorf, en
þátttakenúur voru margir af
beztu siökkmönnum álfunn-
ar. Sigurvegari varð Norð-
ínaðurinn Toáalf Engaii,
hann síókk 72,0 og 70 5 ro.
og hlaut 214,2 stig. Hatði
Norömaðurinn mikla yfir-
burði og síókk frábærlega
vel.
Annar 4 kcppninni var
hinn kunni þýzki stökkvari
Max Bolkart með 199,3 stig
hann stókk 68,0 ín. í báðum
stökkum. Þriðji varð Yggc-
seth, Koreg.i með 194,8 stig,
stökk einnig 68 m. í báðum
stökkum. Bezti Finninn varð
Halonen með 181,3 stig, stökk
65,5 m. í báðum stökkum. Hal
onen varð nr. 9. Rússinn
Kamenski varð nr. 14 með
176,8 stig.
ttmwwtwMMMtttttttmw
10 4. janúar 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
l'i .. •
/